Tímarit Máls og menningar - 01.02.1987, Page 95
Tvö Ijób
Breyten Breytenbach fæddist árið 1939 í smábænum Bonnivale á Western
Cape í Suður-Afríku. Hann er afkomandi búa og því ljós á hörund. Eftir
listnám við Cape Town háskóla yfirgaf hann land sitt og ferðaðist vítt og
breitt um Evrópu. Hann settist að í París 1961 þar sem hann kynntist konu
sinni Yolande en hún er af víetnömsku bergi brotin. Breyten varð fljótlega
þekktur af myndlist sinni. Um svipað leyti fór hann að fást við skriftir. Árið
1964 komu fyrstu bækur hans út. Fyrir aðra þeirra, ljóðasafnið Die Yster-
koe Moet Sweet (Járnkýrin hlýtur ad svitna), hlaut hann bókmenntaverð-
laun í heimalandi sínu. Þegar Breyten ætlaði að snúa heim til að taka við
þeim var Yolöndu synjað um vegabréfsáritun á þeim forsendum að hún væri
„lituð“ og hjónaband þeirra ósiðlegt samkvæmt Suður-afrískum lögum.
Þetta atvik magnaði andstyggð Breytens á stjórnkerfi landsins og þeim
hugmyndum sem liggja til grundvallar apartheitstefnunni. Ljóðið „Bréf að
utan til slátrara" er úr bókinni Skryt (orð búið til úr orðunum öskur og skrif)
frá 1972 og er Balthazar sá sem Ijóðið er stílað á Balthazar Johannes Vorster
þáverandi forsætisráðherra Suður-Afríku.
I desember 1972 fékk Yolande þriggja mánaða landvistarleyfi. Á þeim
tíma ferðuðust þau Breyten um landið, heimsóttu bernskuslóðir hans og
styrktu samband sitt við fólk sem vann gegn aðskilnaðarstefnunni. Bókin
Seisonen in Die Paradys (Árstíð í Paradís) er byggð á dagbókarblöðum
Breytens úr þessari ferð.
Hann fór aftur til Suður-Afríku í ágústmánuði 1975 og þá dulbúinn með
falsað vegabréf. Ferðin var liður í tilraun til að mynda alþjóðleg samtök
hvítra mennta- og listamanna. Markmið þeirra átti að vera að grafa undan
stjórnarstefnu Suður-Afríku og veita afríska þjóðarráðinu ANC allan hugs-
anlegan stuðning. Ferðin endaði með því að Breyten var handtekinn og
ákærður fyrir hryðjuverkastarfsemi. Réttarhöldin voru skrípaleikur, hann
var dæmdur í níu ára fangelsisvist.
Vorið 1982 var Breyten látinn laus. Hann hefur búið í París síðan og
fengist við skrif og myndlist. Ritsmíðar hans í fangelsinu voru meðal annars
birtar í bókinni Mouroir (Biðsalur dauðans) sem kom út 1986. Bækur hans
eru fáanlegar í verslunum í Reykjavík. Lesið þær.
Samlandi Breyten Breytenbachs, rithöfundurinn André Brink, hefur sagt
um ritsmíðar hans að þær séu sprengjuveisla sem spanni litróf tungumálsins
allt frá barnagælunni til hinsta andvarpsins.
Eg vona að þessi tvö ljóð sem ég hef valið gefi einhverja mynd af kraft-
mikilli og sterkri ljóðlist Breytens, og að þau veki fólk til vitundar um að
slátrarasveinarnir eru ekki langt undan.
Sjón
83