Tímarit Máls og menningar - 01.06.1987, Page 21
Fjögrablaðasmárinn og eitursveppurinn
„Ný augu“ er metnaðarfull tilraun til að rekja fyrir rætur Fjölnis-
manna og skilja þau öfl sem hreyfðu hugsjónir þeirra og skáldskap — og
varpa um leið ljósi á hliðstæðu Rauðra penna.
Fjölnismanna biðu þau örlög að deyja vonsviknar sálir fyrir aldur fram
(Tómas, Jónas, Brynjólfur) eða daga uppi einangraður sérvitringur
(Konráð). Hugsjónir þeirra náðu ekki fram að ganga, hvort sem um var
að ræða endurreist Alþingi á Þingvöllum, stafsetningu eftir framburði,
Islandslýsingu eða kennarastörf við Lærðaskólann. „Veit ég að stuttri
stundarbið, stefin mín engir finna“ orti Jónas og um það bil sem allt var
komið um kring berst þetta sársaukavein frá Konráði: „í guðs nafni
huggaðu mig, Jónas! ég hef misst alla veröldina!"
Dauðvona neytir Kristinn hinstu krafta til uppgjörs og réttlætingar.
Stundum er eins og tíminn detti út og þetta séu sömu mennirnir, orða-
lag og búningur allur svo undarlega áþekkur, t.d. orðin sem Konráð
Gíslason hefur um vitrunina þegar hann unglingur kemst í tæri við hina
fornu texta: „það var eins og skýla væri dregin frá augum mínum“ og lýs-
ing Kristins á því þegar honum varð „allt ljóst að bragði."
Eða þegar Kristinn lítur upp úr nítjándu öldinni til að senda samtím-
anum tóninn, gera reikningsskil við gamla samherjaog verja hendur sín-
ar.
En sjálf kveðjuorðin eru orð sátta og vonar:
„Megi andi Fjölnismanna svífa yfir vötnum íslands og ljós þeirra lýsa
inn í framtíðina. . . “
VII
Andi Fjölnismanna? Eru Fjölnismenn annað en nafnið tómt á íslandi
1987? Verk þeirra eru flest komin á bak við í söfnum og fornbókasölum.
Tímaritið Fjölnir hefur ekki verið á bókamarkaði síðan 1947 og ljóð
Jónasar — eru þau ekki fyrir löngu orðin að hversdagssýn? Færibandi
orða í stjórnmálaleiðurum og minningagreinum, tekin fram þegar þarf
að ljá iðnsýningum einkunnarorð, bíómyndum titil, alþingi setningu
— gjafapappírinn sem við notum til að pakka inn hátíðleikanum og silf-
urbandið sem við hnýtum í kross og rifflum í endana með eggjárni?
Skólakerfið hefur miðlað sýnishorni af skáldinu Jónasi. En hvað um
náttúrufræðinginn og athafnamanninn? Einar Ben verður eins og sendill
í lítilli nýlenduvöruverslun í samanburði. Jónas er ekki fyrr stiginn á
land eftir fyrstu námsdvöl í Höfn árið 1837 en hann tekur að rannsaka
19