Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033
Flottir
í fötum
Frakkar
Leðurjakkar
Peysur
Belti
Bindi
Áramótafötin fyrir herrann
Frábært úrval af jakkafötum,
skyrtum og skóm
Illt umtal þykir stundum munskárra en ekkert, þótt það sé
sjaldnast meining illmælginnar.
Jafnvel tölvuárás þriðja heimsríkis og þoku-
kenndar hótanir,
sem árásinni fylgdu
vegna ósýndrar bíó-
myndar geta orðið
gróðavænlegar.
Það segir reynslastórfyrirtækisins Sony.
Og það jafnvel þótt Sony þættiverða sér til minnkunar, þegar
það kiknaði í hnjáliðunum þegar
Kim Jong-Un byrsti sig.
Allt umtalið sem af því hlausthefur breyst í ókeypis auglýs-
ingu af stærri gerðinni.
Netútgáfa bandaríska kvik-myndarinnar „The Inter-
view“ sópar nú fúlgum fjár í hirslur
Sonys.
Sama er að segja um sýningarmyndarinnar í völdum kvik-
myndahúsum.
Nú þarf bara að fylgja góðribyrjun fast eftir, þar til muld-
ur áhorfenda um að myndin sé með
þeim lakari fer að draga úr upp-
gripinu.
Því ekki er hægt að treysta því aðhinn ástsæli, virti og dáði Kim
Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu,
gefi kost á sér í nýja auglýsinga-
lotu, þótt liðlegur sé.
Þótt hann sé bæði virtur, dáður,ástsæll, elskaður og einkar lið-
legur.
Kim Jong-Un
Virtur og dáður
auglýsir best
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.12., kl. 18.00
Reykjavík 5 rigning
Bolungarvík 5 súld
Akureyri 8 skýjað
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló -7 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 heiðskírt
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -18 heiðskírt
Lúxemborg 0 léttskýjað
Brussel 2 skýjað
Dublin 2 léttskýjað
Glasgow -1 þoka
London 5 heiðskírt
París 3 alskýjað
Amsterdam 3 léttskýjað
Hamborg 1 heiðskírt
Berlín -5 skýjað
Vín -5 skafrenningur
Moskva -15 léttskýjað
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 8 heiðskírt
Barcelona 12 heiðskírt
Mallorca 10 léttskýjað
Róm 5 heiðskírt
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg -27 léttskýjað
Montreal -7 léttskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 0 skýjað
Orlando 25 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:22 15:40
ÍSAFJÖRÐUR 12:06 15:06
SIGLUFJÖRÐUR 11:50 14:47
DJÚPIVOGUR 10:59 15:01
Bensínlítrinn
lækkaði í gær um
þrjár krónur þeg-
ar olíufélögin
héldust í hendur
við að lækka verð
á lítranum niður í
206 krónur. Lítr-
inn kostar 208
krónur hjá Shell.
Hjá Orkunni, Atl-
antsolíu og ÓB
munar tíu aurum en 30 aura munur
er ef verslað er við stóru olíufélögin,
N1 og Olís. Sama verð er á dísil-
lítranum hjá öllum, 209 krónur, en
munurinn á hæsta verði og lægsta er
40 aurar. Lækkunin kemur til vegna
meiri lækkunar á heimsmarkaðs-
verði olíu. Orkan hefur til dæmis
lækkað verð á bensínlítranum um 44
kr. síðan í júní eða tæp 18% en þá
stóð heimsmarkaðsverð í hæstu
hæðum. Verð á dísillítranum hefur
lækkað um tæp 14% á meðan
Bandaríkjadollar hefur styrkst um
rúmlega 11% síðan í júní. Sam-
kvæmt tölum FÍB var meðalálagn-
ing olíufélaganna fyrstu tvær vik-
urnar í desember af hverjum lítra
44,83 krónur. benedikt@mbl.is
Enn lækk-
ar verð á
lítranum
Lítill munur á
verði olíufélaga
Dýr dropi Bensín-
verð lækkar enn.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Þeir ökumenn sem urðu uppvísir að
því að keyra ökutæki sín yfir leiði í
Gufuneskirkjugarði hafa nú báðir
gefið sig fram við lögreglu og voru í
gær kærðir af hálfu Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma.
„Lögreglan hefur fengið öll okkar
gögn í hendur og mun hún kalla til
þá tvo ökumenn sem hafa gefið sig
fram til skýrslutöku. Síðan búumst
við við að sátt náist við ökumennina
um að þeir greiði það tjón sem þeir
ollu,“ segir Þórsteinn Ragnarsson,
forstjóri kirkjugarðanna.
„Skemmdirnar eru nánast ein-
göngu á jarðveginum og ég veit ekki
til þess að aðrar skemmdir hafi orð-
ið. Við áttum okkur samt ekki alveg
á umfangi tjónsins á meðan snjórinn
liggur yfir þessu öllu og sjáum það í
raun ekki fyrr en hann leysir.“
Aðspurður hvort hann telji að
kirkjugarðarnir beri einhverja
ábyrgð á tjóninu vegna ónógra
merkinga við ökuleiðir segir Þór-
steinn: „Það má ugglaust gera betur
við merkingar en við reyndum að
koma þeim skilaboðum áleiðis að
hliðarleiðir í kirkjugörðunum yrðu
lokaðar á meðan aðalleiðir yrðu opn-
ar. Á næsta ári stefnum við á að
setja nýjar merkingar til að reyna að
fyrirbyggja að svona eigi sér stað.“
Erfitt að átta sig á umfangi tjónsins
Ökumenn kærðir til lögreglu „Má ugglaust gera betur við merkingar“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Djúp Hjólförin lágu yfir mörg leiði.