Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.12.2014, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Pétur Friðgeirsson Bylting Eiki Einars & Byltingarboltarnir boða byltingu ljóssins, eins og lagatextarnir bera með sér. eru aðrir í dag heldur en á fyrstu plötunni. Það er bara opið og frjálst hverjir eru með og taka þátt. Það getur verið allt frá almannatengli eða sendlinum upp í trommuleik- arann,“ segir Eiki um þessa óhefð- bundnu hljómsveit. Eiki segir tón- listina vera nokkurs konar afsprengi pönksins. „Maður ólst upp í pönkgeiranum og var einn þeirra sem smituðust af því. Ég spilaði pönkið í nokkur ár,“ segir Eiki. Hann segist þó ekki vera pönkari lengur heldur hafi hann róast og farið á breiðari grunn tón- listar. „Svo er maður svo ofboðs- legur og yfirlýstur bítlaaðdáandi og ég hef verið það síðan ég var pinkulítill.“ Fyrir tæpum tuttugu árum stofnaði Eiki Bítlaklúbbinn og segist aldrei fá leiða á tónlist Bítlanna. „Þetta er svo ofboðslega breið lína og mikil uppsprettulind sem tónlist þeirra fæðist í að það er nóg í að sækja,“ segir Eiki og það- an sækir hann gjarnan innblástur fyrir eigin tónsmíðar eins og glögg- ir greina þegar hlustað er á lög Eika & Byltingarboltanna. Tónlistin út um munninn Þegar Eiki semur tónlist er ekki ákveðin formúla að því hvern- ig hann fer að. Suma daga vaknar hann einfaldlega með laglínu í koll- inum. „Ég segi nú bara eins og John Lennon þegar hann var spurður að því hvernig lögin yrðu til. Hann sagði að þetta kæmi bara út um munninn á sér. Maður opnar bara munninn og þá er þetta kom- ið. Þetta bara gerist.“ Eiki segist þakklátur fyrir að hafa fæðst með þá náðargáfu að geta samið tónlist. „Ég byrjaði að spila á gítar fimm- tán ára gamall með fyrstu þrjú gripin sem ég lærði og út úr þeim myndaðist fyrsta lagið,“ segir Eiki sem hefur varla stoppað síðan þá. Lifandi boðskapur byltingar Nöfnin á lögunum eru óvenju- leg og kvikna ýmsar spurningar um lög á borð við Straujárnið, Vaknið og Leikhús hugans, svo ekki sé minnst á nafn plötunnar sjálfrar, Maður lifandi! „Í því felst meðal annars merking þess að vera mað- ur lifandi. Að vera lifandi maður en ekki dauður. Þetta er aðeins dýpri nálgun á það,“ segir Eiki. „Til dæmis er lagið Vaknið um það að vakna til lífsins og vera það sem líf- ið er, tengja sig við það og ganga fram í því.“ Það er ekki laust við að Bylt- ingarboltarnir boði byltingu í gegn- um tónlistina og segir Eiki að tón- listin sé í raun ein tegund fjölmiðlunar. „Boðskapur okkar sækir í kristna trú. Við trúum á Jesú Krist og höfum fengið snert- ingu frá honum og upplifað lífið í honum og Jesús Kristur er mesti byltingarmaður sem hefur birst hér á jörðinni. Hann boðaði hvorki meira né minna en sköpun nýs him- ins og nýrrar jarðar og að allt yrði gert nýtt,“ segir Eiki og vísar þar til orða Biblíunnar. „Hann mun eyða ríki myrkursins og gera allt að ríki ljóssins með sér og í sér og þess vegna göngum við í fótspor hans með því að gerast þessir um- byltingarsinnar og staðfesta þetta.“ Eiki spyr því hverjir vilji vera með í byltingunni sem hann segir ná til allrar eilífðar og snúist um að halda á lofti því jákvæða og góða. „Af- rakstur byltingarinnar er að við fáum að ríkja og lifa með Kristi Jesú að eilífu í hinum komandi heimi því þessi heimur mun líða undir lok og að engu verða,“ segir Eiki. Aðspurður hvort hann skilji það svo að menn eigi eftir að lifa á jörðinni til eilífðarnóns útskýrir hann það betur: „Við deyjum nátt- úrlega hér á jörðinni en lifum að ei- lífu í andanum. Við rísum upp sem ný sköpun í Kristi,“ segir Eiki eða Eiríkur Einarsson, laga- og texta- höfundur hljómsveitarinnar Eiki Einars & Byltingarboltarnir. Bylt- ingin er því ekki boðuð með öðrum hætti en í textum laganna og hver sem vill getur lagt málefninu lið, til dæmis með því að hlusta. Tónleikar sveitarinnar verða nokkrir á næsta ári og er best að fylgjast með dag- setningum á Facaebook-síðu henn- ar undir leitarstrengnum Eiki Ein- ars og Byltingarboltarnir. REUTERS Krossinn Að sögn Eika er Jesús Kristur mesti byltingarmaður allra tíma. „Jesús Kristur er mesti byltingarmaður sem hefur birst hér á jörðinni.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Uppskriftina í heild sinni ásamt eldunaraðferð er að finna á www.holta.is/uppskriftir. Rauðvínssoðinn, reyktur kjúklingur með skallottulauk og sveppum. Hvað á að gera við jólatrén þegar jól- in eru búin? Nú auðvitað að setja þau út á götu og bíða eftir að þau verði sótt. Eða hvað? Á vefsíðunni This Old House (www.thisoldhouse.com) eru nokkrar hugmyndir er lúta að nýtingu gamalla jólatrjáa. Í fyrsta lagi má hirða af því nálar og greinar til föndurs. Barr- nálar eru auk þess vel til þess fallnar að enda sem jarðvegur fyrir plönturn- ar úti í garði, til dæmis fyrir jarðar- berin. Þær hylja jarðveginn ágætlega og ættu að geta haldið sniglunum frá! Svo má sannarlega koma trénu fyrir úti í garði og koma fyrir á því neti með fuglafóðri í. Það er sannar- lega margt galnara en að saga stofn- inn niður og móta úr honum beð eða koma hringjunum fyrir meðfram göngustígum í garðinum. Þetta og margt fleira á vefnum This Old House. Vefsíðan www.thisoldhouse.com Morgunblaðið/Eggert Tré Nýta má gömul jólatré í ótrúlegustu hluti, eins og lesa má um á vefsíðunni. Eitt og annað má endurnýta Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.