Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 24

Morgunblaðið - 30.12.2014, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stofnanir hafatilhneigingutil að þenjast út og vaxa. Þessi til- hneiging, sem er að kalla má eðlislæg, helgast ekkert endilega af þörf, gagnsemi eða nauðsyn. Þess vegna er hvergi meiri þörf á að- haldi en í ríkisrekstri. Ráðdeild kemur ekki af sjálfu sér. Í Morgunblaðinu í gær lýsa forustumenn fjárlaganefndar því hvernig áform hagræðing- arhóps ríkisstjórnarinnar hafi strandað á andstöðu hags- munaafla í kerfinu. „Við höfum reynt að skera niður en reynslan hefur verið sú að undirstofnanir ríkisins verja sig með kjafti og klóm. Kerfið ver sjálft sig og notar fjölmiðla óspart til að mynda samúð með viðkomandi stofnun,“ segir Vig- dís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis. Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar, tekur undir orð Vigdísar. „Þeg- ar á hólminn er komið eru þau öfl sem halda utan um hagsmuni einstakra stofnana mjög sterk,“ segir hann og kallar eftir banda- mönnum til að ná niður út- gjöldum. Hagræðingarhópurinn spratt upp úr stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar, var stofnaður í júlí 2013 og skilaði tillögum í nóvember það ár. Vigdís segir að það hafi „ekk- ert gengið í niður- skurðinum“ og rek- ur ástæðurnar: „Það er enginn tilbúinn að gefa eft- ir. Þrátt fyrir hið augljósa markmið um sparnað og ráð- deild í ríkisrekstri er það alltaf svo að þegar komið er að ákveðnum stofnunum, eða ákveðinni ákvarðanatöku, er sagt: „Nei, þetta eru mikilvæg- ustu stofnanirnar. Við megum ekki skera hér niður.““ Guðlaugur Þór tekur sem dæmi um þessa tregðu að Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi bent á að hægt hefði verið að loka Íbúðalánasjóði og þar með skrúfa fyrir framlög til hans sem á þessu ári verða 5,3 milljarðar króna, en hann hefði ekki orðið var við stuðning við það hjá að- ilum vinnumarkaðarins. Lýsingar Vigdísar og Guð- laugs Þórs hljóta að hljóma kunnuglega í eyrum margra, sem lagt hafa með góðum ásetn- ingi í hagræðingarleiðangra. Talað er fjálglega um forgangs- röð, en þegar á hólminn kemur og hagsmunaöflin komast á skrið hefur allt forgang þannig að eftir standa orðin tóm. Sá sem borgar brúsann situr líka eftir. Fáir virðast þó eftir til að gæta hagsmuna skattborgarans og þó hefur hann í hlutverki kjósandans kosið sér fulltrúa til að halda málstað sínum á lofti í þessari baráttu. Þegar kerfið fer í sjálfsvörn er hætt við að hagur skatt- borgarans verði undir} Hagræðing í strand Grikkland er aft-ur í uppnámi. Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn hótar því enn á ný að setja „björgunar- aðgerðir“ sínar á ís þar til ný ríkisstjórn hefur tekið til starfa í Grikklandi eftir þær kosn- ingar, sem stefnir í innan fárra vikna. Hin formlega ástæða kosn- inganna er sú að þrátt fyrir þrjár tilraunir og mikinn þrýst- ing á einstaka þingmenn náðist ekki meirihluti á þingi fyrir for- setaframbjóðanda grísku ríkis- stjórnarinnar. En ástæður eld- anna sem undir loga eru mikil óánægja Grikkja vegna byrð- anna sem þeir voru þvingaðir til að axla, svo að evrópskir kröfu- hafar, ekki síst bankar, fengju sitt. Mikið verðfall varð í grísku kauphöllinni þegar ljóst var að boða yrði til kosninga. Kosn- ingaspár benda til þess að Bandalag róttækra vinstri- flokka muni vinna mest á í kosn- ingunum, án þess þó að það muni duga þeim til myndunar ríkisstjórnar. Grískar kosninga- reglur eru mjög óvenjulegar. Þær ákvarða að sá flokkur sem mest- um árangri nær í kosningum hverju sinni skuli fá í sinn hlut fjölda þing- sæta til viðbótar þeim sem bein úrslitin bjóða. Sigurvegarinn hefur því mun sterkari stöðu í þinginu en leiðir af kosning- unum, en aðrir flokkar standa lakar sem því nemur. Hugsunin er sú að ýta megi undir stjórn- málalegan stöðugleika með þessum hætti. Talið er að sigur og uppbótin muni þó ekki duga vinstrabandalaginu Syriza og leiðtoga þess, Alexis Tsipras. Kosningarnar muni því ýta und- ir uppnám en ekki stöðugleika. Sú aðhaldsstefna, sem Grikkir hafa búið við undanfarin fjögur ár, að kröfu ESB og AGS, verð- ur höfuðmál kosninganna. Stjórnarflokkarnir telja óhjá- kvæmilegt að fylgja henni áfram. Ekki er talið að kosningabar- áttan muni snúast um aðild að ESB né um evruna. Helstu valdamönnum í Brussel og Berl- ín er þó ekki rótt því andstaða við aðhaldsstefnuna fer vaxandi í ESB, ekki síst í Frakklandi. Eftir 7 ára basl sjá Grikkir ekki enn til lands} Enn engjast Grikkir A lgengt er að sæmdartitillinn maður ársins falli í skaut fólki sem hefur unnið afrek á síðustu mánuðum ársins. Það sem gerist í upphafi ársins er yfirleitt gleymt í árslok, því fljótt fennir í flestra spor. Að þessu sinni er valið þó mjög auðvelt: sjálf- kjörinn er Skarphéðinn Andri Kristjánsson. Þau Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, unnusta hans, lentu í bílslysi við Fornahvamm í Norður- árdal í Borgarfirði 12. janúar og lést Anna sam- stundis. Skarphéðinn, sem var átján ára, var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík, þar sem hann lést af völdum áverka sinna 28. janúar. Fyrir lá að líffæri hans mætti nýta til ígræðslu og gekk það eftir. Sex manns í Svíþjóð og Noregi nýtt- ust líffæri Skarphéðins, meðal annars 16 ára pilti sem fékk hjarta hans. „Hann var með þessa ósk. Við vorum búin að ræða þetta hér á heimilinu. Hann gaf blóð og hann vildi gefa úr sér líf- færin … Um leið og við vissum í hvað stefndi í fyrradag þá létum við strax vita af þessu … Sex manns koma til með að lifa vegna gjafa Skarphéðins og þar á meðal 16 ára strákur sem fær hjartað hans,“ skrifaði móðir Skarphéðins á Facebook – og var vitnað til þessara orða meðal annars í fréttum á mbl.is. Sjúkraflutningamenn, lögregluþjónar og læknar eru alla daga að bjarga lífi fólks og eiga allan heiður skilinn. Það er hins vegar afstaða Skarphéðins heitins sem gerir afrek hans svo stórbrotið. Minningargreinar um Skarp- héðin og Önnu Jónu sem birtust hér í Morgun- blaðinu voru sérstæðar örlagasögur og milli línanna sagði einfaldlega að eigi má sköpum renna, svo vitnað sé til Sturlungu. Enginn fær forlög sín flúið. Vitur maður sagði hér í blaðagrein fyrr á þessu ári að það dýrmætasta sem ein mann- eskja gæti gert væri að treysta öðrum fyrir þjáningum sínum og vonum. Þetta er bæði satt og rétt og rímar við skilaboð Biblíunnar: Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Slíkt verður þó ekki nema viljnn sé öllum ljós eins og var í tilviki því sem hér er gert að umfjöllunarefni. Þegar þetta er skrifað síðdegis á mánudegi hafa fjölmiðlar tilnefnt menn ársins á ýmsum sviðum. Á vef Vísis er meðal annars hægt að velja dáðan lækni, landsliðsþjálfara í knatt- spyrnu, hjálpsama hjúkrunarkonu og göngugarp sem gaf höfundarlaun fyrir bók sína til krabbameinsveikra barna. Á Kjarnanum eru axarsköft til að mynda stjórnmála- manna tilgreind í hótfyndnistíl og Frjáls verslun telur Ró- bert Guðfinnsson á Siglufirði mestan afreksmann við- skiptalífsins á árinu 2014. Verður þá – að breyttu breytanda – að nefna að örlög sumra þeirra baróna í bis- nesslífi þjóðarinnar sem útnefndir hafa verið viðskipta- menn ársins hafa orðið fremur dapurleg. En einmitt í því samhengi verður afstaða sú sem Skarphéðinn Andri Kristjánsson tók – og varð hans vilji – til eftirbreytni og gerir hann að hetju Íslands anno domini 2014. sbs@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson Pistill Maður ársins bjargaði lífi sex manns STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnarflokkarnir tveir ogmið- og hægriflokkarnirfjórir, sem voru við völd íSvíþjóð á síðasta kjör- tímabili, hafa náð samkomulagi um samstarf á þingi landsins til að auð- veldara verði fyrir minnihlutasjórn að halda völdunum. Samkomulagið felur ennfremur í sér að ekki verður efnt til aukaþingkosninga 22. mars eins og Stefan Löfven forsætisráð- herra hafði boðað eftir að Svíþjóðar- demókratarnir felldu fjárlaga- frumvarp minnihlutastjórnar Jafnaðarmannaflokksins og Um- hverfisflokksins fyrr í mánuðinum. Meginmarkmiðið með sam- komulaginu er að einangra frekar Svíþjóðardemókratana og draga úr áhrifum flokksins eftir að hann komst í oddastöðu á þinginu í kosn- ingum í september. Hann varð þá þriðji stærsti flokkur landsins, með tæpra 13% fylgi, eftir að hafa lagt áherslu á andstöðu við stefnu sænskra stjórnvalda í innflytjenda- málum. Skoðanakannanir benda til þess að fylgi flokksins myndi aukast um nokkur prósentustig til viðbótar ef kosið væri nú. Camilla Sandström, lektor í stjórnmálafræði við Umeå-háskóla, segir að með samkomulaginu hafi flokkarnir sex komið í veg fyrir auka- kosningar sem hefðu að miklu leyti snúist um innflytjendamálin. „Við hefðum talað mikið um innflytjenda- málin út frá forsendum Svíþjóðar- demókratanna ef boðað hefði verið til aukaþingkosninga,“ segir Sand- ström. Hún telur þó að flokkarnir komist ekki hjá því að ræða innflytj- endamálin þótt hætt hafi verið við aukakosningar. Eitt kosningamálanna 2018 Leiðtogar flokkanna kynntu samkomulagið á laugardaginn var og það á að gilda til ársins 2022. Á þeim tíma skuldbinda flokkarnir sig til að greiða ekki atkvæði gegn fjárlaga- frumvörpum minnihlutastjórnar- innar, þannig að hún þurfi ekki að reiða sig á stuðning Svíþjóðar- demókratanna. Þeir lofa því einnig að starfa saman í varnar-, lífeyris- og orkumálum. „Það er svolítið undarlegt að innflytjendamálin skuli ekki vera hluti af samkomulaginu. Það er mjög brýnt að við ræðum þau mál,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Sandström. Hælisumsóknum hefur fjölgað mjög í Svíþjóð á síðustu árum og fjölgunin er einkum rakin til þess að stjórn mið- og hægriflokkanna ákvað á síðasta kjörtímabili að veita öllum hælisleitendum frá Sýrlandi dvalar- leyfi í Svíþjóð. Flestir umsækjend- urnir eru flóttamenn frá Sýrlandi en hælisleitendum frá Erítreu hefur einnig fjölgað. Árið 2012 voru hælis- umsóknirnar um 44.000, árið eftir 55.000 og í ár er gert ráð fyrir að þær verði 83.000. Talið er að umsókn- unum fjölgi í rúm 100.000 á næsta ári. Flestir Svíar eru stoltir af að- stoð þeirra við flóttafólk frá stríðs- hrjáðum löndum og Fredrik Rein- feldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Hægriflokksins, hefur sagt að landið hafi alla burði til að taka við svo mörgum flóttamönnum. Margir hafa hins vegar kvartað yfir því að Svíar hafi ekki rætt nægilega hvernig taka eigi á afleiðingum þess- arar miklu fjölgunar innflytjenda. Elin Wihlborg, prófessor í stjórnmálafræði við Linköping- háskóla, spáir mikilli umræðu um innflytjendamálin fyrir næstu kosn- ingar árið 2018, meðal annars vegna vandamála sveitarfélaga sem hafa kvartað yfir því að fjölgun innflytj- enda hafi stuðlað að miklum húsnæðisskorti. Komast ekki hjá um- ræðu um flóttafólkið AFP Lofa samstarfi Stefan Löfven forsætisráðherra og Anna Kinberg Batra, verðandi leiðtogi Hægriflokksins, kynna samkomulagið á blaðamannafundi. Mikael Gijam, prófessor í stjórn- málafræði við Gautaborgarhá- skóla, telur að með samkomu- laginu við stjórnarflokkana um að greiða ekki atkvæði gegn fjárlagafrumvörpum þeirra hafi mið- og hægriflokkarnir fjórir veikt stöðu sína í því hlutverki að veita stjórninni aðhald. „Virkt lýðræði krefst stjórnar- andstöðu sem spyrnir við fót- um,“ hefur Svenska Dagbladet eftir Gijam. „Hvers vegna ætti stjórnin að gera sitt besta ef hún þarf ekki að vera hrædd við stjórnarandstöðuna? … Í ákveðnum tilvikum kann svo að fara að minnihlutinn ráði ferð- inni gegn vilja meirihlutans.“ Anne Kinberg Batra, verðandi leiðtogi Hægriflokksins og forsætisráðherraefni mið- og hægriflokkanna, hefur verið gagnrýnd fyrir að auka áhrif vinstriflokkanna en hún segir samkomulagið vera nauðsyn- legt og „sigur fyrir Svíþjóð“. Stjórnarand- staða veikist UMDEILT SAMKOMULAG

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.