Morgunblaðið - 30.12.2014, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2014
Föstudaginn 24.
janúar sl. birtist í
Morgunblaðinu grein
sem fyrrverandi
bæjarstjóri á Seyðis-
firði, Þorvaldur Jó-
hannsson, skrifaði um
hvað ótryggt ástand á
Fjarðarheiði væri far-
ið að valda miklum
vandræðum fyrir við-
komustað Norrænu.
Áður hefur greinarhöfundur lýst
áhyggjum sínum af því að Seyðfirð-
ingar eigi nú í vök að
verjast eftir að fréttir
bárust af því að stjórn-
ir Smyril Line og
Fjarðabyggðarhafna
væru að skoða mögu-
leika á því að finna
annan viðkomustað
fyrir ferjuna. Þing-
menn Norðaustur-
kjördæmis sem segjast
alltaf lýsa áhyggjum
sínum af stöðu Seyðis-
fjarðar í byggðarlegu
tilliti hafa aldrei fylgt
þessu máli eftir í samgöngunefnd
Alþingis í hvert skipti sem von-
sviknir heimamenn ítreka að slysa-
hættan á Fjarðarheiði sé orðin allt-
of mikil til að þeir geti treyst á
sjúkraflugið. Á jóladag var ekki al-
veg hættulaust fyrir björgunar-
sveitina Ísólf að flytja fárveikan
mann frá Seyðisfirði yfir heiðina
þegar sjúkraflugvél beið á Egils-
staðaflugvelli. Möguleikar á því að
Seyðisfjörður geti næstu áratugina
orðið framsækinn athafnabær
minnka með hverjum degi sem líð-
ur án þess að áhyggjufullir heima-
menn fái að vita hvort Vegagerðin
vilji mæla með 12-13 km löngum
jarðgöngum undir Fjarðarheiði eft-
ir 3 ár eða styttri göngum sem
fljótlegra væri að grafa í tvennu
lagi inn í botn Mjóafjarðar frá
Seyðisfirði og úr Slenjudal á Hér-
aði. Með þeim yrði strax stigið
fyrsta skrefið til að losna við
Fagradal sem er engu betri en
Fjarðarheiði. Þótt Seyðfirðingar
vilji hið snarasta afskrifa þennan
erfiða þröskuld sem stendur í 640
m hæð skiptir líka miklu máli að
dánarvottorð verði við fyrsta tæki-
færi skrifað á Fagradal. Fyrir
Austfirðinga og vonandi fleiri
landsmenn yrði það mikill léttir.
Tímabært er að allir þingmenn
Norðausturkjördæmis svari því af-
dráttarlaust hvort þeir vilji standa
saman og flytja þingsályktunar-
tillögu um að Seyðfirðingar og allir
heimamenn búsettir norðan Fagra-
dals fái greiðari aðgang að stóra
Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað. Á þessu vandamáli skal ríkis-
stjórnin taka hið snarasta og hefja
undirbúning að gerð styttri veg-
ganga til að leysa af hólmi Fjarð-
arheiði og Fagradal sem verður
líka um ókomin ár ávísun á enn
frekari vandræði. Í nærri 400
metra hæð milli Egilsstaða og
Reyðarfjarðar kemur mikið fárviðri
í veg fyrir að sjúkraflutningamenn
geti keyrt barnshafandi konum á
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaup-
stað þegar veðurspánum er ekki
treystandi. Norðan gömlu Odds-
skarðsganganna í 620 m hæð hafa
bílstjórar sjúkrabifreiða á leið til
Neskaupstaðar enga tryggingu fyr-
ir því að þeir sleppi óhappalaust
niður brekkurnar í fljúgandi hálku
með fárveikan mann. Óhjákvæmi-
legt er að menn geri ráð fyrir
tvennum göngum inn í Mjóafjörð
sem tryggja Seyðfirðingum, íbúum
Fjarðabyggðar, suðurfjarðanna og
Fjórðungssjúkrahúsinu greiðari að-
gang að Egilsstaðaflugvelli og
sjúkrafluginu, fari svo að ákvörðun
um útboð Fjarðarheiðarganga liggi
fyrir eftir 3-4 ár. Þá er viðbúið að
þetta verði lengstu jarðgöngin á Ís-
landi. Talið er að vinna við 12-13
km löng veggöng undir heiðina
milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða
geti tekið meira en 5 ár verði veg-
urinn á þessari leið lækkaður um
400-500 metra. Of mikil veðurhæð
og meira en 8 metra snjódýpt í 640
metra hæð á Fjarðarheiði mun
halda áfram að hrella vonsvikna
Seyðfirðinga þvert á allar veður-
spár. Stuðningsmenn hálendisveg-
arins og Axarvegar sem vilja með
falsrökum sýna fram á hlýnandi
veðurfar um allt land næstu 50 árin
reyna árangurslaust að afskræma
þá staðreynd að hindrunarlausir
heilsársvegir eiga ekki heima í
þessari hæð yfir sjávarmáli. Svona
rangfærslur sem stuðningsmenn
fjallveganna grípa til eru settar
fram gegn betri vitund í þeim til-
gangi að magna upp pólitískan
hrepparíg í öllum landshlutum.
Fyrir samgöngumál fjórðungsins er
það skaðlegt að sveitarstjórn
Fljótsdalshéraðs skuli tefla hug-
myndinni um Sprengisandsveg
milli Egilsstaða og Reykjavíkur
gegn jarðgöngum á Mið-Austur-
landi, suðurfjörðunum og í fleiri
landshlutum. Ákveðum strax nýja
brú yfir Lagarfljót.
Skrifum dánarvottorð á Fagradal
Eftir Guðmund
Karl Jónsson »Möguleikar á því að
Seyðisfjörður geti
næstu áratugina orðið
framsækinn athafnabær
minnka með hverjum
degi sem líður.
Guðmundur K. Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Matvörur eru fluttar inn til
að innflytjendur fái pen-
inga – þeir fá gjaldeyri fyr-
ir vörum sem nóg er af í
landinu eins og svínaham-
borgarhryggjum. Að falsa
vörumerki þykir ekkert
mál. Ég kaupi yfirleitt frá
Norðlenska – hélt af gam-
alli reynslu að þar væru
matvæli 1. flokks. Eftir
elskuleg boð frá börnum og
góða veislu á aðfangadag
ákvað ég að vera heima á
jóladag og keypti bita af
hamborgarhrygg frá Norðlenska.
Þegar ég tók hann úr pakkningunni
virtist hann soðinn – svo ég setti
upp gleraugun sem ég nota yfirleitt
ekki. Þar stóð undir stóru merki
Norðlenska – með mjög smáu letri
– upprunaland Spánn.
Ég borðaði yfirreyktan saltpækil
sem hélt fyrir mér vöku heila nótt
vegna þess að það þarf að drekka
eftir að hafa borðað salt. Ekki
segja – borðar þú ekkert í útlönd-
um – ertu sveitamaður? Hva, hva,
hva.
Nei, ég einfaldlega treysti ekki
löndum mínum, því miður, til að
flytja inn fyrsta flokks matvöru –
eða betri en við höfum hér – og fyr-
irgefið – trúi þeim til að fá það sem
aðrir telja ekki söluhæft og selja á
hæsta verði hér!
Erla Magna Alexandersdóttir.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Hvers vegna eru Íslendingar á móti
innlendri framleiðslu- einir þjóða?
Svínakjöt Hvaðan ætli þetta kjöt komi?
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is
Plast geymlukassar
margar gerðir og stærðir
Heildsöludreifing