Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Síða 39

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Síða 39
inga fyrir lífi sínu, baráttu sem breytir Bjarti lítið eitt og kemur honum raunar til að hvika frá hetjuskap sínum. Við getum litið svo á að í því, í samskiptum Bjarts við Astu Sól- lilju og sáttum við hana, felist eini sigur hans, þótt sá sé unnin í skugga sorgarinnar. En það er varla hetjusaga. í heimi hetjusögunnar er gildi hetjuskap- arins ekki dregið í efa. Hetjuskapurinn er hreinlega grunnþáttur hins mannlega; til þess að vera fullgild manneskja þarf maður að vera hetja. Fyrir löngu reyndi ég í grein að færa rök að því að grundvallarhugmynd Sjálfstœðs fólks, sú hugmynd sem ekki er dregin í efa í heimi þess verks, sé að til þess að verða manneskja þurfi maðurinn að geta elskað (1977). Er sú hugmynd framandi í heimi hetjusögunnar? Ekki með öllu. Danski fræðimaðurinn Vilhelm Grpnbech sýnir fram á það með traustri röksemda- færslu í riti sínum um hugmyndaheim ger- mana hinna fornu, Vorfolkeæt i oldtiden, að ástin á frændunum, frændgarðinum, hafi verið grundvöllur í þeirri samfellu hug- mynda sem voru frumstoðir heimsmyndar- innar, sem eru: friður (og þar með ást) ættarinnar, sæmdin (sem felur í sér hefnd- arskylduna, ef sæmd ættarinnar er skert), og hamingjan sem felst í því að geta gætt hvors tveggja, friðar og sæmdar. Grpnbech ber saman þessa fomöld og nútímann með því að segja: til þess að geta verið frændur þurfum við fyrst að vera manneskjur; en til þess að geta verið manneskjur þurftu þeir fyrst að vera frændur (1909-1912,1, 208). Hitt er svo annað mál að frá slíkum hug- sjónum, sem birtast í bestu íslendingasög- um, til manndrápsgleði dróttkvæða og margra víkingasagna er langur vegur. En það er ekki bara upplausn frændgarðs- ins sem einkennir heim Sjálfstœðs fólks. (Hún kemur þar reyndar skýrt fram í upp- reisn Helga Guðbjartssonar gegn föður sín- um og búskap hans, í brottrekstri Astu Sóllilju, brottflutningi Nonna). Skáldsagan, hin gagnrýna skáldsaga, snýstgegn hefðum og gildum samfélagsins, gegn undirstöðun- um sem reynast hverfast um eigingimina, þessi saga afneitar eigingiminni og öllu sem af henni leiðir, en krefst óeigingjamrar ástar af manneskjunni. Uppreisnarsagan Sjálfstœttfólk er þá líklega, þegar allt kemur til alls, í gervi hetjusögu, að snúast á sveif með þeim sannkristnu bókmenntum sem ævinlega hafa verið að andæfa grundvall- arhugsjón hetjuskaparins. En í leiðinni hef- ur sagan fært okkur nútímahetju sem er engum ólíkari en Hvítakristi: Bjart, sem kemur fyrir sjónir sem kómísk persóna sem lifir í misskilningi, verður tragíkómískur af því að fórnir hans hafa sorglegar afleiðingar fyrir alla hans nánustu, en endanlega trag- ískur af því að hann reynist vera manneskja sem getur elskað, þrátt fyrir allt. Hetjulegur er hann af því að hann getur „horfst í augu við þýngstu reynslu og algerðan ósigur í lífí sínu, bregður sér hvorki við sár né bana; í því er falinn manndómur hans og verð- skuldan,“ eins og sagði í skilgreiningu Halldórs Laxness á hetjuskap örlagatrúar- mannsins, sem fyrr var rakin, en sá þáttur hetjuhugsjónarinnar stendur óhaggaður í lok Sjálfstœðs fólks. VI Á milli Sjálfstœðsfólks og Gerplu er heims- styrjöld og atómsprengja, enda er Gerpla líklega bölsýnasta saga Halldórs Laxness, jafnframt því að vera ein sú skoplegasta. Ekki þarf að rekja það hér með hverjum hætti Gerpla vísar til fornra sagna, en etv. TMM 1992:3 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.