Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Síða 52

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1992, Síða 52
um það hvernig markinu skal náð og hveijir þurfi meira. Mál og hugsun ólíklegustu aðila mótast nú orðið af einhverjum markaðshugmynd- um. Á prestastefnu í júní sl. var t.d. rætt um efni sem nefndist: Sókn á markaðstorgi guðanna. Sífellt fjölgar samsettum nýyrð- um, sem byija á töfraorðinu markaður. Til gamans og fróðleiks eru nokkur dæmi um þetta tínd til í ramma hér fyrir neðan. Flest þessara dæma eru ný af nálinni og tala sínu máli um hve hugleikinn markaðurinn er þeim sem ræða efnahags- og viðskiptamál í fjölmiðlum. Markaðsaðlögun, markaðsathugun, markaðsátak, markaðsáætlun, mark- aðsfræði, markaðsfræðingur, mark- aðsfrömuður, markaðsgreining, mark- aðsherferð, markaðsklúbbur, mark- aðslausnir, markaðskönnun, markaðs- maður, markaðsmöguleikar, mark- aðsnám, markaðsrannsókn, markaðs- ráð, markaðráðgjafi, markaðssam- starf, markaðssetning, markaðssókn, markaðsstefnumörkun, markaðsstjóri, markaðsstjórnun, markaðsstríð, mark- aðsstörf, markaðstækni, markaðs- þekking, að markaðstengja, markaðs- væða. Eins og orðalistinn vitnar að sínu leyti um er markaðssetning oft rædd sem fræðilegt, heillandi og mikilvægt viðfangsefni. Fjöl- miðlar umbúðaþjóða lifa og dafna á auglýs- ingatekjum og gera því sitt til þess að almenningi skiljist að góð kaup og fjölþætt markaðsstarfsemi sé mál málanna. Heims- frægir álitsgjafar og kenningasmiðir eru oftar kallaðir til landsins til að fjalla um þau fræði en nokkur önnur. Frá síðustu árum má nefna fyrirlesara og kenningasmiði eins og Warren Bennis, John Naisbitt, Kenichi Ohmae og Jack Trout. Japanir teljast hin sigursæla fyrirmynd allra sem blása til markaðssóknar. Því er fróðlegt að skoða ráð dr. Kenichi Ohmae til Islendinga eins og þau birtast í grein í kynn- ingarriti Stjómunarfélags íslands. „Þið haf- ið hugsað ykkur að selja vatnið ykkar til útflutnings. Það bragðast miklu betur en vatnið sem ég get drukkið hér í Tokýó. Frakkar flytja vatnið sitt til Japan þar sem það selst — og er verðlagt — eins og ilm- vatn. Hvað þurfið þið að borga mikið fyrir drykkjarvatn á íslandi? Þið borgið ekki krónu! Verðmætin skapast á markaðnum. Þið þurfið einfaldlega að staðsetja það rétt í huga neytandans og selja það undir sér- stöku vörumerki. í Japan borgum við nú þegar meira fyrir drykkjarvatn en Coca- Cola.“2 Verðmætin skapast á markaðnum segir hinn japanski „ráðgjafi yfirstjómenda fyr- irtækja og þjóðarleiðtoga, rithöfundur og fyrirlesari" svo notuð sé kynning ritsins sem birtir greinina. Lærimeistarinn leggur eins og aðrir markaðsspámenn mikið upp úr því að selja sem dýrast. Drykkjarvatn má gera að dýrkeyptri vöm með því „að stað- setja það rétt í huga neytandans og selja það undir sérstöku vömmerki.“ Leikurinn snýst með öðmm orðum um það að breyta ókeyp- is náttúmgæðum í dýra markaðsvöru sem seld er undir rækilega auglýstu vömmerki. Dr. Ohmae getur þess í tilvitnaðri grein að nú þegar séu „700 milljón neytendur með háar ráðstöfunartekjur á Þrímarkaðnum svokallaða, þ.e. í Evrópu, Japan og Norður- Ameríku.“ Markmið íslenskrar útflutnings- framleiðslu á sem sagt að felast í því að reyna að selja dýrt á yfirfullum mörkuðum ríkra umbúðaþjóða. Markaði þeirra 700 50 TMM 1992:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.