Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 74

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1996, Page 74
Platon gerði sér engar vonir um að unnt væri með rökum að fá almenning til að fallast á nauðsynlegar stjórnarbætur. Öfugt við Prótagóras áleit hann að almenningur hefði ekki vit á stjórnmálum. Hann var því tilbúinn til að grípa til ofbeldis, blekkinga og annarra óvandaðra meðala. Þessi þáttur í stjórnspeki Ríkisins minnir vissulega á ýmsa ljóta kafla í stjórnmálasögu 20. aldarinnar. Það er í dúr við hugmyndina um vísindalega stjórn að hafa litla trú á viðteknum siðum og vilja helst smíða samfélagið upp á nýtt frá grunni. Platon gældi líka við slíkar hugmyndir: Mikilsverðast og nauðsynlegast af öllu telja þeir [heimspekingarn- ir] réttlætið: með því að þjóna því og fóstra það koma þeir góðri reglu á ríki sitt. Hvernig þá? spurði hann [Glákon]. Þeir senda alla borgara sem eru yfir tíu ára að aldri út á akrana, sagði ég [Sókrates]. Þegar þeir eru búnir að taka börn þeirra undan áhrifum þeirra siða sem nú eru viðteknir, sem eru siðir foreldr- anna, ala þeir þau upp eftir sínum háttum og lögum sem við röktum á sínum tíma. Þetta er fljótvirkasta og auðveldasta leiðin fyrir þá til að koma á fót því ríki og stjórnskipan sem við höfum verið að ræða, láta það blómstra og færa þjóðinni sem það byggir sem mesta velsæld.10 Þetta minnir einna helst á hugmyndir Pol Pots og Rauðu Khmeranna í Kambódíu um árið núll og stjórnspekingur getur víst varla komist í öllu verri félagsskap, svo álit Poppers á stjórnspeki Platons er ekki alveg úr lausu lofti gripið. En það er samt ekki nema hálfur sannleikur. Platon er ekki bara fyrirrennari þeirra sem mæla bót alræði og ógnarstjórn. Hann er líka upp- hafsmaður hugmynda um réttarríki, dreifingu valds og fulltrúalýðræði eins og nú tíðkast í okkar heimshluta. Þessar hugmyndir setti hann fram í síðustu bók sinni, Lögunum. Milli Laganna og Ríkisins skrifaði Platon Stjórnmálamanninn. Þar lýsir hann hinum fullkomna stjórnmálamanni. Slíkur maður veit hvað er þegn- unum fyrir bestu og kann að stjórna í samræmi við þá vitneskju. Hann tekur ákvörðun um hvert mál fyrir sig alveg eins og læknir sem meðhöndlar sjúklinga sníður meðferðina að þörfum hvers og eins en fer ekki eftir ósveigjanlegum reglum. Hinn fullkomni stjórnmálamaður fýlgir því ekki neinum lögum.11 Allt er þetta í samræmi við kenninguna í Ríkinu nema hvað Platon bætir því við að í þessum heimi sé ekki kostur á fullkomnum stjórnmálamönnum.12 Sennilega ól Platon alla tíð í brjósti efasemdir um að nokkurn tíma yrðu 72 TMM 1996:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.