Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 9

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 9
hefur hönnun og útlit kápu ritsins fengið yfirhalningu og erum við stolt af því að kynna fyrir ykkur framtíðarhönnun ritsins. Með nýrri hönnun mun ritið ekki einungis halda áfram að vera gnægtarbrunnur og uppspretta frjórra hugmynda heldur einnig augnakonfekt. Að lokum vil ég þakka fyrir ánægjulegt samstarf þeirra aðila sem komu að útgáfu og vinnslu heftisins á einn eða annan hátt. Albínu Huldu Pálsdóttur og Dr. Steinunni Kristjánsdóttur fyrir umbrot og prófarkalestur. Ástu Hermannsdóttur, Margréti Björk Magnúsdóttur, Sindra Ellertssyni Csillag og Dr. Bjarna F. Einarsyni einnig fyrir prófarkalestur. Hönnunarstofan Ennemm á ennfremur hrós skilið fyrir einkar glæsilega hönnun á kápu hins fjórða heftis. Sérstaklega vil ég þakka fráfarandi ritstjóra Dr. Steinunni Kristjánsdóttur, fyrir það brautryðjenda starf sem hún hefur unnið í þágu ritsins allt frá fyrsta degi. Starf sem hefur einkennst af alúð, vinnusemi og heilindum. Aðalstyrktaraðili útgáfunnar er Fornleifafræðistofan ehf. Aðrir styrktaraðilar voru: Varma- og vélaverk ehf., Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands, Íslenskar fornleifarannsóknir ehf. og Þjóðminjasafn Íslands. Heftið er orðið að veruleika, nú er það ykkar lesendur góðir að lesa, rýna og njóta. Ármann Guðmundsson Formaður FFÍ __________ 8 Rannsóknin leiddi í ljós mikið af upplýsingum um húsagerð í Skálholti og mikið magn gripa og beina, sem safnað var við uppgröftinn, mun án efa varpa frekara ljósi á sögu staðarins. Tímabilið sem uppgröfturinn nær yfir er frá byrjun/miðri 17. öld til 20. aldar. Úrvinnsla uppgraftargagna stendur enn yfir en bráðabirgðaniðurstöður hafa verið gefnar út fyrir hvert uppgraftar- sumar (Lucas et al. 2002, 2003, 2004, 2005, 2006). Að auki hafa ýmsir bókakaflar og greinar komið út, sem tengjast rannsókninni (sjá t.d. Hambrecht 2006, Mjöll Snæsdóttir og Lucas 2007, Mjöll Snæsdóttir, Lucas og Orri Vésteinsson 2006, Mjöll Snæsdóttir 2009 og Lucas 2010). Stofnun fyrstu formlegu íslensku skólanna hófst með bréfi frá Kristjáni III. Danakonungi árið 1552. Bréfið segir að það skulu vera tveir skólar á Íslandi, einn á hvoru biskupssetri til að þjóna umdæmum þeirra (Diplomatarium Islandicum XII, bls. 359). Skólarnir skyldu mennta presta til að þjóna þjóðinni, sem þá hafði tekið mótmælendatrú. Skólinn í Skálholti var stofnaður árið 1553 og starfaði þar til ársins 1784 þegar hann var fluttur til Reykjavíkur í kjölfar Suðurlands- skjálfta. Umdæmi Skálholtsskóla var stærra en umdæmi Hólaskóla en nemendur komu þangað frá Suður-, Vestur- og Austurlandi. Í Skálholti var biskupssetur og skóli, og þar bjó fjöldamargt fólk sem ýmist var í þjónustu skólans eða biskups og kirkjunnar. Manntalið frá 1703 telur 120 íbúa í Skálholti (manntal.is) og hefur byggðakjarninn verið stærsta byggðarlag á Íslandi á þessum tíma og fyrsti vísirinn að bæjarmyndun á Íslandi. Karlmenn voru í miklum meirihluta í Skálholti. Biskupinn, presturinn, skólakennarinn og nemendurnir voru allt karlmenn, og af þeim 69 vinnumönnum og –konum, sem skráð voru til heimilis í Skálholti árið 1703, voru einungis 27 konur. Þetta hlutfall hefur sjálfsagt breyst á milli ára en Skólapiltar í Skálholti Vitnisburður úr svefnstofunni Ágústa Edwald __________ 9 Uppgröftur á skólahúsum og húsum biskupsins í Skálholti hófst árið 2002. Uppgreftinum lauk sumarið 2007 eftir sex uppgraftarsumur. Fornleifastofnun Íslands stóð að rannsókninni, sem var styrkt af Kristnihátíðarsjóði og Alþingi, og uppgraftarstjórar voru Dr. Gavin Lucas og Mjöll Snæsdóttir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.