Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Side 12
ganganna var dómkirkjan, sem stóð
hærra en aðrar byggingar og gnæfði yfir
svæðið, og syðst voru m.a. borðstofan
og búrið, hvort sínu megin ganganna.
Vestan við bæinn voru annars vegar
fjós og önnur útihús, afgirt, og hins
vegar skemmur og smiðjur. Bústaðir
vinnufólks voru bæði sunnan við
byggingasamstæðuna og vestan við
hana.
Uppgröfturinn í Skálholti leiddi í
ljós að þessi kort eru nokkuð nákvæm
(sjá mynd 3). Ein mikilvæg breyting
hefur þó orðið á milli kortanna tveggja.
Í byrjun 18. aldar var gengt inn í
herbergi biskups úr aðalgöngunum en á
kortinu frá 1784 hefur þeim göngum
verið lokað og aðgangur að húsum
biskups einungis verið að utan, en með
því hefur aðskilnaður milli skóla-
stofnunarinnar og biskupssetursins
verið undirstrikaður. Það er ljóst að
greinarmunur hefur verið gerður á
íbúum Skálholts eftir stöðu þeirra, þ.e.
milli embættismanna, nemenda og
vinnufólks. Þó að lag bygginganna,
með löngum göngum og mörgum
sambyggðum húsum, hafi gert eftirlit
innan þeirra erfitt þá er gangabærinn
sérstaklega hentugur til að skipta
__________
12
Skólapiltar í Skálholti
Mynd 2. Uppdráttur af Skálholti, byggður á korti frá 1784. svæðinu og stjórna aðgangi að
einstökum herbergjum.
Nálægð vistarveru kennarans við
svefnstofu skólapilta hefur vafalaust átt
að tryggja eftirlit með þeim á flestum
tímum. Svefnstofan var eina herbergið
sem þeir höfðu út af fyrir sig og þar
gátu þeir geymt persónulegar eigur
sínar. Í skólareglum frá 1746 er tekið
fram að svefnstofan skuli vera næsta
hús við skólahúsið sjálft og að hún skuli
vera nægilega stór til að ölmusupiltar
og aðrir komist þar fyrir sem og kistlar
þeirra. Rúmin skyldu vera lokrekkjur,
aðskildar með þili svo að nemandi sem
vildi læra lexíurnar sínar í friði gæti
lokað að sér. Það mátti hann hins vegar
ekki gera nema með leyfi rektors. Ef
leyfið lá ekki fyrir eða ef nemandi varð
uppvís að ósæmilegri hegðun inni í
lokaðri rekkju þá skyldi honum vera
refsað (Lovsamling for Island II, bls.
639). Þrátt fyrir lag byggingarinnar,
reglur og strangt eftirlit benda Monita
scholastica, reglur sem gefnar voru út
af Skálholtsbiskupi árið 1769, til þess
að skólapiltar hafi fundið leiðir til að
komast þangað sem þeir vildu fara,
þrátt fyrir langa, dimma ganga og læstar
dyr.
“Afteknar eru allar herbergjaferðir
[þ.e. heimsóknir], nema þeir [þ.e.
piltar], hafi eitthvert sérlegt erindi og
leyfi af rectori. … Allra sízt má þeim
leyfast að slóra úti á vinnukvenna-lofti,
eður á svoddan stöðum, hvað nú tekur
Ágústa Edwald
__________
13
Mynd 3. Uppdráttur af uppgraftarsvæðinu við lok uppgraftar árið 2004
(Fornleifastofnun Íslands og Gavin Lucas, birt með leyfi höfundar).