Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 16

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 16
í hvers konar jarðlögum algengustu gripategundirnar fundust. Flestir gripanna fundust í gólflögum eða í ræsisfyllingum. Þeir hafa lent þar þegar svefnstofan var í notkun og viðkomandi jarðlög mynduðust. Brotin eru oftast mjög lítil þar sem stærri brot hafa verið tínd upp eða hent annars staðar. Af þessum orsökum er erfitt að áætla úr hversu mörgum ílátum eða hlutum brotin eru en minnsti ílátafjöldi var áætlaður (e. minimum vessel count) fyrir leirkera- og glerbrotin óháð byggingarskeiði. Minnsti fjöldi leirkerja samkvæmt þessari talningu var 52 og gleríláta 27. Langstærsti hluti gripasafnsins er innfluttar vörur, þar á meðal öll leirkerin, glerílátin og krítarpípurnar. Ísland var nýlenda Dana allan starfstíma Skálholtsskóla og frá 1602 einokuðu Danir íslenska verslunarmarkaði. Allar innfluttar vörur urðu að vera danskar ef það var mögulegt, en það sem ekki fékkst í Danmörku var fyrst flutt þangað og svo þaðan til Íslands. Skýrslur um innfluttar vörur frá árunum 1625-1819 eru varðveittar og hafa verið gefnar út í Hagskinnu (Hagskinna, Skólapiltar í Skálholti __________ 16 Hælstimpill Nr í Duco Aldur skv. Duco Aldur skv. Van der Meulen Fjöldi brota Byggingar- skeið Rose Duco 2 1660-1725 1686-1768 2 II Prince and Princess Duco 99 1690-1768 1674-1782 3 III Warrior? Duco 93? 1732-1881 1670-1865 1 III Prince Duko 72 1670-1705 1660-1686+ 1 III Milkmaid? Duco 101? 1660-1940 1660-1898+ 1 III Flower (goudsbloem) Duco 9 1660-1685 1660-1702 1 III AP (Andries Pietersz.) Duco 410 1670-1720 1684-1821 1 III Crown over 30 Duco 653 1714-1940 1714-1881+ 1 IV Snake Duco 47 1733-1808 1667-1808 1 IV Samtals 12 Tafla 2. Hælstimpilgerð og aldur krítarpípubrota eftir Duco 1882 og Van der Meulen 2003 Icelandic Historical Statistics). Flestar innfluttar vörur á tímabilinu sem um ræðir (frá miðri 17. öld til loka 18. aldar) voru matvörur, helst kornvörur og í minna mæli áfengi, s.s. bjór, brennivín, öl og vín. Byggingarvörur svo sem timbur og járnvörur voru einnig algengar innflutningsvörur sem og efni til klæðagerðar. Innflutningur allra þessara vörutegunda jókst eftir því sem leið á tímabilið fyrir utan innflutning á vefnaði sem dróst saman. Það skýrist áreiðanlega af stofnun Innréttinganna um miðja 18. öld. Í innflutningsskýrslunum er hvergi minnst á innflutning á leirkerum eða glerílátum (nema þeim sem innihalda áfengi), enginn borðbúnaður er talinn upp né krítarpípur. Það verður því að teljast líklegt að þessar vörur hafi ekki verið fluttar inn í nægu magni til að vera taldar fram í sérflokki og er líklegt að þær falli í flokkinn „annað“. Þessar vörutegundir eru þó þær algengustu sem finnast í fornleifauppgröftum sem skýrist af því hversu vel þær varðveitast í jörðinni. Piltarnir eyddu mestum hluta tíma síns í Skálholti í skólanum. Frá klukkan sex á morgnanna til klukkan fjögur á daginn lásu þeir latínu og lærðu latneska málfræði meðal annarra námsgreina (Diplomatarium Islandicum X, bls 217-219). Þeim tíma sem stundaskrá þeirra náði yfir var skipt milli þriggja herbergja, skólastofunnar, borðstofunnar og kirkjunnar. Svefnstofan var eina herbergið sem þeir einir áttu og þar gátu þeir geymt persónulegar eigur sínar og eytt frítíma sínum. Það hefur ekki verið mikið pláss í svefnstofunni fyrir alla skólapiltana og allt dótið þeirra. Í tómu herberginu höfðu þeir innan við hálfan fermetra hver. Rúmin hafa skipt herberginu í svæði sem hver nemi hefur deilt með Ágústa Edwald __________ 17 Mynd 4. Fjöldi krítarpípu- og eldtinnubrota (y) eftir skeiðum (x).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.