Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 20

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 20
þess að þau séu úr litlum flöskum eða glösum. Flestar flöskurnar sem fundust tengjast neyslu áfengis. Líkt og sagt var hér að framan var áfengi ein helsta innflutningsvaran á þessum tímum. Mest af því hefur þó verið flutt inn í tunnum frekar en í flöskum, sem hafa þess í stað verið notaðar til að hella drykknum í glös. Það á einna helst við um bjór og öl en sum vín og brennivín var flutt inn í flöskum, sérstaklega við lok 18. aldar (Lucas 2002, bls. 53). Næstum ekkert gler úr ílátum fannst í elsta byggingarskeiði svefnstofunnar (skeiði I) en fjöldi ílátabrota úr gleri jókst til muna á skeiðum II og III og lítillega á milli skeiða III og IV. Einungis þrjú glerbrot úr flöskum fundust á skeiði II samanborið við 57 brot á skeiði III og 137 brot frá skeiði IV. Þessi aukning skýrist að hluta af breyttum innflutnings- og geymslu- venjum en einnig af aukinni neyslu áfengis. Mynd 5 sýnir skiptingu glerbrota eftir ílátagerðum og byggingarskeiðum. Leirker Líkt og fyrr greinir eru engar tölur til um innflutt leirker til Íslands frá 17. og 18. öld. Það er þó ljóst að leirker voru flutt til landsins á þessum tíma en ef til vill ekki í miklum mæli. Af þeim leirkerategundum sem fundust í svefnstofu skólapilta í Skálholti eru steinleirsbrot (e. stoneware) algengust. Mikill hluti þeirra er enn ógreindur til undirtegunda, um 40%. Þau brot sem hafa verið greind frekar skiptast í þrjá flokka: Frechen og Dunigen, sem eru þýskar tegundir, og hvítur saltglerjaður steinleir sem kemur frá Englandi. Næst algengasta Skólapiltar í Skálholti __________ 20 Mynd 7. Glerhnappar úr svefnstofunni í Skálholti. (Fornleifastofnun Íslands og Gavin Lucas, birt með leyfi höfundar). tegund leirkera er grófur jarðleir (e. coarse earthenware). Það er mjög erfitt að ákvarða hvaðan grófu jarðleirsbrotin koma þar sem þau voru framleidd víða og eru oftast einföld og óskreytt. Talið er að mestur hluti þeirra grófu leirkerabrota sem fundist hafa við fornleifauppgrefti á Íslandi séu frá Norður-Þýskalandi eða frá Skandinavíu (Guðrún Sveinbjarnardóttir 1996, bls. 47). Grófu leirkerabrotin eru af ýmsum gerðum en algengasta tegundin er glerjuð rauð leirker (e. glazed red earthenware). Þriðji algengasti flokkur leirkera er postulín, sem er allt innflutt frá Kína. Mestur hluti postulínsins er úr jarðlögum frá skeiði IV, síðasta byggingarskeiði svefnstofunnar áður en skólinn var fluttur til Reykjavíkur 1784. Fyrir 18. öld var postulín sjaldgæft og mjög dýrt þar sem hollenska Austur- Indíafélagið einokaði verslun við Evrópu. Í upphafi 18. aldar varð kínverskt postulín algengara á evrópskum mörkuðum en það var enn með dýrustu fáanlegum leirkerum. Minnst fannst af tinglerjuðum leirkerum (e. tin-glazed earthenware) í svefnstofunni. Brotin eru mjög smá og því erfitt að greina þau frekar, en þau eru líklega flest hollensk. Af 61 broti voru átta af þeirri gerð sem kölluð er majolica gerð, þ.e. tinglerjuð að innan með blýglerjungi að utan. Mynd 6 sýnir hlutfall leirkerjategunda eftir skeiðum. Smáhlutir Ýmsir hlutir sem tengjast klæðnaði og persónulegu skarti fundust í svefnstofunni. Meðal þeirra eru perlur, hnappar, krókar og lykkjur, sylgjur og hringur. Aðrir persónulegir munir sem fundust voru hnífaparasett, skeið, hnífur, skæri, brýni, fjöðurstafir, mynt og kambar. Flestar þessara gripategunda fundust aðeins í litlu magni. Algengasta Ágústa Edwald __________ 21 Mynd 8. Perlur úr svefnstofunni í Skálholti. (Fornleifastofnun Íslands og Gavin Lucas, birt með leyfi höfundar).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.