Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Side 29

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Side 29
þess að hann væri hreinn (Lovsamling for Island II, bls. 639). Þessar reglur endurspegla vilja skólayfirvalda til að mennta drengina í borðsiðum efri stétta. Þeir skyldu sitja við borð og allt skyldi vera hreint. Yfirleitt hefur almenningur í landinu á þessum tíma setið á rúmum sínum eða á kistum og borðað úr öskum sem haldið var á í kjöltunni. Máltíðir þar sem setið var til borðs urðu ekki almennar meðal alþýðu fyrr en á síðari hluta 19. aldar, og þá helst við hátíðleg tækifæri (Lucas 2007, bls. 65). Þessar reglur skyldu ennfremur eiga við alla skólapilta, hvort sem þeir þáðu ölmusu eða ekki. Hvar hver nemandi sat í borðstofunni fór eftir námsárangri, þ.e. í hvaða bekk drengirnir voru, en ekki eftir efnahag og/eða fjölskyldu- tengslum líkt og áður þegar fæði ölmusupilta var annað en þeirra sem borguðu með sér. Reglugerðin frá 1743 virðist ekki vera sérstaklega sniðin að matseðli nemenda. Það er erfitt að borða harðfisk af diski með skeið. Maturinn í Skálholtsskóla hefur hugsanlega ekki alltaf fallið vel að þeirri hugmyndafræði sem skólayfirvöld reyndu að fylgja í borðstofunni, með hreinum borðdúkum áttunda hvern dag, en dæmi um úldið kjöt og mýs í skyri í búrinu í Skálholti eru þekkt úr ritheimildum (Benjamín Kristjánsson 1956, bls. 240). Nýr matseðill var gefinn út með reglugerðinni frá 1746 og þar var tiltekið að allir skyldu fá sama mat, hvort sem þeir væru á ölmusu eða borguðu fæðiskostnað, og að skólapiltar skyldu fá eina heita máltíð á dag. Nýi matseðillinn tiltekur saltfisk, mjólkurgraut, hafragraut, heitar og kaldar pylsur og plokkfisk (Lovsamling for Island II, bls. 673). Rúmlega 270 grömm af matar- úrgangi fundust við uppgröftinn í svefnstofu skólapilta í Skálholti. Langstærstur hluti safnsins voru dýrabein, flest úr spendýrum. Tæplega 60% beinanna fundust í lögum öðrum en gólflögum eða ræsisfyllingum, flest í torfhruni, sem bendir til að þau séu ekki tengd viðveru í svefnstofunni. Þau bein sem þó fundust í gólflögum benda til þess að einhver neysla matar hafi farið fram í svefnstofunni, þó að það hafi aldrei verið gert í miklum mæli, og kannski ekki á öllum byggingar- skeiðum. Þau 63 brot af rauðum jarðleir sem koma úr pottum (minnst þremur mismunandi) benda einnig til neyslu matar. Brotin komu öll úr jarðlögum sem tengjast viðveru í herberginu og þau voru öll brunnin að utan, sem sannar að pottarnir hafa verið notaðir til að elda í. Aðrir gripir sem benda til neyslu matar og drykkjar eru að minnsta kosti sjö flöskur, fimm skálar, fimm föt, átta bollar, þrír diskar, þrjár undirskálar, hnífapör og skeið. Þessi matarílát gætu þó vel hafa verið notuð í öðrum herbergjum, þó að þau hafi verið geymd í svefnstofunni eða brotnað þar. Skipting leirkerjanna eftir tíma- skeiðum er athyglisverð. Bollar og undirskálar fundust nær eingöngu á Skólapiltar í Skálholti __________ 28 skeiði IV en pottbrot voru algengari á fyrri skeiðum. Diskar, föt og skálar voru flest frá tveimur síðari skeiðunum, III og IV. Þessi skipting endurspeglar hugsanlega nýjar reglur (frá 1743) um hvar skólapiltar máttu borða og bann við því að þeir keyptu sér mat utan veggja skólans, sem og nýjan og bættan matseðil frá 1746, þar sem pottum, diskum og fötum fækkar til muna á skeiði IV. Fjöldi bolla, undirskála og skála frá því skeiði bendir til þess að neysla tes og kaffis hafi verið orðin algeng meðal skólapilta. Fyrir utan mat og heita drykki sýnir gripasafnið einnig að skólapiltar reyktu tóbak, og safn flöskuglers í svefn- stofunni bendir til þess að þeir hafi drukkið vín. Eins og áður var vikið að fundust 571 brot úr krítarpípum við uppgröftinn í Skálholti. Fjöldi brotanna bendir sterklega til þess að piltarnir hafi reykt inni í svefnstofunni. Troðið og rakt herbergið hefur því oft verið fyllt af reyk. Krítarpípur eru langar og brot- hættar og það þarf að fara varlega með þær. Þegar þær voru nýjar og sérstaklega langar hafa piltar þurft að reykja þær sitjandi á rúmum sínum eða kistlum. Reglugerðin frá 1743 bannar reykingar í svefnstofunni vegna eld- hættu sem stafar af þeim. Hvort fækkun krítarpípubrota á skeiði IV er afleiðing þess banns, eða hvort hún endurspeglar breytta notkun tóbaks eftir að munn- tóbak varð algengara, er erfitt að fullyrða um. Þó er líklegt að dregið hefði úr krítarpípureykingum eftir því sem leið á 18. öld jafnvel þótt þær hefðu ekki verið bannaðar með reglugerð. Líkt og með krítarpípubrotin fannst flöskugler á öllum byggingar- skeiðum svefnstofunnar nema því fyrsta (skeiði I), og varð það algengara eftir því sem leið á 18. öld. “Þar á mót lá við sjálfa garða, að ég minn fyrra vetur í Skálholtsskóla, ef ekki dæi út af, þá þó – nálega koðnaði upp af sulti og órækt, þar sem pyngjan var helzt til lítt hlaðin, til að ég gæti keypt mér það ég við þurfti, og ég of fjærlægur foreldrum mínum, til að þau gætu hjálpað mér, enn skuldum vildi ég ekki safna. Allar viðgjörðir voru í sannleika svo, að gáfuvænlegum piltum var ei viðvært, því síður að rétt væri af þeim betalingur heimtaður þar fyrir, framar enn konungleg boð tilstóðu. það var dýrkeypt nóg, að leggja þar fjör sitt og heilbrigði í sölurnar” (Sveinn Pálsson 1950, bls. 192). Virðingarröð skólapilta hefur stjórnast af ýmsu og hafa viðskipti með hluti eflaust verið ein af þeim leiðum sem piltarnir nýttu til að tryggja stöðu sína. Persónulegar eigur þeirra hafa ekki einungis verið nauðsynjar heldur einnig vörur sem hægt var að skipta á til að komast ofar í virðingarröðina, eða jafnvel til að komast upp með brot á reglum sem Notarius myndi annars tilkynna. Leiða má líkur að því að þeir 120 hnappar og 25 perlur, sem fundust við uppgröftinn í svefnstofunni, hafi ef til vill verið notaðar í viðskiptum. Það er einfalt að telja hnappa og perlur og Ágústa Edwald __________ 29
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.