Dagrenning - 01.12.1950, Blaðsíða 42

Dagrenning - 01.12.1950, Blaðsíða 42
Bæði Meistarinn, Drottinn Jesús Kristur og hans postular, gjöra á mörgum stöðum glöggan greinarmun á. börnum Guðs og börnum djöfulsins, (Jóh. 8, 44. v.). (I. Jóh. 3, 10. v.) einnig andlega dauðum, og Jreim sem lífið hafa öðlast í Honum (Kristi), til þess að geta flutt Fagnaðarboðskapinn ... „Lát hina dauðu jarða sína dauðu, en far þú og boða Guðsríki“ (Lúk. 9, 60.) ... „Þá voruð þcr dauðir vegna afbrota yðar og synda.“ (Efes. 2, 1.) — Þess vegna, aðeins fyrir hlvðni Jesú Krists og friðþægingu á krossinum fyrir Hans Sáttmála-Blóð, er oss opinn vegurinn til eilífs lífs og friðar við Guð. (Efes. 2, 13, 22.) — (Jóh. 3, 16.) — (Hebr. 9, 22.). Eins og frelsun er várkileiki, svo er einnig glatað ástand virkileiki, og eins og Himna- ríki er raunverulegt og umritað sem sælustað- ur, svo er líka cinnig Helvíti raunverulegt sem k\’alastaður, eins og um er ritað í Heil- agri Ritningu. Þessi stutta aðgreining á milli góðs og ills, sælu og vansælu er fullnægjandi til að sýna hversu gjörólíkt cr karakter, eðli og eiginleiki Guðs og Drottins Jesú Krists annars vegar, en höggonnsins, drekans, dýrsins og djöfuls- ins hins vegar. Þar mun ekki heldur verða stofnað neitt sambýli, líkt og nú á sér stað í íslenzku þjóð- kirkjunni." Hér lýkur bréfinu. Ritstjórinn hefur ekki viljað breyta þar neinu né bæta við, enda er þess ekki þörf. Þeir, sem halda því frarn, að djöfullinn sé „tilbúin" persóna, sem enga stoð eigi í Biblíunni eða veruleikanum hafa gott af því að lcsa þessar skilmerkilegu at- huganir og tilvitnanir, sem hér eru saman drengnar. Vera má að Dagrenning geri þessu málefni betri skil áður en langt um líður. J. G. ------------------:---------------------------------------------------------------------------------f J^JEÐ ÞESSU IIEFTI lýkur 5. árgangi Dagrenningar. Á árinu 1950 hefur vcrið meiri eftir- spurn cftir Dagrenningu en nokkru sinni fvrr, og svo má lieita að hvert hefti hafi selzt upp unr leið og það kom út. En upplag ritsins hefur verið takmarkað. Allir þcir, sem eitthvað lmgsa — og scm betur fer eru þeir allmargir ennþá — finna að Dagrenning lrefur boðskap að flvtja, sem er sannari og réttari en það, sem völ er á í dagblöðunum og öðrum thnaritum. Dagrenning á fjölda vina og velunnara, sem hafa útvegað henni nýja kaupendur og á ýmsan liátt greitt götu hennar. Á þessu ári hefur fyrst tekið að bóla nokkuð á andstöðu gegn kenningum þeim, sem Dag- renning flvtur, og var þess auðvitað að \'ænta og ekki er óliklegt að sú andstaða vaxi. En „þar sem við ekkert cr að stríða er ekki sigur neinn að fá,“ og því mun Dagrenning svara þeim ádeil- urn, sem að henni kann að verða beint á þann hátt, sem hún telur best henta málstaðnum hverju siuni. Öllum þeim, sem keypt hafa ritið og lesið það þakka ég margvislegan hlýhug í garð þess og ég mím gera mér far um að gera Dagrenningu svo vel úr garði næsta ár, að cngan þurfi að iðra þess að kaupa ritið áfram. Hinum föstu kaupendum þakka ég sérstaklega skilvísi þeirra þvi hún er grundvöllur fjár- hagsafkomu ritsins. Aðeins vegna hennar, og þess fyrirkomulags að greiða ritið fyrirfram, er unnt að halda því áfram nú með óbrevttu áskriftarverði. Ég þakka ykkur öllum liðna árið og óska öllum kaupendum, lesendum og útsölumönnum Dagrenningar gíeðilegra /ola og nýárs, og bið Guð að blessa þá og heimili þeirra á hinu komandi ári, sem verður ár mikilla atburða. -*-----------------------------:------------—-------------------------------------------------------------------------------------♦ 40 dagrenning

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.