Dagrenning - 01.12.1950, Blaðsíða 39

Dagrenning - 01.12.1950, Blaðsíða 39
heimsins. Ræðumenn voru margir og sum ir þeirra lieimsfrægir menn úr heimi stjórn- mála og atvinnulífs. Ég hlýddi gaumgæfi lega á þessar ræður. Þær fjölluðu allar um hið alvarlega ástand og horfur í heimsmál- unum og allir voru ræðumenn sannnála um, að nýja öfluga lirevfingu þyrfti meðal allra þjóða til þess að unnt yrði að koma sam- búð mannanna í viðunandi horf. Þeir litu allir svo á að leiðin til úrbóta væri aðeins ein — siðferðilegur endun'ígbúnaður allra þjóða — það er, að hver einasta þjóð gerði sér það ljóst, að einungis aukinn siðferðis- þroski allra — hærri sem lægri — væri sú eina lausn sem dygði og senr væri til franr- búðar. Þessu marki yrði ekki náð nema með auknum skilningi þjóðfélags stéttanna á þýðingu þeirra, hverrar um sig, og þýðingu samstarfs þeirra, og aukinni trúrækni og auknu kristilegu starfi. Mér fannst þetta sömu ræðurnar, sem ég hafði svo oft hevrt áður — orð, sem að vísu voru fögur og létu vel í evrum, en sem í framkvæmdinni rák- ust á óyfirstíganlegt ósýnilegt jámtjald sið- leysis og mannvonsku, sem virtist vera all- staðar nálægt. En þá gerðist það, að kona nokkur bað um orðið, og þegar hún steig á ræðupallinn var hún kynnt fyrir áheyrendum sem Lady Har- ding frá Bretlandi. > Ilún hóf mál sitt á þessa leið: — Ég hef hlustað með athygli á ræður vðar, herrar mínir, og ég er ykkur sammála um margt. En í allar þessar ræður hefur vantað eitt mikilvægt atriði — atriði sem alveg skipt- ir meginmáli — og það er þetta: Hver er ástæðan fyrir því ófremdar og niðurlægingar- ástandi, sem mannkynið nú er í? Ef við finnum ekki orsakir höfuðmeinsemdarinnar verður henni tæpast útrýmt. Ég þykist vita að ýmsir yðar vita hver undirrót allrar þess- arar spillingar, kúgunar, mannvonsku og sfyrjalda er, en þið komið ykkur ekki að því að segja það, s\'0 það er best að ég, sem full- trúi kvenþjóðarinnar hér, skeri upp úr um ástæðuna. Við, konur, erum sagðar geta sagt meiningu okkar, að minnsta kosti stundum. Og það er því betra, sem aðeins cr hægt með einu orði að nefna hina miklu grundvallar- orsök alls þessa öngþveitis og niðurlægingar. Þetta eina orð er djöfullinn. Ég sé þið brosið! En mér er ekki bros í hug þegar ég nefni þetta nafn. Ég er fullorðin kona, eins og þið sjáið, og ég hef á minni löngu æfi kom- ist í kynni við „herra þessa heims“ — djöf- ulinn. Ég veit, að bakvið alla niðurlægingu hinnar mannlegu veru, bak við styrjaldirnar, manndrápin, kúgunina og hverja aðra spill- ingu, stendur yfirnátturleg vera, sem með þjónustuliði sínu stefnir að gjörspillingu og síðar að útrýmingu mannkynsins. Ég hef sjálf mætt þessari yfirskilvitlegu veru oft á minni lífsleið, og ég hef séð hvernig hún hef- ur kúgað og niðurlægt unga og eldri allt í kringum mig. En vegna þess að nútíma þekking viðurkennir ekki þessa ósýnilegu orsök vandamála vorra fæst engin lækning þrátt fyrir allar vorar ráðstefnur, þing og vf- irlýsingar. Djöfullinn — yfirskilvitlegur per- sónuleiki — er grundvallarorsök öngþveit- isins og gegn honurn og öllu, sem hans er, þarf að berjast. En enginn fær sigrað þennan höfuðóvin af eigin ramleik. Til þess að sigrast á honum og því sem lians er, dugar ckkert minna en persónulegt samband hvers einstaklings við þann, sem einn getur frelsað menn undan valdi djöfulsins, en það er Jesús Kristur. Herrar mínir! Leitið fyrst þess sam- bands og þá nmn allt ganga greiðara, sem þér nú starfið að. Þá nmnu ráðstefnur vðar bera ríkulega ávexti til handa þeim þjóðiím, sem þér starfið fyrir og þá mun vald djöfulsins fara dag hvern minnkandi í stað þess að nú fer það dag hvern vaxandi. Ég skal taka það fram, að ég á hér ekki við neina sérstaka kirkju eða trúarsamfélag. Ég á við það, að menn skilji DAGRENNING 37

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.