Dagrenning - 01.08.1954, Blaðsíða 36

Dagrenning - 01.08.1954, Blaðsíða 36
ingar, þá er það um fyrri hluta hennar að segja, að þegar hefur verið sýnt fram á, að Egyptar neyttu að mestu leyti sömu fæðu og ísraelsmenn. 3. Þá hefur því verið lýst yfir, að ógerningur sé að skýra markalínuna með öðru en gjörræðisvilja Guðs. En þessu ætti að vera nægilegt að svara með því, að Guð beitir ekki gjörræði í samskiptum sínum við mennina, og þess vegna er þessi hugmynd gersamlega út í loftið. 4. Þá er sú skoðun útbreidd, að grein- ingin sé að mestu eða öllu leyti byggð á táknrænum grundvelli. Sumir hafa sett hana í samband við þá niðurlægingu, sem öll sköpunin komst í við fall manns- ins. Það sem jafna mætti til siðferðilegrar spillingar í eðli sumra dýra, hefur verið heimfært upp á hin óhreinu dýr lögmáls- ins með fremur veigalitlum rökum. Sum- ir síðari tíma höfundar hafa troðið slóðir hinna fornu feðra, eða ef til vill öllu heldur lagt bókstaflegan skilning í lík- ingamál þeirra, og heimfært táknmálið upp á einstök einkenni í sköpulagi og bvggingu dýranna og fengið út úr því reglur, sem þeir aðgreina þau eftir í hreina og óhreina dýraflokka. Klofna klaufin, sem stendur örugglega á jörð- inni, en er þó vel löguð til hreyfingar, liefur verið tekin sem tákn um stöðug- leik trúmannsins á vegferð lífsins. Jórtr- unin er talin eiga að minna Israelsmenn á skyldu þeirra til þess að temja sér sí endurtekna hugleiðslu um hin guðlegu áform. Eins og uggar fiskanna eru til þess að lyfta þeim upp úr leðjunni, sem kvik- indi eins og állinn hafast við í, þannig eiga bænin og trúin að hefja sálina upp úr myrkri og spillingu. Formælendum þessarar kenningar sést þó yfir þær staðreyndir, að mannýgt blót- neytið og mislynd geitin eru hrein dýr, en gæflyndur úlfaldinn og hérinn eru ó- hreinir. Ennfremur má rninna á það, að hófur hins óhreina hests og fótur hins óhreina úlfalda eru betur til þess fallnir, að tákna ytra líf liins staðfasta trúmanns, heldur en fótur uxans eða sauðkindar- innar. Skynsamlegasta skoðunin. 5. Enn er ein skýring eftir, og hún er sú að fæðislöggjöf Guðs sé aðallega byggð á heilbrigðisgrundvelli — kjöt óhreinu dýranna sé talið óholt. Það skal haft í huga, að flokkunin í hrein og óhrein dýr kom ekki fyrst til sögunnar þegar lögmálið var gefið. Hún var þekkt fyrir syndaflóðið og strax þar á eftir (sbr. I. Móseb. 7: 2, 3 og 8: 20) Ennfremur sjáum vér að mest öll dýrafæða, sem menningarþjóðirnar neyta, hefur á öllum tímum verið af sömu dýrategundum. Jórturdýr, hænsnfuglar og aðrir fuglar, sem lifa á jurtafæðu, eru auðsjáanlega þær tegundir, sem allur þorri manna vill helzt. Eðlishneigð vor bendir einnig í sömu átt. Öllum býður við höggormum og pöddum. Engum geðjast að sköpulagi svínsins eða háttum þess. Oss hryllir við liugsuninni um að borða kjöt af lrýenu eða gammi. Þegar vér heyrum að til sé fólk, er leggi sér til munns lirfur, snigla og orma og þyki trjámaðkur hið mesta hnossgæti, virðist viðbjóður sá, senr þetta vekur hjá oss, eiga sér dýpri rætur en svo, að það verði skýrt með því sem vér nefn- unr almenna siðfágun. Það breytir ekki vitund niðurstöðunni þótt sumir á meðal vor hafi unnið bug á þessari ónotatil- finningu að því er snertir ostrur og svín. Það getur áreiðanlega ekki verið ösam- boðið Guði ísraels, sem lét sér annt um heilsu og velferð nrannsins í heild, ekki 34 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.