Dagrenning - 01.08.1954, Side 40

Dagrenning - 01.08.1954, Side 40
sér um sykur, vegna þess að hann getur ekki „brennt“ honum. Bæði læknavísindin og sálfræðin eru á einu máli um það, að ofdrykkja sé sjúkdómur, að löngun ofdrykkjumanns- ins í áfengi sé miklu meiri en svo að hann ráði við hana, og að þörf hans fyrir áfengi sé ekki hægt að lækna varan- lega með neinni læknisaðgerð né með viljaþreki manns einu saman. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram um orsakir ofdrykkju. Ein er sú, að of- drykkjan stafi af efnabreytingum í lík- amanum, sem valdi ofnæmi; önnur sú, að orsakir ofdrykkju sé skortur á jafn- vægi tilfinningalífsins eða vanþroski. Sumir halda, að hún stafi af uppgjöf eða skorti á viljaþreki, að menn flýi frá líf- inu vegna minnimáttarkenndar eða annarra tilfinninga svipaðs eðlis. Það má vera, að hver og ein þessara kenninga sé rétt að nokkru eða öllu leyti, en reynsla okkar er sú, að þegar það rennur upp fyrir manni, að hann þjáist af ofdrykkju og reynir af alhug að yfirvinna hana, skiptir það hann ekki svo miklu máli, hver orsökin hefur verið, heldur hitt, livað hann verði að gera til þess að hætta að drekka. Það sem hann fyrst og fremst vill fá að vita er: Hvernig get ég hætt? A.A. hjálpaði okkur að finna svarið. VI. Hve fljótt læknast ég? Ef þú átt við, hvenær þú getir aftur farið að drekkka í hófi, er svarið: aldrei. Reynsla lækna, sálfræðinga og okkar sjálfra er sú, að lang flestir þeirra, sem misst hafa stjórn á sér og farið yfir mörkin milli hófdrykkju og ofdrykkju eða tilheyra þeim hópum, sem lýst er í grein III hér á undan, geta aldrei drukk- ið í hófi. Ef þú hins vegar átt við, hvenær þú losnir við löngunina í áfengi, fer svar- ið eftir því, hve fljótt þú getur skipt um frá núverandi líferni og öðlast aðra lífs- skoðun. Það, hve fljótt jm losnar við áfengislöngunina, fer næstum eingöngu eftir því, af hve mikilli einlægni og at- orku þú beitir þér að áætlun A.A., sem miðar að lífi án áfengis. Sumir losna næstum strax, aðrir þurfa aftur á móti lengri tíma til að yfirstíga löngunina. En sé maðurinn alveg ákveðinn í að hætta að drekka og þjáist ekki af sál- sýki, getur ekki illa farið, svo framar- lega sem hann af trúmennsku og ein- beitni fylgir ráðleggingum A.A. VII. Hvers vegna getur A.A. hjálpað mér fyrst aðrir gátu það ekki? Vegna þess að A.A. tengir sainan grundvallar orsakir ofdrykkju og meg- inþætti réttar lækningar drykkju- manna. Félagið ráðleggur þér að leita læknishjálpar við líkamlegri vanheilsu, ef hún er nokkur; afturhvarf til Guðs þíns þér til andlegrar styrktar; yfirbót drýgðra misgerða þinna, að svo miklu leyti, sem það er hægt, til þess að losa huga þinn við innri baráttu. Það sér þér fyrir félagsstarfi og íþróttum, til þess að veita útrás taugaspenningi og beina starf- semi undirvitundarinnar á eðlilegar brautir. A.A. býður vináttu og skilning slíkan sem þú hefur sennilega ekki átt að mæta í mörg ár. Þér veitast tækifæri til samræðna við félagsmenn, sem skilja málin til hlýtar og geta þess vegna hjálp- að þér til þess að losna við vanmáttar- kenndir, svartsýni og sjálfsásakanir. Og að lokum, þér veitast tækifæri til að hjálpa öðrum á sama hátt og þér mun verða hjálpað. 38 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.