Dagrenning - 01.08.1954, Síða 37

Dagrenning - 01.08.1954, Síða 37
aðeins þess hluta hans sem nefndur er sál, að leiðbeina þjóð sinni fyrir munn þjóns síns, Móse, bæði varðandi fæðu, sem henni væri hollt að neyta og þá, sem væri skaðleg fyrir heilsuna. Það er, þvert á móti, í fyllsta samræmi við það sem vér höfum lært um ást Guðs á börnum sín- um. Vissulega má spyrja: Hafi greining sú, sem fram kemur í Móse-lögum, verið viðurkennd af öðrum þjóðum, hvaða rétt eiga þá þessi lög til þeirrar sérstöðu, sem þeim er eignuð í III. Móseb. 11: 43—47 og 20: 25—26?“ Svarið virðist vera þetta: ,,Fyrirmælin, sem Móses tók við, voru fyrir alla þjóðina. Þau voru ekki, tins og hjá Egyptum, lög fyrir prestana eina, eða Persum, þar sem aðeins þeir, er voru skólaðir í andlegum efnum, óttuðust þau og hlýddu þeim. Þetta var lögmál fólks- ins, lögmál allra, karla, kvenna og barna, Jreirrar þjóðar, sem var útvalin til þess að vera „prestaríki og heilagur lýður“ (II. Móseb. 19:6). Fellt úr gildi í Nýja Testamentinu? Áður en vér ljúkum þessari grein er samt eftir að svara a. m. k. tveimur spum- ingum: „Eru ekki öll slík lagafyrirmæli um mataræði afnumin í Nýja Testament- inu?“ og „Tekur ekki vútrun Péturs, sem sagt er frá í Postulasögunni, 10: 9—28, af allan vafa um þetta?“ Sem svar við þessum spurningum skal bent á, að þess er hvergi getið, að Jesús Kristur hafi nokkru sinni gefið í skyn að fæða, sem ekki hentaði mönnum á tím- um lögmálsins, hentaði þeim á tímum náðarinnar. Það er vitanlega áreiðanlegt, að Jesús neytti sjálfur aldrei fæðu, sem bönnuð var í lögmálinu, því að Pétur, sem var með Kristi í þrjú ár, og hlýtur að hafa matast oft með honum á þeim tíma, segir: „Því að aldrei hef ég etið neitt vanheilagt og óhreint" (Postulasag- an 10:14). Einn ritningarstaður er oft til- færður sem sönnun þess, að Jesús hafi ekki farið eftir fyrirmælum lögmálsins um mataræði, en Jrað er hjá Markúsi 7. kap. 15—23. v. (sjá einnig Matth. 15: 10—20), en það er auðsætt, að þetta er máltækinu algerlega óviðkomandi, Við þetta tækifæri var Jesús, eins og textinn sýnir, ekki að tala um neyzlu einhverra fæðutegunda heldur um siðaathafnir Faríseanna. Að því er snertir hina merkilegu vitr- un Péturs, leiðir nákvæm athugun á frá- sögninni í ljós, að tilgangurinn var ekki sá, að sannfæra Pétur um að dýr, sem hefði verið bannað að nota til fæðu á tím- um lögmálsins, hefðu nú verið hreins- uð og gerð hæf til átu á tímurn náðarinn- ar, heldur hitt, að heiðingjarnir, sem Gyðingar höfðu fram að þessu fyrirlitið og talið óhreina ættu ekki að skoðast það framvegis, og hann mætti ekki sniðganga þá eða neita Jreim um fagnaðarerindið: „Guð hefur sýnt mér,“ segir Pétur, „að ég á engan mann að kalla vanheilagan eða óhreinan“ (28. v.). Ef fæðislöggjöf Guðs var gefin vegna heilsu og líkamlegrar velferðar mannsins, eins og vér teljum, er það þá ekki í sam- ræmi við heilbrigða skynsemi, að trúa því, að það sem var holl fæða á dögum Móse, sé holl fæða í dag, og það sem var óheilnæm fæða á hans dögum sé óheil- næm fæða enn í dag? Urskurður fjörefnafræðingsins og læknisins. Hvað sem segja má um neyslu svína- kjöts í tempruðu eða köldu loftslagi, verður því ekki neitað, að það er áreiðan- lega óholl fæða í heitum löndum, og DAGRENNING 35

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.