Dagrenning - 01.04.1958, Side 7

Dagrenning - 01.04.1958, Side 7
DAGRENNING 1. TOLUBLAÐ 13. ÁRGANGUR REYKJAVÍK JAN.-APRÍL 1958 Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavík. Simi 1-11-96 Ég gat um það i siðasta hefti Dagrenningar að ég hefði verið ákveð- inn í að láta þann árgang verða liinn síðasta frá minni hendi, því aðstœður rnínar leyfðu tcepast að lialdið yrði áfram. En þegar á átti að herða lét ég undan margvislegri áleitni um að gefa ritið út eitt árið enn, þó það, vegna lasleika mins siðan um áramót, sé síðbúnara en vera átti. Það sem þó ef til vill hefir ráðið mestu um að ég læt ekki af þvi verða að hœtta nú, eru þær opinberu árásir á þær kenningar, sem Dagrenning hefir flutt á undanförnum árum, sem nokkuð hefur borið á, bæði í fyrra og nú i ár. Slíkum árásum er, af mörgum ástæðum, ógerlegt að láta ósvarað, enda er liklegast að þær hafi nú fyrst birzt, af því ætlað var að litið yrði um varnir, þegar Dagrenning væri hætt að koma út, því að hún er eina ritið, sem haldið hefir fram sanngildi spádóma Bibliunnar og þeirri skoðun að vestræn- ar þjóðir séu „hinn týndi ísrael". Andstæðingar þessarar skoðunar hafa látið sér nægja til þessa að leggja kollhúfur, þegar málið bar á góma, eða telja það ekki umræðuvert, þvi það raskaði fyrirfram viðteknum skoðunum þeirra og „visindalegum“ niðurstöðum viðurkenndra kenningakerfa. Nú fyrir skemmstu birtust i einu þessara málgagna, „Kristilegu viku- blaði", tvær greinar, sem heita „Sannleikurinn um Júda og ísrael", þar sem hver villan annarri verri er borin á borð fyrir lesendurna og niður- staðan er auðvitað eftir þvi. Þar segir m. a. i lokin: „Allt tal um týndar ættkvislir og endurfundnar i Bretum eða íslendingum er þvi þvaður eitt og hugarburður, sem ekki fær staðizt skýran vitnisburð Guðs orðs.“ — í næsta liefti Dagrenningar mun þessi furðulega ritsmið blaðs þessa tekin til athugunar og verður sýnt fram á hvernig ýmist gengið er fram hjá eða rangsnúið skýrri frásögn Ritningarinnar til þess að geta komizt að fyrirfram ákveðinni niðurstöðu. Þar eru áreiðanlega ekki á ferðinni menn, sem leita sannleikans af innri þörf, eða vilja að þvi vinna að hann DAGRENNING 1

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.