Dagrenning - 01.04.1958, Side 10
c---------------------------------------------------------------------------------'
þessa, né heldur mun verða,“ og í Danielsbók (12. kap.): ,,Og það skal
verða svo mikil hörmungatíð, að slík mun aldrei hafa verið, frá því er
menn urðu fyrst til og alt til þess tíma.“ Um það verður tæpast deilt,
að allir þessir Ritningarstaðir eiga við hina sömu atburði, þó skýrust og
gleggst sé frásögnin í Opinberunarbókinni, þar sem beinlínis er sagt að
um átök í geimnum (loftinu) verði að ræða. Engin kynslóð á undan þeirri
sem nú lifir, gat upplifað geimstyrjöld, af þeirri einföldu ástæðu að
menn kunnu þá enn ekki að ferðast um loftið, né heldur höfðu þá tækni
tiltæka, sem loftsiglingunum fylgir. En vor kynslóð veit það — hver ein-
asti maður veit það — að næstu átökin hljóta að verða í himingeimnum,
og vér vitum það einnig að afleiðingar þeirra átaka verða slíkar, að þess
munu engin dæmi „frá því er menn urðu fyrst til og alt til þess tíma.“
Eyðileggingarmáttur geimvopnanna og hæfnin til að skjóta þeim í ákveðin
mörk úr órafjarlægð er orðin svo mikil, að lítil von er til að verja þau
svæði sem árás verður beint að, nema með mjög öflugum gagnárásar-
tækjum.
Þetta þarf ekki að rekja hér nánar, um þetta deila menn ekki lengur.
En það sem menn þyrftu að veita athygli í þessu sambandi er, að þetla
hefir allt verið sagt fyrir. Þær tilvitnanir, sem hér að framan er vísað til
nægja til að sanna þetta. Og þar sem þetta gerist í sambandi við það að
„hinn sjöundi“, eða síðasti engillinn hellir úr reiðiskál sinni, er jafn-
framt greinilegt að þá er komið að lokastiginu og framundan er hrun
þeirra skipulagshátta, sem vér höfum búið við um aldaraðir. Fyrir þá,
sem hugleiða spádóma Ritningarinnar er þetta augljóst mál.
Hinar mögnuðu eldflaugar og gervitunglin, sem nú þjóta með ofsa-
hraða umhverfis jörðina, en eru aðeins byrjunarstig geimferðanna, gefa
nokkra hugmynd um hvers vænta má í framtíðinni.
Árið 1958 verður ár mikilla atburða á sviði geimsiglinga og fjarstýrðra
geimvopna. Þróunin heldur áfram með sívaxandi hraða og mannkynið
heldur áfram að greinast í andstæðar fylkingar þrátt fyrir allt friðarskrafið,
sem er aðeins blekkingatal til að friða í bili fólkið á jörðunni, en um
leið að afvegaleiða það, svo það sjái ekki í hvert óefni lífi þess og fram-
tíð er stefnt. Það er óskaplegt til þess að vita að þeir menn, sem þjóðimar
vænta af andlegrar leiðsagnar, svo sem prestar þeirra og aðrir slíkir „and-
legir“ leiðtogar, skuli bregðast svo gersamlega hlutverki sínu, að vísa mann-
kyninu á réttan veg, sem raun ber vitni. En hvemig má annað vera, þegar
þeir telja spádóma Biblíunnar marklaust hjal eða „síðari tíma tilbúning“,
eða þegar bezt lætur „viðvaranir sem reyndust réttar ef ekki var farið
eftir þeim,“ eins og þetta nú mun vera orðað. Em það ekki fyrst og
fremst þessir blindu leiðtogar, sem sökina eiga á því hvemig komið er
s---------------------------------------------------------------------------------
4 DAGRENNING