Dagrenning - 01.04.1958, Side 29
KEMUR KRISTUR EKKI AFTUR?
Þá er ég kominn að því atriði í bréfi
yðar, sem ég yðar vegna vildi einna sízt
ræða, en það er spurningin um endur-
komu Krists.
I bréfi yðar segið þér:
„Það Guðsríki, sem Kristur boðar,
er andlegt ríki, ekki af þessum heimi.
Fyrirheitin um Landið helga, Jerúsal-
em og ísrael eru þaðan í frá aðeins
tákn andlegra og eilífra staðreynda,
alveg eins og hin mörgu fyrirheit um
hásæti Davíðs og ævarandi konungdóm
Davíðs ættar.“ (Lbr. mín).
Þetta eru yðar óbreytt orð.
Ef þessi orð yðar eru tekin eins og
þau eru töluð, geta þau ekki orðið skil-
in á annan veg en þann, að þér afneit-
ið með öllu hugmyndinni um endur-
komu Krists.
Nú eru fjölmargir staðir í Heilagri
ritningu, sérstaklega í Nýja testament-
inu, sem segja það beinlínis, að Kristur
muni koma aftur.
Það viljið þér auðvitað allt skilja
,,andlega“, eins og þér kallið það, en
það þýðir, að ekkert sé að marka það,
sem sagt er. Hér skal fátt eitt nefnt.
í 24. kap. Mattheusar guðspjalls segir:
,,En er hann sat á Olíuf jallinu, gengu
lærisveinarnir til hans og sögðu eins-
lega: Seg þú oss, hvenær mun þetta
verða og hvert er tákn komu þinnar
og enda veraldar?" í sama kapítula
segir einnig: „Þannig mun verða koma
Mannssonarins." Og enn segir 1 tilsvar-
andi kapítula hjá Lúkasi: „Þannig
skuluð þér vita, að þegar þér sjáið
þetta koma fram, er guðsríki í nánd.“
í Postulasögunni standa þessi frægu
orð, töluð af englum Drottins: „Þessi
Jesús, sem var upp numinn frá yður
til himins, mun koma á sama hátt og
þér sáuð hann fara til himins.“ Loks
skal minnt á alvöruorð Péturs í II. Pét-
ursbréfi, sem mér finnst þér höggva
ískyggilega nærri með hinni afdráttar-
lausu yfirlýsingu yðar. Þar segir:
„Þetta skuluð þér þá fyrst vita, að á
hinum síðustu dögum munu koma spott-
arar með spotti, er framganga eftir eig-
in girndum og segja: Hvað verður úr
fyrirheitinu um komu hans? Því að
frá því feðurnir sofnuðu, stendur allt
við sama eins og frá upphafi verald-
ar.“ — Og þar stendur enn: „En vér
væntum eftir fyrirheiti hans (Krists)
nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem
réttlæti býr.“ Fleira mætti enn nefna,
þó að það verði ekki gert að sinni.
Ef kenning yðar á að fá staðizt, fæ
ég ekki betur séð en að afskrifa verði
með öllu þessi og önnur ummæli um
endurkomu Krists. Það virðist kirkjan
líka hafa gert, því að ég minnist þess
ekki að hafa nokkru sinni heyrt flutta
prédikun um endurkomu Krists.
Ef ríki Krists er eingöngu „andlegt
ríki og ekki af þessum heimi“, eins og
þér segið, hvað verður þá um fyrirheit-
in um endurkomu hans og stofnun
Guðsríkis hér á jörðu?
Samkvæmt yðar kenningu verður hér
á jörð sífellt framhald þess helvítis-
ástands, sem nú ríkir hér. Samkvæmt
yðar kenningu er ekkert að marka allt
tal postulanna og guðspjallanna um
nýtt ríki — Guðsríki —, sem Kristur
á að stofna og stýra í þúsund ár. Það
ber allt að skilja „andlega“ og fer allt
fram í „öðrum heimi“. Þannig er hverri
kenningunni af annarri afneitað eða
hún heimfærð til ástands, sem er gagn-
stætt orðum Biblíunnar. Og svona er
haldið áfram, þangað til ekkert er orð-
ið eftir, og trú manna á Guð, Frelsar-
ann og Biblíuna að engu orðin. Annað-
DAGRENNING 23