Dagrenning - 01.04.1958, Side 46
hönd Drottins er ekki svo stutt, aS hann
geti ekki hjálpað,“ segir spámaðurinn,
„en það eru misgjörðir yðar, sem skiln-
að hafa gjört milli yðar og Guðs yðar,
og syndir yðar, sem byrgt hafa auglit
hans fyrir yður, svo að hann heyrir
ekki.“ (Jes. 59, 1—2). Syndin er
brennimark, og Guð mun ekki uppfylla
loforð sín um guðdómlegan styrk, fyrr
en við sem einstaklingar og þjóð snú-
um baki við því illa.
Amerískur þingmaður fullyrti fyrir
nokkru: „Flest okkar vandamál hafa
skapazt vegna þess, að við höfum
gleymt trú feðra vorra, og fetum ekki
í fótspor Drottins."
Það er eitt af grundvallarboðum
Guðs, að vér uppskerum eins og vér
sáum. „Laun syndarinnar er dauðinn."
„Sú þjóð, sem syndgar, skal deyja.“
„Ég deyddi æskumenn yðar með sverði.
.... og þó hafið þér ekki snúið yður
til mín, segir Drottinn.“
Guð talaði ljóslega til okkar í síðasta
stríði, en við höfum gleymt þeim, sem
féllu í stríðinu.. Við höfum gleymt rödd
Drottins, og fljótum nú sofandi að
feigðarósi. Guð gefi að við fáum snúið
við áður en það er of seint.
í sinni frægu hvatningu um þjóðlegt
afturhvarf, sagði Abraham Lincoln:
„Við höfum gleymt Guði. Hin hræði-
lega óhamingja styrjaldarinnar, sem
nú leggur landið í auðn, er refsing
Guðs.“
Jeremía sá fyrir afdrif þjóðar sinn-
ar, að Babyloníumenn mundu bera sig-
ur af hólmi, en á örlagastundinni hvatti
hann samt þjóðina til að snúa sér til
Guðs, augliti til auglitis við innrásar-
herinn.
Sagt hefir verið: „Stöðug árvekni
er endurgoldin með frelsi. Þjóðarvakn-
ing er okkur lífsnauðsyn.
Það er ýmislegt, sem bendir til þess,
að vakning sé í aðsigi.
1. Sterkar hreyfingar innan margra
kirkjufélaga og kristilegra sam-
taka, og boðun fagnaðarerindisins
meðal barna, hefir Guð notað til að
vinna þúsundir fyrir Krist.
2. Ýmis leikmannasamtök vinna nú
geysimikið starf í þágu nýrrar
þjóðvakningar.
3. Kristilegar útvarpsstöðvar og
ýmis önnur útvarpsdagskrá end-
urnærir þjóðina eins og dögg með
dýrðlegu trúboði um Jesú Krist.
Þær útvarpsstöðvar, sem eru í
þjónustu trúboðsins frá morgni til
kvölds, eru máttug verkfæri í
hendi Guðs til að vekja þjóðina og
leiða hana á veg réttlætisins.
4. Biblíu-ráðstefnur og Biblíu-tjald-
búðir rísa upp víðs vegar og kynna
fagnaðarerindið fyrir þúsundum
manna hvert sumar.
5. Nýir kristilegir Biblíuskólar bæt-
ast 1 hópinn og þeir eldri auka
starfssvið sitt.
6. Hin volduga hreyfing, „Krists-
æskan“, geysar um löndin og heldur
risavaxnar vakningasamkomur, er
draga að sér þúsundir manna.
7. Amerískir trúboðar hafa bundizt
samtökum um að sveifla sverði
Drottins í stórborgum álfunnar til
boðunar fagnaðarerindisins. —
Ég leyfi mér að halda því fram,
að þetta séu teikn, sem benda til
að voldug vakning sé í nánd.
Eins og prestur Fyrstu öldungakirkj-
unnar í Cheyenne, Wyoming, sagði ný-
lega: „Það getur hugsazt að við séum
mitt í vakningu, þótt við gerum okkur
ekki grein fyrir því.“ Það getur verið,
en ég efast um það.
40 DAGRENNING