Morgunblaðið - 25.02.2015, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
BAKSVIÐ
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íbúar við Hólavað 1-11 í Norðlingaholti hafa
komið sér upp skilvirku skipulagi til að
standa að viðhaldi og snjómokstri við göt-
una. Kjartan Þórðarson, formaður hús-
félagsins, segir að íbúar hafi allir flutt inn á
svipuðum tíma fyrir nokkrum árum. Íbúar
lögðu svo gangstíga, malbikuðu götuna og
settu upp ljósastaura á eigin kostnað.
Ástæðan er sú að þessir innviðir eru innan
lóðamarka íbúa og sér Reykjavíkurborg því
ekki um uppbyggingu eða viðhald á slíkum
lóðum. Nokkrir tugir slíkra lóða eru í
Reykjavík og þar á meðal er málum svo
háttað í sjö botnlöngum í Hólavaði og
Hólmvaði í Norðlingaholti.
„Við gerðum samning við Orkuveituna um
að fá að tengjast við einn staur efst í göt-
unni. Við borgum af því 20 þúsund kr. á ári
í rafmagnsgjöld fyrir þá fjóra staura sem
við settum upp,“ segir Kjartan. Hann segir
að íbúar standi að baki snjómokstri með
skóflu og salti sjálfir götuna. „Þetta hefur
aldrei verið neitt mál og fólk hefur gripið
sér skóflu þegar þess hefur þurft,“ segir
Kjartan en bætir því við að sjaldan sé snjó-
þungt í götunni. „Einstaka sinnum hefur
bíll frá borginni komið inn botnlangann og
hreinsað götuna, enda átta þeir sig kannski
ekki á því að þarna er einkagata. Það er
ekki eins og við setjum upp skilti,“ segir
Kjartan.
Gáfu Orkuveitunni holræsakerfið
Hann segir að holræsakerfið undir göt-
unni hafi einnig verið á ábyrgð íbúa. „Við
ákváðum að gefa borginni holræsakerfið og
Orkuveitan samþykkti að taka við því. Þeir
sendu okkur bréf þess efnis að þeir hefðu
formlega tekið við þessu,“ segir Kjartan og
samsinnir blaðamanni um að slíkt hafi verið
léttir. Hann segir að íbúar hafi íhugað að
gera slíkt hið sama og gefa eftir hluta lóða
sinna til borgarinnar. Í framhaldinu gæti
hún svo séð um viðhald innviðanna. „Til
gamans má geta þess að það gilda ólíkar
umferðarreglur fyrir okkur. Við þurfum að
veita umferð forgang úr báðum áttum þeg-
ar kemur að gatnamótum, en ef við værum
á borgarlandi þá gilti hægri réttur í um-
ferðinni,“ segir Kjartan.
Samhentir íbúar sinna viðhaldi
Íbúar við Hólavað 1-11 bera ábyrgð á gangstéttum, götu og ljósastaurum Gáfu borginni
holræsin Hafa áhyggjur af ábyrgð ef slys ber að höndum á gangstétt sem er í eigu hins opinbera
Morgunblaðið/Ómar
Hólavað Íbúar hafa sett upp ljósastaura og lagt götur í Hóla- og Hólmvaði. Við Hólavað 63-75 eru tveir ljósastaurar.
Ljósmynd/Viðar Ævarsson
Snjómokstur Íbúar við botnlanga í Hólavaði sinna snjómokstri. Viðhald og snjómokstur er á herðum íbúa í sjö botnlöngum í Hóla- og Hólmvaði.
„Við höfum verið samtaka í öllu
sem við gerum. Bæði við frágang á
lóð sunnan- og norðanmegin og
þegar kemur að
samningum um
magninnkaup á
trjám, gangstétt-
arhellum, tún-
þökum, vegg-
hleðslum, og
annað sem til
fellur,“ segir
Kjartan.
Þrátt fyrir að
vel hafi gengið að koma sér saman
um verkefnin segir hann þó íbúa
áhyggjufulla vegna gangstéttar í
eigu borgarinnar. Íbúar voru skyld-
aðir til þess að leggja gangstíg á
milli húsa í botnlanganum. Hann
fellur ekki innan lóðarmarka hjá
neinum einum íbúa og er í eigu
Reykjavíkurborgar. ,,Við höfum
áhyggjur af því að ef einhver dett-
ur á gangstéttinni, sem kvöð var á
okkur um að legga, þá erum við,
íbúarnir, ábyrgir fyrir því,“ segir
Kjartan. „Þess vegna vorum við að
ræða það á síðasta húsfundi hvort
við gætum gefið borginni götuna.“
Fær borgin götuna að gjöf?
ÍBÚUM GERT AÐ LEGGJA STÍG SEM ER Í EIGU HINS OPINBERA
Kjartan
Þórðarson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Steypa Gangstétt er í eigu borgarinnar.
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
36% þeirra sem beita drengi
kynferðislegu ofbeldi
eru ókunnugir karlar.