Morgunblaðið - 25.02.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
23 hvalalíkön í raunstærð verða til sýnis á hvalasýning-
unni Whales of Iceland sem formlega verður opnuð á
morgun. Að sögn Harðar Bender, stofnanda og stjórn-
arformanns sýningarinnar, hefur verkefnið tekið um
tvö ár og er þetta fjárfesting upp á hundruð milljóna
króna.
„Hugmyndin kemur af þeirri eðlilegu ástæðu að
stærstu dýr heimsins eru hvalir. Við Íslandsstrendur
eru mestar líkur á því í öllum heiminum að sjá hvali
þegar fólk fer í hvalaskoðun. Því er tilvalið að setja
upp þetta safn hvölum til heiðurs,“ segir Hörður. Að
sögn hans sjást hvalir í 96-97 prósentum tilvika í
hvalaskoðunarferðum hér.
Fá stærri bita af kökunni
Hann segir að 30 milljónir manna fari hvalaskoðun í
heiminum á hverju ári og 30 prósent ferðamanna sem
til Íslands koma fara í hvalaskoðun. „Það er því
ástæða til þess að áætla að það sé eftirspurn eftir því
að skoða hvalina. Bæði vonumst við til þess að þetta
styrki áhugann á hvölum, en einnig að við fáum stærri
bita af þessari köku sem þessar 30 milljónir manna
eru,“ segir Hörður.
Mikil vinna liggur að baki hönnun sýningarinnar.
„Við vorum svo heppnir að fá listamenn sem hafa verið
að vinna í hvalaiðnaði og þeir þekktu t.a.m. litina sem
eru á hverjum hval. Það er mikilvægt þegar um er að
ræða hvali sem ekki sjást við Ísland lengur, eða eru
sjaldséðir hér,“ segir Hörður.
2.000 fermetra sýningarrými
Til sýnis verða allir hvalir sem sést hafa við Íslands-
strendur. ,,Tveir þeirra finnast varla lengur. Það eru
íslenski sléttbakurinn og sandlægja,“ segir Hörður.
Verkefnið er unnið í samstarfi við hvalaskoðunarfyr-
irtæki. Tveir aðilar koma að fjármögnuninni. Það eru
ITF (Icelandic tourism fund) sem Icelandair og
lífeyrissjóðirnir standa að baki auk Harðar.
Formleg opnun er á morgun en á föstudag gefst al-
menningi kostur á að skoða sýninguna. Sýningarrýmið
er 2.000 fermetrar og er staðsett á Fiskislóð 23 við
Granda.
Morgunblaðið/Golli
Glæsilegt Mikil vinna liggur að baki hönnun sýningarinnar en listamenn sem hafa verið að vinna í hvalaiðnaði og þekktu litina sem eru á hverjum hval, komu að hönnuninni.
Allir hvalir sem sést
hafa við Íslandsstrendur
Hvalasafn verður opnað á Fiskislóð á morgun Allir 23
hvalirnir í raunstærð Hundraða milljóna króna fjárfesting
Flottir Hvort sem það eru skíðishvalir eða tannhvalir þá
eru allir íslenskir hvalir á sýningunni glæsilegu.
Keikó Að sjálfsögðu má finna háhyrning sem er líkur
Keikó. Við hlið hans er mjaldur eða hvíthvalur.
Risastórt Sýningarrýmið er heldur betur stórt, 2.000
fermetrar og er það staðsett á Fiskislóð 23 við Granda.