Morgunblaðið - 25.02.2015, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.02.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015 Kynningarfundur verður hjá Ferðaskrifstofunni Óríental að Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík á fimmtudag klukkan 17:30. Á fundinum mun Örnólfur Árnason, fararstjóri, kynna ferða- lag, sem Óríental skipuleggur til eyjarinnar Balí í Indónesíu frá 1. til 14. maí. Áskrifendum Morgun- blaðsins býðst 30% afsláttur af ferðinni í gegnum Moggaklúbbinn. Fram kemur í tilkynningu frá Óríental, að fyrstu dögum ferð- arinnar verði varið á miðri eynni, í bænum Úbúd þaðan sem stutt sé til flestra fegurstu og for- vitnilegustu staða á Balí. Verður farið í daglegar kynnisferðir það- an. Síðari hluta ferðarinnar er dvalið í strandbænum Sanúr í vikutíma. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Á Bali Brúðhjón framan við hofið Pura Ulun Danu Bratan við Bratan vatn. Kynna ferð til Bali  Áskrifendum Morgunblaðsins býðst 30% afsláttur af ferðinni Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Verkefnisstjórn, sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra skipaði í lok síð- asta árs til að fjalla um sæstreng milli Íslands og Bretlands, hefur komið saman tvisvar til form- legra funda. Í stjórninni eiga sæti Ingvi Már Pálsson, skrif- stofustjóri í at- vinnuvega- og ný- sköpunarráðu- neytinu, Ragna Árnadóttir, að- stoðarforstjóri Landsvirkjunar, og Þórður Guð- mundsson, forstjóri Landsnets. Að sögn Ingva Más styttist í að út- boð verði auglýst hjá Ríkiskaupum á gerð hagkvæmniathugunar og ábatagreiningar á sæstrengnum fyr- ir íslenskt þjóðarbú. Eitt helsta verkefni þeirrar greiningar er að meta áhrif sæstrengs á heimili og fyrirtæki í landinu og hvort raforku- verð kæmi til með að hækka. Reynsla annarra þjóða, eins og Norðmanna, er að raforkuverð hefur hækkað með tilkomu sæstrengs en þá hafa stjórnvöld komið með mót- vægisaðgerðir til að draga úr áhrif- unum. Ingvi Már bendir á að Norð- menn hafi með sæstrengjum aukið mjög tekjur sínar af raforkusölu. Annars sé raforkukerfi Norðmanna að mörgu leyti ólíkt því íslenska og t.d. miklar sveiflur í vatnsbúskapn- um sem gerir Norðmenn háðari inn- flutningi á raforku. „Raforkuverðið er eitt af fjöl- mörgum atriðum sem þarf að skoða vandlega, það eru á þessu plúsar og mínusar sem þarf að vega saman,“ segir Ingvi Már en verkefnisstjórn- inni var ætlað að láta vinna dýpri greiningu en fram fór hjá Hagfræði- stofnun Háskóla Íslands vegna skýrslu ráðgjafarhóps til iðnaðar- ráðherra árið 2013. Helstu verk kláruð í ár Ingvi Már segir verkefnisstjórn- ina ekki hafa sérstakan tímaramma til að vinna eftir en stefnt sé að því að klára helstu verkefnin á þessu ári. Auk fyrrnefndrar hagkvæmni- athugunar er verkefnisstjórninni ætlað að skoða möguleika á orkuöfl- un hér á landi, hvort breyta þurfi löggjöfinni, afla upplýsinga frá Bret- landi um raforkumarkaðinn þar í landi og hvernig Bretar sjá fyrir sér að strengurinn verði starfræktur, hvernig eignarhaldi yrði háttað, arð- semiskröfur o.s.frv. Einnig þarf að skoða tæknilega þáttinn við lagningu sæstrengs, en mikið dýpi er á leiðinni til Bretlands sem myndi gera þetta einn lengsta rafsæstreng í heimi, um 1.000 km með 700-900 MW flutningsgetu. Rannsókn á streng boðin út fljótlega  Áhrif á raforkuverð m.a. skoðuð Ingvi Már Pálsson Stofnfundur Prentsöguseturs, sem verða mun til húsa á Eyrarbakka, var haldinn um síðustu helgi. Fram kemur í tilkynningu, að um- ræða um Prentminjasafn hafi lengi verið í gangi, enda fáar stéttir sem gengið hafi í gegnum jafn róttækar breytingar í tækni og vinnubrögðum og bókagerðarfólk. Tilfinningin fyrir nauðsyn þess að varðveita söguna hafi verið rík innan stéttarinnar. Í markmiðslýsingu og framtíðar- sýn Prentsöguseturs segir m.a. að markmið setursins sé að stuðla að söfnun, skráningu og varðveislu minja sem tengjast prentsmiðju- rekstri á Íslandi frá upphafi, með megináherslu á þróun tækjabúnaðar, efnisnotkunar og vinnubragða. Einn- ig að stuðla að rannsóknum, sýn- ingum og kynningum á því sem setrið hefur yfir að ráða þessu tengt og því rannsóknarstarfi sem fram fer hverju sinni. Prentsögusetur hyggst ná þessum markmiðum sínum með eigin starfi og faglegu samstarfi við sérfræðinga og áhugafólk, stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga, ásamt því að koma á samstarfsverkefnum innanlands og utan. Setrið leggur áherslu á að opna dyr sínar fyrir færustu vísindamönn- um og einnig fyrir áhugafólki um sög- una. Er því ætlað að miðla upplýs- ingum um rannsóknir sínar til almennings og fræðasamfélagsins eftir því sem við á hverju sinni. Kosið var í stjórn og varastjórn Prentsöguseturs á stofnfundinum. Prentsögusetur stofnað Ljósmynd/Ragnheiður Traustadóttir Stjórn Prentsöguseturs Svanhvít Stella Ólafsdóttir, Jón Arnar Sandholt, Haukur Már Haraldsson, Svanur Jóhannesson, Heimir Br. Jóhannsson og Þóra Elfa Björnsson. Þórleif V. Friðriksson vantar á myndina.  Markmiðið að varðveita sögu prentsmiðjureksturs Dansfjör 60+ kl in gs þj ál fu n 60+leikfimi Slökun Jóga 60+ Sj úk ra þ já lf un Heilsumat A ðh al d hj úk ru na rf ræ ði ng s Í form fyrir golfið 60+ - Þín brú til betri heilsu www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf – Ertu 60 ára eða eldri? – Viltu bæta hreyfigetu og jafnvægi? – Langar þig að verða styrkari og orkumeiri? – Viltu hreyfa þig í skemmtilegum félagsskap? – Viltu æfa í notalegu umhverfi? Ei ns ta k A ðh al d Ný námskeið að hefjast. Fjölbreyttar leiðir fyrir 60 ára og eldri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.