Morgunblaðið - 25.02.2015, Qupperneq 21
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
Klettagarða í því sambandi. Þá eru
miklar hvelfingar við neysluvatns-
bólin í Heiðmörk.
Laugarnesið malar gull
Holurnar 10 á Laugarnessvæð-
inu eru að jafnaði um 1.000 metrar
djúpar og dælur eru á 150 metra dýpi
og anna um 14% af heitavatnsþörf
höfuðborgarsvæðisins. Um 2-3% fást
úr borholum í Elliðaárdalnum, um
fjórðungur fæst frá Reykjum og
Reykjahlíðarsvæðinu í Mosfellsbæ og
rösklega helmingur frá jarð-
varmavirkjunum á Nesjavöllum og
Hellisheiði. „Laugarnesið malar gull
og það er ekkert lát á því. Sjálfsagt er
einsdæmi á heimsvísu að finna í höf-
uðborginni aðra eins orkulind undir
fótum fólksins, lind sem skapar því
svo mikil lífsgæði,“ segir Páll Baldvin
Sveinsson að síðustu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tæki Gamalt stjórnborð Bolholtsstöðvarinnar, sem nú er alfarið fjarstýrt.
Príl Blaðamaður bröltir upp úr brunni eftir undarlega ferð í iðrum jarðar.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 2015
Ef kemur til kjarnorkustyrjaldar ættu
Reykvíkingar að horfa til Bústaða-
kirkju. Þegar kirkjan var hönnuð í
kringum 1965 var atómsprengjan við-
varandi ógn og framsýnir menn í bygg-
inganefnd kirkjunnar vildu byggja sam-
kvæmt því. Kjallari undir austurálmu,
þar sem er safnaðarheimili, er því sér-
styrkur, burðarþolið mikið, veggirnir
þykkir og rýminu skipt upp í afmörkuð
hólf. Blessunarlega hefur aldrei komið
til þess að neinn hafi þurft að leita í
kirkjuna vegna stríðhættu. Mannvirkið
sem slíkt segir þó nokkra sögu um tíð-
aranda og með hverju fólk reiknaði fyrir 40-50 árum eða svo, en Bústaðakirkja
var vígð á aðventu 1971. Raunar er hið rammgerða virki í Bústaðakirkja ekki
einsdæmi, einnig má nefna kjallara lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu þar
sem stjórnstöð almannavara var í áraraðir. sbs@mbl.is
Kirkjan er kjarnorkubyrgi
Bústaðakirkja Allur er varinn góður.
Tveir nytjamarkaðir eru í Háaleitis-
hverfi. Í verslunarmiðstöðinni Austur-
veri við Háaleitisbraut er Basarinn,
sem rekinn er Kristniboðssambandinu.
Þar eru til sölu ýmsir munir úr búi
fólks, svo sem bækur, plötur, geisla-
diskar, myndbönd- og mynddiskar,
fatnaður, málverk, leikföng, lampar,
skrautmunir, eldhúsáhöld, borðbún-
aður og svo framvegis. Einnig eru þar
minni húsgögn, raftæki og vel með far-
inn fatnaður. Allur ágóði af sölunni á
Basarnum rennur til starfs félagsins. Basarinn er opinn virka daga frá kl. 11:00
til 18:00, en um helgar er lokað.
Í Fellsmúla 28 er Góði hirðirinn, nytjamarkaður Sorpu og líknarfélaga. Þar
fæst allt milli himins og jarðar, m.a. húsgögn, húsbúnaður, smávara, bækur,
plötur, DVD og CD diskar, barnavörur, raftæki, hjól, skíði og skautar, svo eitt-
hvað sé nefnt. degi.Opið er frá 12 til 18 virka daga, en lokað um helgar.
Tveir nytjamarkaðir í hverfinu
Fjölbreytni Margt er þarna að finna.
Árin í kringum 1960 voru tími
uppbyggingar í Reykjavík.
Byggðin stækkaði og fólkinu
fjölgaði. Það kallaði á aukna öfl-
un á heitu vatni og í því augna-
miði voru boraðar 16 holur í
Elliðaárdal og Laugarnesi. Með
þessu tókst að tryggja borgar-
búum þau lífsgæði sem kallað
var eftir. Árið 1972 náði hitaveit-
an til alls 98% borgarbúa, en til
dæmis Blesugrófin varð eftir,
enda var byggðin þar dreifð og
hverfið óskipulagt.
Til viðbótar framkvæmdum
innan borgarinnar var orkuöflun
að Reykjum í Mosfellsbæ efld.
Um 1990 komst Nesjavallavirkj-
un í Grafningi í gagnið og Hellis-
heiðarstöð enn síðar, en frá
báðum orkuverunum liggja
sverar pípulagnir til borgar-
innar.
Meira vatn
LÍFSGÆÐIN VORU TRYGGÐ
Íþróttafélagið Fram hefur þjónað
íbúum Háaleitis í rúma öld en svo
verður ekki mikið lengur þar sem
félagið hyggst flytja alfarið í Graf-
arholt og Úlfarsárdal. Ólafur Arn-
arson, stjórnarformaður Fram, seg-
ir að félagið verði þó enn um sinn í
Safamýrinni.
Við verðum ekki á tveimur stöð-
um til langs tíma en að sama skapi
viljum við ekki fara fyrr en við get-
um skilið við Safamýrina í góðum
farvegi,“ segir Ólafur og bætir við
að verkið sé ekki unnið í flýti.
„Við viljum að yngri iðkendum
verði tryggt áframhaldandi íþrótta-
og tómstundastarf. Þetta ferli þarf
því að vinna vandlega og við erum
að ræða við borgaryfirvöld um
þessi mál.“ Hann segir mikinn
meirihluta iðkenda hjá Fram koma
úr nýju hverfunum tveimur. „Um
70 til 80% iðkendanna koma frá
Grafarholti og Úlfarsárdal.“
Aðspurður hefur hann ekki
áhyggjur af því að félagið sé að
yfirgefa sínar fornu heimaslóðir.
„Við erum nú orðnir býsna dreifðir
Framararnir og ég bý í Kópavogi
sjálfur. Vissulega verða þetta við-
brigði en Framarar verða samt allt-
af Framarar.“ sh@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fögnuður Fram vann Stjörnuna í úrslitaleik deildabikarsins í desember.
Safamýrin verði í
góðum farvegi
Fram finnur nýja
heimahaga í út-
hverfum borgarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Stökk Þessi Framari var óárenni-
legur í leik liðsins gegn Haukum.