Morgunblaðið - 25.02.2015, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. Alvarlegt umhverfisslys
2. Hver einasta rúða splundraðist
3. Bréfberi blóðbitinn tíu sinnum
4. Talin hafa tælt stúlkurnar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurður Sverrir Pálsson kvik-
myndatökumaður er einn af heiðurs-
gestum Stockfish - evrópskrar kvik-
myndahátíðar í Reykjavík sem nú
stendur yfir í Bíó Paradís. Sigurður
mun ræða verk sín og sitja fyrir svör-
um eftir sýningar á þremur kvik-
myndum sem hann festi á filmu. Þær
eru Tár úr steini frá árinu 1995, Land
og synir frá 1980 og Kaldaljós frá
árinu 2004. Tár úr steini var sýnd í
gær en Land og synir verður sýnd í
kvöld kl. 18 og Kaldaljós á morgun á
sama tíma. Ásgrímur Sverrisson stýr-
ir umræðum að sýningum loknum.
Sigurður nam kvikmyndagerð með
áherslu á kvikmyndatöku í London
School of Film Technique og lauk
námi árið 1969. Meðal þeirra kvik-
mynda sem Sigurður hefur fest á
filmu eru Punktur punktur komma
strik, Útlaginn, Eins og skepnan deyr,
Sódóma Reykjavík og Benjamín dúfa,
Á myndinni sést Sigurður við tökur á
Landi og sonum. Enginn íslenskur
kvikmyndatökumaður hefur myndað
jafnmargar kvikmyndir og Sigurður
eða 15 alls.
Sigurður Sverrir
situr fyrir svörum
Færeyska söngkonan og lagasmið-
urinn Eivør Pálsdóttir heldur þrenna
tónleika með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Norðurljósum í Hörpu, 25. og
26. febrúar nk. Til stóð að halda
tvenna tónleika en þegar orðið var
uppselt á þá var þeim
þriðju bætt við, 26.
febrúar kl. 22. Flutt
verða lög af tveimur
plötum Eivarar, Room
og Bridges
sem kemur
út 27. febr-
úar.
Aukatónleikar með
Eivøru og SÍ í Hörpu
Á fimmtudag Norðan 23-30 m/s með talsverðri snjókomu á norð-
vestanverðu landinu. Norðan 18-25 suðvestantil og snjókoma.
Á föstudag Norðvestan 8-15 m/s norðan- og norðaustanlands
með éljum, en heldur hægari sunnan- og vestantil og bjartviðri.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan og austan 20-28 m/s
sunnan- og vestanlands með snjókomu eða slyddu. Vægt frost.
VEÐUR
Barcelona stendur vel að vígi
í rimmu sinni við Englands-
meistara Manchester City
eftir 2:1-sigur á Etihad-
vellinum í Manchester í gær-
kvöld, í 16 liða úrslitunum.
Luis Suárez skoraði
bæði mörk Börs-
unga í sínum
fyrsta leik á
Englandi eftir
að hann yfirgaf
Liverpool síðasta
sumar. »1
Barcelona í mjög
góðum málum
Handknattleiksmaðurinn Ólafur
Gústafsson sem leikur með Aalborg í
Danmörku er orðinn úrkula vonar um
að geta leikið meira með liðinu á
þessu keppnistímabili. Hann er á leið
til Ósló í þriðja sinn í vetur þar sem
hann fer í aðgerð vegna meiðsla í
hné. „Ég horfi bara til þess að ég hef
góðan tíma til að ná mér á strik fyrir
næsta vetur. Það
er ekkert ann-
að í stöð-
unni,“ segir
Ólafur. »1
Ólafur á leið í þriðju
aðgerðina í vetur
Stjarnan hleypti toppbaráttu Olís-
deildar kvenna í handknattleik í upp-
nám í gærkvöld með sannfærandi
sigri á Fram, 22:17, í Garðabæ. Stjarn-
an komst þar með upp fyrir Fram í 3.
sæti deildarinnar og er tveimur stig-
um á eftir toppliði Gróttu, þegar 18
umferðum af 22 er lokið. Grótta hef-
ur hins vegar unnið báða leiki sína
gegn Stjörnunni í vetur. »2
Þriggja liða einvígi um
deildarmeistaratitilinn
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Einar Páll Einarsson er einn öflug-
asti flugmódela- og flugvélasmiður
landsins, hefur smíðað um 200 módel
fyrir utan 12 mannbærar vélar. „Ég
er núna með tvö módel í gangi og
vinn oft með þrjú samtímis,“ segir
hann.
Módelin tvo eru af Spitfire-vél og
YAK 18P, rússneskri flugvél, sem
skóp keppni í listflugi, að því sagt er.
Þau eru í hlutfallinu einn á móti fjór-
um með tæplega þriggja metra
vænghafi. „Ég er aðallega að dunda í
þessum módelum núna.“
Þegar Einar átti sex ára afmæli,
1953, gaf pabbi hans honum flug-
módel í afmælisgjöf. „Við áttum
heima á Lynghaganum, skammt frá
Reykjavíkurflugvelli, og hann hjálp-
aði mér að setja módelið saman.
Flugvöllurinn var eitt helsta leik-
svæðið mitt upp úr því og áhuginn á
flugvélum kviknaði heldur betur með
þessari gjöf.“ Hann segir að þá hafi
flugvöllurinn og flugvélar þar haft
ákveðið aðdráttarafl. „Nú má helst
ekki hugsa um flugvöllinn, því þá
ertu orðinn hættulegur, og flug er
orðið fráhrindandi fyrir ungt fólk.“
Ekkert skemmtilegra
Fyrir um 10 til 15 árum ætlaði
Einar að finna sér annað áhugamál.
„Ég fann ekkert sem var skemmti-
legra og hélt þessu bara áfram. Ég
sé ekki eftir því. Það er ofboðslega
gaman að smíða flugvélarnar og
fljúga þeim, fyrir utan félagsskapinn
sem þessu fylgir.“ Áréttar að áður
hafi hann fengið mest út úr því að
fljúga módelunum en nú eigi smíðin
sjálf nær allan hug hans.
Nýjasta fullgerða módelið er lítið.
„Það tók mig bara viku að smíða
það,“ segir hann og bætir við að hann
hafi verið nokkur ár með önnur. „Það
er óskaplega gaman að fást við þetta
og ég geri ekki upp á milli
barnanna,“ heldur hann áfram.
Einar stofnaði Flugmódelfélagið
Þyt fyrir nær 45 árum, var fyrsti for-
maður þess og er núverandi formað-
ur. Í tilefni 40 ára afmælisins var
mikil flugsýning og til stendur að
vera með sýningu innanhúss í tilefni
tímamótanna í sumar.
Einar hyggst einnig standa fyrir
flugdegi í júlí nk., þar sem sýnd
verða módel af herflugvélum, og öðr-
um í ágúst, þar sem sýnd verða mód-
el með tveggja metra vænghafi eða
stærra. „Ég setti þessar tvær á sum-
arið,“ segir hann um fyrrnefndu
módelin. „Það getur vel verið að það
sé allt of mikil bjartsýni en á bjart-
sýninni fer ég og að dunda í flugmód-
elum heldur geðheilsunni í lagi. Ég
er atvinnulaus og löggilt gamalmenni
og módelin halda mér gangandi.“
Einar alltaf með tvær í takinu
Stefnt að þrem-
ur módelsýning-
um í sumar
Morgunblaðið/RAX
Flugvél Piper Cub vél Einars Páls Einarssonar fékk sérstaka viðurkenningu á flugsýningu í Bandaríkjunum 2002.
Módel Einar fékk vélina hálfónýta eftir brotlendingu og endursmíðaði hana.