Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.04.2015, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.4. 2015
Græjur og tækni
Þ
ótt tölvutækni sem
annarri tækni fleygi
fram og sú þróun
sem átt hefur sér
stað síðustu áratugi
sé ótrúleg hafa not-
endur ýmissa með-
færilegra raftækja
glímt við sama
vandamál í áranna
rás. Rafhlöður bregð-
ast á ögurstundum og
leita þarf að inn-
stungu til þess að
hlaða dýrgripina að
nýju. Auðvitað hafa
orðið framfarir á
þessu sviði sem öðr-
um, en engu að síður
hafa þær ekki haldist
í hendur við öra þróun tækjanna
sem þær knýja. Eigendur farsíma
fyrir snjallsímabyltinguna muna
eflaust eftir því að ein hleðsla
gat auðveldlega enst í viku, öfugt
við núna, þar sem hlaða þarf
hvern farsíma einu sinni á sólar-
hring að meðaltali. Að hlaða síma
og tölvur er jafnframt tímafrekt
og það samræmist illa þeim tím-
um þar sem allt skal vera taf-
arlaust og aðgengilegt strax.
Vísindamenn við Stanford-
háskóla í Bandaríkjunum hafa nú
þróað nýja tegund rafhlöðu sem
gæti gert fólki kleift að hlaða
síma að fullu á innan við mínútu.
Að sögn forsvarsmanna háskólans
er þessi rafhlaða, sem er búin til
úr áli, jafnframt mun öruggari en
þær litíumrafhlöður sem stuðst er
við í dag í ljósi þess að þær
geta bognað og tekið á
sig högg án þess að
skemmast. Þá getur
ekki kviknað í þessum
nýju rafhlöðum öfugt
við litíumrafhlöður. Talið
er að þessi nýja raf-
hlaða geti valdið
straumhvörfum enda
skiptir skilvirkari varð-
veisla rafmagns
miklu máli
fyrir þau
markmið sem sett hafa verið
hvað endurnýjanlega orku varðar.
Hongije Dai, prófessor í efna-
fræði við Stanford-háskóla, sagði
í samtali við The Guardian í vik-
unni að vel mætti vera að nýja
álrafhlaðan myndi leysa önnur úr-
ræði af hólmi. „Okkur hefur tek-
ist að þróa nýja tegund rafhlöðu
og hún getur komið í stað
alkalínrafhlaðna, sem eru slæmar
fyrir umhverfið, og litíumbattería,
sem öðru hverju kviknar í.“
Akkilesarhællinn yfirstiginn
Dai benti jafnframt á að erfitt
væri að sjá fyrir hvað gæti vald-
ið því að eldur kæmi upp í lití-
umrafhlöðum, sem eru svo al-
gengar í dag. „Það mun ekki
kvikna eldur í nýju rafhlöðunni
okkar. Þú gætir þess vegna bor-
að í gegnum hana, en ekkert
mun gerast. Litíumbatterí brenna
fyrir undarlegustu sakir. Það get-
ur gerst fyrirvaralaust, í bílnum
þínum eða í vasanum eða hvað-
eina.“ Nýja rafhlaðan hefur
ekki aðeins aukið öryggi í för
með sér heldur sagði Dai að
rannsóknarteyminu
hefði tekist að ná fram
„fordæmalausum
hleðslutíma“. Akkiles-
arhæll fyrri
álrafhlaðna
hefur verið
langlífi. Þau
hafa yfirleitt
hætt að virka
eftir um 100
hleðslur eða
svo. Hins vegar hefur frumgerð
nýju rafhlöðunnar hjá rannsókn-
arteymi Stanford verið hlaðin um
7.500 sinnum án þess að slíkt
bitni á virkni hennar. Til saman-
burðar má benda á að venjulegt
litíumbatterí endist í um 1.000
hleðslur.
Niðurstöður teymisins sem
hannaði nýju rafhlöðuna voru
birtar í vísindatímaritinu virta
Nature nú fyrir skemmstu. Þar
skrifuðu höfundarnir: „Þetta er í
fyrsta skipti sem smíðuð hefur
verið ofurhröð álrafhlaða sem þol-
ir meira en eitt þúsund hleðslur.“
Einnig kom fram að einn af
stærri kostum rafhlöðunnar væri
sveigjanleiki hennar. „Þú getur
beygt hana og brett upp á, svo
það væri hægt að nýta hana í
sveigjanlegum handheldum tækj-
um. Þá er ál mun ódýrara í
framleiðslu en litíum.“
Þótt talið sé að þessi nýja ál-
rafhlaða eigi sér bjarta framtíð
er hún þó enn sem komið er
töluvert frá því að knýja neyt-
endavæn raftæki á markaði, í
ljósi þess að hún er nokkru afl-
minni en litíumrafhlöður. „Ég sé
fyrir mér að einmitt núna séu
árdagar nýju rafhlöðunnar. Það
er ansi spennandi,“ sagði Ming
Gong, einn höfunda greinarinnar í
Nature. „Að bæta efnið sem raf-
skautið er búið til úr gæti leitt
til þess að aflið yrði meira, orkan
þéttari. Að öðru leyti býður þessi
rafhlaða upp á allt sem góð raf-
hlaða þarf að hafa; rafskaut sem
eru ódýr í framleiðslu, mikið ör-
yggi, háhraðahleðslu, sveigjanleika
og langlífi.“
Rafhlöður úr áli
sem hlaðast á
innan við mínútu
RANNSÓKNARTEYMI VIÐ STANFORD-HÁSKÓLA KYNNTI Í VIKUNNI
NÝJA RAFHLÖÐU TIL SÖGUNNAR. HÚN ER BÚIN TIL ÚR ÁLI OG GERIR
NOTENDUM KLEIFT AÐ HLAÐA HANA AÐ FULLU Á ÖRSKOTSSTUNDU.
Halldór A. Ásgeirsson haa@mbl.is
Nýja rafhlaðan
þykir mun
öruggari en
hefðbundnar
litíumrafhlöður.
Drónar til einkanota frá fyrirtækinu DJI, stærsta fram-
leiðanda slíkra dróna á markaði, geta nú sent frá sér
myndbönd í ofurgæðum í beinni útsendingu inn á You-
Tube. Þeir eru jafnframt búnir betri staðsetningarbún-
aði til þess að ferðast innan dyra og talið er að þeir geti
átt mikla framtíð fyrir sér við kvikmyndun brúðkaupa.
Drónar sendi út brúðkaup í beinni
Æ
tlunin er að byrja á
því að ráða tíu ein-
staklinga til að byrja
með í prufuskyni í
höfuðstöðvum fyrirtækisins í Red-
mond í Washington og ætlunin er
svo að færa út kvíarnar ef allt
gengur vel. Mary Ellen Smith,
einn æðstu stjórnenda fyrirtæk-
isins, sagði á bloggi Microsoft að
fólk sem glímdi við einhverfu
hefði ýmsa styrkleika sem Micro-
soft þarfnaðist. „Allir einstaklingar
eru ólíkir innbyrðis. Sumir búa yf-
ir miklum hæfileikum til þess að
leggja upplýsingar á minnið eða
huga vel að smáatriðum eða geta
unnið sérstaklega vel með stærð-
fræði eða kóða.“
Fleiri fari að for-
dæmi Microsoft
Samtök einhverfra bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi hafa lýst
yfir ánægju sinni með framtak
fyrirtækisins en hafa jafnframt
gefið út að fleiri fyrirtæki mættu
fara að fordæmi Microsoft og
sýna þeim margvíslegu hæfileikum
sem einhverfir búa yfir aukinn
áhuga.
Ráðningarfyrirtækið Specialist-
erne, sem hefur aðsetur í Bret-
landi og Danmörku, mun sjá um
ferlið fyrir hönd Microsoft. Fyrir-
tækið vinnur fyrir ýmis tölvufyr-
irtæki og markmið þess er að
koma einhverfu fólki á framfæri á
vinnumarkaði þar sem sérhæfðir
hæfileikar þess nýtast. Sarah
Lambert, talsmaður samtaka ein-
hverfra á Bretlandi, sagði í sam-
tali við BBC að það væri gleðiefni
að einhverfir gætu fengið tækifæri
hjá stórum fyrirtækjum á borð við
Microsoft. „Þetta eru virkilega
góð tíðindi að svona stórt fyrir-
tæki skuli vera búið að átta sig á
ónýttum möguleikum sem ein-
hverfir geta opnað á. Einhverfir
eru margir hverjir ótrúlega ná-
kvæmir og áreiðanlegir starfs-
kraftar sem geta komið fjölmörg-
um vinnustöðum að gagni. Hins
vegar eru t.d. aðeins 15% fullorð-
inna einstaklinga með einhverfu í
fullu starfi á Bretlandseyjum.
Smávægileg úrræði til þess að
koma til móts við þarfir þeirra
geta skipt sköpum, t.d. að gera
atvinnuviðtöl þægilegri og hjálpa
þeim að skilja hinar óskrifuðu
reglur vinnustaðarins.“
Einhverfir til starfa
hjá tæknirisa
TÆKNIRISINN MICROSOFT HEFUR NÚ GEFIÐ ÞAÐ ÚT AÐ FYRIRTÆKIÐ ÆTLI SÉR AÐ RÁÐA
TIL SÍN EINHVERFA STARFSKRAFTA TIL ÞESS AÐ HJÁLPA ÞVÍ AÐ VAXA OG DAFNA.
Microsoft hefur nú tekið skrefið og vonast er til þess að fleiri stórfyrirtæki
sjái kosti einhverfra starfskrafta.
AFP
Gömlu góðu far-
símarnir voru vissulega
takmarkaðir en höfðu sinn
sjarma og oftar en ekki
frábærar rafhlöður.