Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Blaðsíða 18
Ferðalög
og flakk
Parlez-vous français?
Morgunblaðið/Einar Falur
*Franska er útbreidd í Marokkó enda varlandið frönsk nýlenda um tíma. Ef ferðast á tilMarokkó gæti því verið sniðugt að dusta ryk-ið af menntaskólafrönskunni. Hins vegar erutungumál engin fyrirstaða fyrir ferðamennþví enska er að verða útbreiddari í landinusamfara auknum fjölda ferðamanna. Það er
helst eldra fólk sem talar litla ensku, en getur
þá frekar bjargað sér á frönsku.
L
ýðræðislegt verð fyrir þig,
vinur minn!“ „Þig vantar
greinilega skó! Líttu á úr-
valið!“ „Tíu díramar, tíu dí-
ramar, tíu díramar!“ „Teppi, frábær
teppi – Sjáðu, þú þarft ekkert að
kaupa, bara skoða!“
Áreitið er mikið þegar ferða-
langur gengur inn í völundarhús
þröngra markaðsgatnanna í „med-
ínunni“, gömlu borginni í Marra-
kesh, innan borgarmúranna. Sölu-
menn berjast um athyglina og
benda á útskurð, teppi, púða, skó
með uppbrettum tám, forngripi,
skart, girnilegar kökur, litarefni,
krydd og ýmsilegt annað. „Súper ví-
agra fyrir þig vinur minn,“ hvíslar
sólbakaður berbi í síðum kufli,
bendir á bakka með skorpnuðum
rótum á og brosir tannlausu brosi.
Já, áreitið er mikið en þetta er
heillandi heimur að gleyma sér í,
hvort sem ferðalangar eru reiðu-
búnir til að hætt sér út í prútt, með
tilheyrandi talnaleikjum og te-
drykkju, eða vilja bara horfa og
taka inn litina, fólkið, lyktirnar, vör-
urnar, allt sem fylgir þessum rang-
ölum, menningunni og sögunni í
þessari hrífandi borg sem vinsælasti
ferðavefur samtímans valdi á dög-
unum áfangastað ársins.
Marokkó hefur löngum hrifið
vesturlandabúa, með sérstæðri
menningunni þar sem mætast í
mergjaðri blöndu áhrif frá Evrópu,
sunnanverðri Afríku og músl-
imalöndum. Á síðustu árum hefur
hinn ungi konungur landsins, Mo-
hammed VI sem tók við völdum ár-
ið 1999, opnað landið fyrir erlendri
fjárfestingu og lagt áherslu á stór-
bætta ferðaþjónustu. Með eftirtekt-
arverðum árangri – á næstu árum
mun ferðaþjónustan síga fram úr
landbúnaði sem mikilvægasta at-
vinnugrein landsins.
Allt annar heimur
Marrakesh er iðulega kölluð „Rauða
borgin“, eftir einkennislitunum, frá
gulrauðu yfir í bleikt, sem bornir er
á flestar byggingar hennar. Og hún
er gjarnan sögð exótískasta og dul-
arfyllsta borgin þetta nálægt Evr-
Útiveitingastöðunum á torginu Jemaa el Fna hefur verið lýst sem „stærsta veitingastað á jörðu“. Þegar húmar eru kerrur með borðum, stólum og grillum dregnar inn á hluta torgsins, og skömmu síðar
hafa nær eitthundrað veitingastaðir verið settir þar upp. Háværir þjónar og grillmeistarar berjast um athygli heimamanna sem ferðamanna og matbúa þeir listagóða og ódýra rétti langt inn í kvöldið.
Morgunblaðið/Einar Falur
BORGIN MARRAKESH Í MAROKKÓ HEILLAR FERÐALANGA OG HEFUR VERIÐ VALIN BESTI ÁFANGASTAÐURINN
Ævintýraborg í Afríku
HÚN ER ÓDÝR, ÖÐRUVÍSI
OG ÆVINTÝRALEG. FERÐA-
MENN FLYKKJAST TIL
MARRAKESH Í MAROKKÓ
OG HRÍFAST AF ÞVÍ SEM
BER FYRIR AUGU, ÞJÓNUST-
UNNI OG MATNUM.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Í gamla borgarhlutanum, „medínunni“, er völundarhús þröngra og hrífandi
markaða. Hér eru seldir hefðbundnir og vinsælir skór, svokallaðir „babouche“.
Trúarskólinn Madrassa Ben Youssef var stofnaður á 14. öld í medínunni en
lagður af árið 1960. Byggingin er opin gestum og þykir ein sú fegursta í landinu.