Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.04.2015, Page 39
26.4. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Ircið var eins konar forveri nú-
tímasamskiptamiðla og þar áttu um
tíma þúsundir manna á Íslandi í
spjalli á degi hverjum við ókunnuga
og vini. Útlit þess var afskaplega
hrátt, dökkir stafir á hvítum bak-
grunni en eftir því sem leið á nýja
öld tóku vinsældir þess að hjaðna
hratt eftir því sem fleiri og meira
spennandi miðlar komu fram. Ircið
var, og er reyndar enn, forrit sem
notendur hlóðu inn á tölvur sínar
og gátu þannig náð sambandi við
umheiminn og skráð sig inn á
margvíslegar rásir. Eflaust eru
margir sem eiga rómantískar minn-
ingar frá því að hanga á ircinu, eins
og það var kallað, og spyrja fólk
með spennandi notendanöfn um
aldur, stað og kyn. Notendum irc-
isins á heimsvísu hefur fækkað gíf-
urlega eins og gefur að skilja, en þó
er undarlega mikill fjöldi fólks sem
ennþá styðst við það. Árið 2003
voru notendur á heimsvísu um ein
milljón talsins en þeim hafði fækk-
að í 400.000 árið 2014.
GAMLA GRÆJAN
Ircið
Milljón manns um
víða veröld notaði
ircið þegar það var
upp á sitt besta.
Daniel Radcliffe, Harry Potter-
leikarinn geðþekki, hefur nú tekið
að sér hlutverk í sjónvarpsmynd
um tölvuleikinn Grand Theft Auto
og sögu hans. Radcliffe mun fara
með hlutverk Sam Houser, manns-
ins sem þekktur er sem listrænn
arkitekt leiksins og verður myndin í
fullri lengd. Myndin verður frum-
sýnd á BBC 2 og er ætlunin með
henni að segja söguna af því hvern-
ig leikurinn varð til, ferli sem
stundum hefur verið kallað „best
heppnaða breska forritunarsagan“.
Myndin mun nefnast Game Chan-
gers og í henni munu áhorfendur
kynnast hópi breskra tölvusnillinga
þegar þeir útskrifast úr skóla og
hefja að þróa tölvuleik sem endar á
því að verða einn af þekktustu
tölvuleikjum sögunnar.
Haustið 2013 skilaði nýjasta af-
urðin í leikjaseríunni, GTA:V, ein-
um milljarði bandaríkjadala á þrem-
ur dögum, og var þannig sá
tölvuleikur sem selst hefur hraðast
frá því mælingar hófust. Bill Paxton
mun fara með hlutverk Jack
Thompson, lögmanns sem er stað-
ráðinn í að verja öllum kröftum
sínum í að koma í veg fyrir að
Grand Theft Auto öðlist vinsældir.
Forsvarsmenn BBC staðfestu að
myndin færi í framleiðslu á næst-
unni. Tekið var fram að í myndinni
yrðu umdeildir þættir leiksins
teknir fyrir, en hann er ekki síst
þekktur fyrir að gera spilurum
kleift að haga sér eins og frjálsir
glæpamenn, stela bílum, myrða
óvini og lögreglu og ferðast djúpt
ofan í ímyndaða glæpaveröld
Bandaríkjanna. „Myndin mun sýna
sögu leiksins í smáatriðum og jafn-
framt taka til umfjöllunar þau djúp-
stæðu áhrif sem hann hafði á
menningarlegt landslag okkar.“
HARRY POTTER-LEIKARINN Í NÝJU HLUTVERKI
Radcliffe í mynd um
Grand Theft Auto
Ekki fylgir sögunni hvort Rad-
cliffe hefur skemmt sér við að
gera allt vitlaust í leiknum.
Algóritmi leitarvélar Google er eitt leyndardómsfyllsta
og áhrifamesta fyrirbrigði samtímans og óteljandi fyr-
irtæki treysta á töfra þess þegar kemur að því að aug-
lýsa sig og vera sýnilegur á netinu. Frá og með næsta
þriðjudegi verða breytingar gerðar á algóritmanum og
þær hafa í för með sér að vefsíður sem eru snjall-
símavænar munu fá aukið vægi og sýnileika í leitarnið-
urstöðum sem framkallaðar eru á skjá slíkra síma.
Uppfærslan mun því hafa í för með sér að Google mun
raða upp leitarniðurstöðum í samræmi við hversu
heppilegar þær eru fyrir snjallsíma. Þetta þýðir að fyr-
irtæki sem ekki hafa sérstaka síðu fyrir snjallsíma munu
þjást, enda verða notendur líklegri til að heimsækja
slíkar síður fyrir vikið. Talið er að breytingarnar muni
hafa umtalsverð áhrif á starfsemi leitarvélarinnar, um-
talsvert meiri en síðustu tvær uppfærslur, Panda og
Penguin, sem höfðu áhrif á 12% og 3% niðurstaðna
hvor um sig.
„Við ætlum að nýta síður fyrir snjallsíma betur í mati
okkar á því hvaða síður eiga að birtast fyrst. Þessi
breyting mun hafa áhrif á snjallsímaleitir á öllum tungu-
málum úti um allan heim og mun hafa umtalsverð áhrif
á leitarniðurstöður okkar,“ sagði Takaki Makinu, Cha-
esang Jung og Doantam Phan í bloggfærslu fyrir hönd
Google. Ætlunin með breytingunni er auðvitað sú að
gera notendum léttara að finna niðurstöður sem henta
því tæki sem leitin er framkvæmd á. Google hefur
margoft gert smávægilegar breytingar á leitarforriti
sínu en ekki tilkynnt margar þeirra fyrirfram. Í ljósi þess
að fyrirtækið kaus að lýsa þessu sérstaklega yfir áður
en breytingin tekur gildi þykir benda til þess að hún
muni hafa geysileg áhrif á Google-leitir enda geta þær
haft gríðarlega mikið að segja um sýnileika og þar með
afkomu fyrirtækja sem treysta á leitarniðurstöður.
BREYTINGAR HJÁ GOOGLE
Vefsíðuhönnuðir munu eflaust hafa
nóg að gera á næstunni þegar heima-
síðueigendur vilja uppfæra síður sínar
fyrir snjallsíma.
AFP
Snjallsímaleitir
fá aukið vægi
* Ég fæ letingja til að vinna erfitt verk, vegnaþess að letingi mun finna einfalda leið tilþess að leysa það.
– Bill Gates.
Birt með fyrirvara um prentvillur og verðbreytingar.
*Tilboð gildir til 4. maí 2015 eða meðan birgðir endast.
iPhone 6Plus
16GB
Tilboðsverð
124.990.-*
Fullt verð: 139.990.-
Grár | Gull | Silfur