Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 3
3iO.iT
REYKJALUNDUR '
15. ÁRG. ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BERKLASJÚKLINGA 1961
Ritnefnd: Helga Jónasdóttir, Hjörtur Gunnarsson, Þórður Benediktsson.
Ingólfsprent.
BJARNI BENEDIKTSSON,
FORSÆTISRÁÐHERRA:
S
xzy4íHlZp
Hið heillaríka starf S.l.B.S. er al-
þjóð fyrir löngu kunnugt, m. a.
vegna heimsókna fjölda manns að
Reykjalundi og lýsingum þeirra á
því, sem fyrir augu þeirra hefur þar
borið. Sjálfur kom ég alloft að
Reykjalundi fyrstu árin, en hef nú
ekki skoðað mig þar um í all-mörg
ár, heldur einungis kynnzt fram-
kvæmdum þar úr fjarlægð og af
annarra frásögn. Fyrir skemmstu fór
ég í heimsókn fyrst að Múlalundi og
síðan Reykjalundi. Sannaðist þá, að
sjón er sögu ríkari. Umskiptin, sem
orðið hafa, eru ótrúleg. Ráðsmenn
S.l.B.S. hafa sannarlega ávaxtað vel
það pund, sem þeim hefur verið
falið.
Svo glæsilega sem þessi mannvirki
Reykjalundur
Bjarni Benediktsson, rdðherra
eru, innanstokksmunir og vélar, á-
samt prýðilegri umgengni, er enn þá
meira um það vert, að sjá og heyra
þá, er þessa aðbúnaðar njóta. Flest
af þessu fólki mundi búa við mun
lakari kjör og ekki vita, hvað það
1
LANOSBÍiKASAFH
243457
ÍSLANDS