Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 31

Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 31
á svo særandi, mig langar að segja fjand- samlegan hátt. Ég sagði við sjálfan mig: fyrst er bezt að athuga, hvort Agnes gæti álasað mér um nokkra, þó ekki væri nema um smávægilega ótryggð. Bara alls ekki! Mér hefur aldrei verið sérlega um konur, ég skil þær ekki, og þær skilja mig ekki heldur. Frá því ég gifti mig má fullyrða með vissu, að konur voru ekki til í mínum augum. Agnes var einu sinni að stríða mér og spurði: „Hvað mundirðu gera, ef þú yrðir allt í einu skotinn í annarri konu?“ Og ég svaraði: „Slíkt getur ekki komið fyrir. Ég elska þig, og mun gera það eftirleiðis." Þeg- ar mér verður aftur hugsað til þessa nú, finnst mér mig ráma í það, að henni var engin gleði í orðinu „eftirleiðis" — þvert á móti: hún setti upp svip og þagnaði. Þessu næst reyndi ég að geta mér til, hvort Agnes hefði kannske farið frá mér vegna peninga eða illrar meðferðar. En samvizka mín gat einnig verið róleg við þessa spurn- ingu. Það var að vísu satt, að peninga fékk hún örsjaldan hjá mér, en til hvers þurfti hún þá peninga? Ég var alltaf nálægur og albúinn þess að borga. Og hvað skemmtan- ir snertir, dæmi menn sjálfir: Tvisvar í viku í bíó, tvisvar í viku í veitingahús — og þar stóð mér á sama, hvort hún pantaði ís eða bara Espresso — svo fékk hún á hverjum mánuði nokkur vikuhlöð og á hverjum degi dagblað. Á veturna fórum við meira að segja stundum á ónerusýningar. Á sumrin fórum við til Marino í sumarfrí, en þar á pahbi minn hús. Nei, í þessu tilliti var ég vissulega góður við hana. Því síður gat Agnes kvartað und- an því, að ég keyoti ekkert handa henni. Þegar hún þurfti einhvers með — brjósta- haldara, sokkapar eða vasaklút, — þá var nóg að láta mig bara vita. Ég fór þá með henni í búðirnar, og við leituðum að því, sem hún óskaði sér. Síðan borgaði ég mögl- unarlaust. Svona var það líka, þegar um var að ræða saumakonur eða tízkusníðara. I hvert skipti sem hana langaði í nýjan kjól eða nýjan hatt, fylgdi ég henni umyrðalaust. Annars verð ég að láta bess getið, að Agnes var ekki kröfuhörð. Eftir að við vor- Reykjalundur um búin að vera gift í eitt ár, kom það varla fyrir, að hún léti sauma á sig kjól. Ég minnti hana sjálfur öðru hverju á að hún þyrfti að fá sér þetta eða hitt. Hún svaraði því þá oftast til, að kjólarnir frá í fyrra væru ennþá nógu góðir, og svo væri þetta ekki svo aðkallandi. Að lokum fór ég að halda, að hún væri í þessu tilliti ekki eins og aðrar konur og legði ekkert upp úr því að ganga fallega til fara. Ástamál’ og peningar voru sem sé alls ekki ástæðan fyrir því, að Agnes fór frá mér. Þá var það eftir, sem málfærslumennirnir kalla ósamrímanleg skapgerðareinkenni. — Hvaða tegund ósamrímanlegra skapgerðar- einkenna kom til greina hjá okkur, þar sem við í tvö ár höfum ekki skipzt á skoðun- um? Við vorum alltaf saman, og ef eitt- hvað hefði verið ósamrímanlegt með okk- ur, þá hefði það hlotið að koma fram! Agnes andmælti mér aldrei; hún sagði yfirleitt alls ekki neitt. Á kvöldin, þegar við sátum heima eða fórum á kaffihús, opnaði hún varla munninn. Það sem segja þurfti, sagði ég. Ég skal ekki bera á móti því: mér finnst gaman að tala og hef yndi af að hlýða á sjálfan mig, einkum og sér í lagi þegar ég er með fólki sem ég get treyst. Rödd mín er róleg og regluleg, án nokkurra sérstakra blæbrigða; ég tala skynsamlega og reiprenn- andi. Þegar ég byrja á einhverju umræðuefni, er ég vanur að meðhöndla það af ítrustu nákvæmni og taka öll sjónarmið til greina. Yfirleitt og allra helzt ræði ég um heimilis- haldið: um verðið á matvörunum, staðsetn- ingu á húsgögnunum, eldhúsið, miðstöðvar- hitunina — í stuttu máli um hversdagslega hluti. Ég þreytist aldrei á að tala um þess konar. Þess vegna endurtek ég oft, það sem ég hef verið að tala um, þó að ég hafi ekki verið búinn að ljúka því sem ég var að segja. En verum sanngjörn, eru þetta ekki þau umræðuefni, sem maður á að hafa við konu sína? Um hvað ætti maður annars að tala við konuna? Agnes var alltaf vön að hlusta á mig með athygli. Að minnsta kosti fannst mér það. Bara einu sinni kom það fyrir, að 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.