Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 21
Kjartan Guðnason:
I Finnlandi
Kjartan Guðnason
í maí síðastliðnum hélt stjórn Berkla-
varnasambanda Norðurlanda fund í Helsing-
fors, Finnlandi.
Um svipað leyti hélt Samband finnskra
berklasjúklinga þing sitt í Helsingfors.
Finnska sambandið var stofnað í maí 1941,
og var þetta þing þeirra jafnframt 20 ára
afmælisþing sambandsins.
Mættir voru á þessum fundum fulltrúar
frá berkavarnasamtökum allra Norðurland-
anna, frá íslandi: Oddur Ólafsson, Reykja-
lundi, og undirritaður.
Bárust finnska sambandinu ýmsar gjafir
af tilefni afmælisins, og frá S.Í.B.S. færðum
við haglega gerðan fundarhamar, gerðan af
Ríkarði Jónssyni.
Samtök finnskra berklasjúklinga eru mjög
Reykjalundur
sterk með yfir 36.000 meðlimi í 67 deildum,
eða fjölmennara en öll samtök berklasjúkl-
inga samanlagt á hinum Norðurlöndunum.
Starf sambandsins er einnig umfangsmikið
og margþætt.
Þótt aldur þess sé ekki hár, og starfsemin
að nokkru leyti legið niðri í rúm 4 ár vegna
stríðsins, hefur sambandinu tekizt að lyfta
Grettistökum í viðleitni sinni til að bæta
kjör og aðbúnað þeirra er veikzt hafa af
berklaveiki í Finnlandi.
A það heimavistariðnskóla í Libelits,
þar sem 150 nemendur búa. Er þar 3ja ára
deild fyrir rafvirkjanema, og 2ja ára deildir
fyrir tré- og járnsmíðanema, og einnig hafa
þeir þar sérstök námskeið fyrir birgðaverði.
Þá á það heimavistarskóla í Uleaborg,
sem Morikoski heitir. Geta þar búið 90 nem-
endur, piltar og stúlkur. Er þar 2ja ára skóli
fyrir járnsmíðanema, og 2ja ára verzlunar-
skóli fyrir stúlkur og pilta. Einnig á finnska
sambandið lýðháskóla í Karkku, þar sem
rúmir 50 nemendur geta búið.
Er lýðháskólinn fyrst og fremst rekinn
sem undirbúningsskóli fyrir iðnskólana og
verzlunarskólann.
Auk allrar þessarar fræðslustarfsemi
gengst sambandið fyrir smærri námskeiðum,
og rekur sumarheimili víða um landið fyrir
berklasjúklinga og börn þeirra.
Miðar allt þetta starf að því, að gera þá
er veikjast af berklum, hæfari til að mæta
þeim breyttu aðstæðum, sem berklaveikin
hefur valdið þeim.
Af þessari upptalningu, þótt ekki sé hún
tæmandi, má sjá, að starfsemi finnska sam-
bandsins er æði umfangsmikil. A aðalskrif-
stofu sambandsins í Helsingfors vinna 20
manns.
Og hvaðan fá þeir peninga til alls þessa?
19