Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 46

Reykjalundur - 01.06.1961, Blaðsíða 46
I.A.S. (Alþjóðasamband öryrkjafélaga brjóstholssjúkra). Dagana 5.—9. okt. 1960 var haldinn í Wien fundur 80 fulltrúa frá 11 löndum. Til- gangurinn var, að ræða stofnun alþjóðasam- bands félaga berklaöryrkja. Fundurinn var haldinn að frumkvæði formanns svissnesku berkla-öryrkja-félaganna, P. J. Kopp. Félög berklaöryrkja frá eftirtöldum lönd- um sendu fulltrúa: Austurríki, Danmörku, Finnlandi, Hollandi, íslandi, Japan, Noregi, Sviss, Svíþjóð, Tyrklandi og Þýzkalandi. Sextán erindi voru flutt um berklavarna- mál og sérstaklega um endurhæfingu eftir meðferð og socielt öryggi berklaöryrkja í áðurgreindum löndum. Auk þess fluttu lækn- ar frá Þýzkalandi, Sviss og Austurríki fræðsluerindi um endurhæfingu berklaör- yrkja, og kvikmynd SÍBS var sýnd með skýringum. I umræðum er fram fóru síðar kom í ljós, að allir voru á einu máli um, að Norðurlönd- in stæðu feti framar á þessu sviði, en þau önnur lönd, sem þarna áttu fulltrúa. Enn- fremur var mjög áberandi hve traust og skilningur ráðamanna á starfsemi öryrkjafé- laganna var öflugri á Norðurlöndum en ann- ars staðar og má þar fá nokkra skýringu á árangursmeira starfi Norðurlanda-félaganna. Var fróðlegt fyrir Norðurlandafulltrúana að hlusta á þau vandamál Mið-evrópu-félaganna sem nú voru efst á baugi, smithræðslu, göll- uð tryggingakerfi og skilningsleysi valdhafa, flest allt mál, er eitt sinn var þeirra vandi, en nú löngu leyst. Fulltrúar skoðuðu austurrísk hæli og sjúkrahús, kynntu sér ennfremur starfsemi austurrísku berklavarnafélaganna, sem eiga í miklum fjárhagsörðugleikum og búa við lítinn skilning, þrátt fyrir brýn verkefni. í lok fundarins var einróma samþykkt að stofna alþjóðasamband og kosin bráðabirgða- stjórn til þess að búa til lög og stefnuskrá. í bráðabirgðastjórn voru kosnir: P. J. Kopp, formaður (Sviss), Oddur Ólafsson (ísland), Hnut Willoch (Noregur), A. Peclinokwsi (Austurríki), Rudolf Windolph (Þýzkaland). en ekki sízt, hlutleysi. Einmitt þeir höfuð- kostir, er ég met mest. Og ekki skrökvaði hún til framkomu sinnar. Enda uppfóstruð á gömlu menningarheimili; fóstra hennar var Kristín Ólafsdóttir í Nesi við Seltjörn — og þarf þá ekki til fósturs að spyrja. En for- eldrar Eyglóar voru vinnuhjú þeirra hjóna, er unnu þeim með dyggð, og naut dóttirin góðs af, er hún þurfti á að halda. Enda átti „fóstra“ hefðarsæti í huga hinnar látnu konu. Þær bera margar aðalsmerki, fóstrurnar ís- lenzku, — minnist ég þar minnar eigin. — Seinna kom ég inn í stofu hennar, þar var hinn sami blær hreinleika yfir öllu. Mikið er andrúmsloftið misjafnt umhverfis fólk, 44 bæði til sálar og líkama! Ég hugði gott til grannskapar. Mennirnir hyggja, en örlögin ráða. Nokkr- um mánuðum siðar var Eygló hafin út í sjúkrakörfu í sína síðustu för. Kveðjur okk- ar voru látlausar, — við vissum báðar, að hverju dró, en það var óþarfi að ræða það neitt. Ég stóð við gluggann, er hún var hafin inn í bílinn. Lítil vindgola lék í hári henn- ar, — hún hafði ekki kært sig um að breiða yfir það. Hún greip til höfuðsins, sömu fas- prúðu tökum og vant var, og strauk hárið aftur. Sál hennar hélt reisn sinni til enda. Þannig er síðasta myndin. Mér hefur lið- ið vel í stofunni hennar. Helga frá Hólabaki. Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.