Reykjalundur - 01.06.1961, Side 4
ætti af sér að gera, hvað þá hvernig
það ætti að eyða tímanum, ef at-
beina S.Í.B.S. nyti ekki.
Stundum hefur verið sagt, að það
skildi á milli skynlausra skepna og
manna, að á meðal hinna fyrrtöldu
gilti óskoruð kenning Darwins um
,,the survival of the fittest", að hinn
hæfasti lifði af, þar sem umhyggja
fyrir sjúkum og minnimáttar fylgdi
menningunni. Víst er, að íslending-
ar hafa með fáu betur sannað sína
menningu en með hinu árangurs-
ríka starfi S.I.B.S.
Þarfir ört vaxandi þjóðfélags, sem
til skamms tíma stóð flestum ná-
grönnum sínum langt að baki um
allan ytri aðbúnað, eru margar. —
Mörgu er þess vegna enn ábótavant
á landi okkar, enda enginn mannleg-
ur félagsskapur slíkur, að ekki megi
sitthvað að honum finna. Löngum
verður um það deilt, hvað helzt eigi
að sitja í fyrirrúmi í sókninni fram á
við. Því miður er ýmislegt, sem enn
er svo aftur úr, að veruleg átök þarf
til að kippa því í lag. En þó að mörgu
öðru þurfi að sinna, má aldrei láta
það merki, sem S.I.B.S. hefur hafið
til vegs, sakka aftur úr, heldur halda
því svo fram, sem horfir.
r
Einar M. Jónsson:
Vor
í Mosfellssveit
(Lag eftir Jón frá Hvanná)
Er vorið unga i viðum hlcer
og viðir, björk og reynir grcer,
geislar dansa’ um grund og ver
og gleðin í hjarta þér,
hvar áttu friðsœlli unaðsreit
en uppi’ i Mosfellssveit. :,:
Þig laðar útsjón frá Hamrahlið
með heiðbjört sund og engi frið.
Iðjagrœnar eyjarnar
risa’ upp úr dimmbláum mar.
En stórfenglegust sú ásýnd er,
:,: sem Esjan birtir þér. :,:
Og minnstu þess, að i Mosfellssveit
er melum breytt i gróðurreit,
móar hverfa’ og mýrasund
— og mundu þar Reykjalund,
átak þjóðar og auðnuspor
:,: i act við Ijós og vor. :,:
2
Reykjalundur