Reykjalundur - 01.06.1961, Síða 23

Reykjalundur - 01.06.1961, Síða 23
í Stjórn DNTC d jundi i Helsingjors. Skoðuðum við safnið allítarlega undir leið- sögn frú Maiju Björklund forstöðukonu þess. Safnið er að einu leyti frábrugðið öðrum söfnum, sem ég hef farið um, þar eð gestir þessa safns skoða það ávallt undir leiðsögn einhvers starfsmanns, sem leitast við að sýna það sem ýtarlegast er gesturinn eða gestirn- ir hafa sérstakan áhuga á. Kom þetta sér einkar vel fyrir þann hóp, sem við vorum í, þar sem það voru störf og áhugamál allra að kynnast sérstaklega finnskum berklavörnum og hvað yfirleitt er gert fyrir þá sem verða öryrkjar af slysum eða vegna veikinda. Annan dag heimsóttum við prófunar- eða hæfnileitarstöð fyrir öryrkja. Eru öryrkjar sendir til bessarar stöðvar, þar sem þeir dvelja í allt að 3 vikur. Taka þar á móti þeim læknar, sálfræðingar og aðrir sérfræð- ingar, er leitast við að komast að orsök ör- orkunnar, ef hún er ekki þekkt, og svo að Reykjalundur leitast við að finna til hvaða starfs öryrkinn kynni að vera hæfur eftir rétta þjálfun eða skólagöngu. Sjúkrarúm eru þarna fyrir um 50 sjúkl- inga, en starfsfólkið er alls um 160 manns og eru þá taldir með sérfræðingar, sem eru starfandi að einhverju leyti við leitarstöðina, þótt aðalstarfið kunni að vera við sjúkrahús eða aðrar stofnanir. Auk þeirra, sem þarna eru lagðir inn til rannsóknar, er stór hópur sem leitar ráða hjá stöðinni vegna sjálfra sín eða vanda- manna. Var okkur sýnd kvikmynd þarna, sem í stórum dráttum sýnir hvernig leitarstöð, sem þessi, starfar, og langar mig að endursegja þá sögu, er myndin fjallaði um. Ungur piltur í sveitaþorpi norðarlega í Finnlandi á erfitt með að finna starf við sitt hæfi. Að vísu var ekki um mikla fjölbreytni í störfum að ræða, en það var sama hvað 21

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.