Reykjalundur - 01.06.1961, Qupperneq 40

Reykjalundur - 01.06.1961, Qupperneq 40
Brostnir hlekkir Árni Guðmundsson frá Háeyri. F. 6. marz 1913. — D. 11. marz 1961. Árni Guðmundsson andaðist í Vífilsstaða- hæli 11. marz s. 1., eftir 14 ára sjúkdóms- stríð. Hvarf þar maður af okkar sjónarsviði er lætur eftir sig þær minningar, sem leiða hug- ann að hlýjum og sólríkum degi á vori. Árni er fæddur í Vestmannaeyjum 6. marz 1913, sonur þeirra kunnu Háeyrarhjóna, frú Jónínu Sigurðardóttur, Sveinssonar, útvegs- bónda og snikkara í Nýborg, og Guðmundar Jónssonar, útvegsbónda og skipasmiðs á Háeyri, hins gagnmerka gáfu- og hagleiks- manns. 38 Þótt Árni hefði allar gáfur til að þreyta langskólanám við æðstu menntastofnanir og væri hið bezta efni í vísindamann, varð þó ekki að því ráði, enda ekki margir Vest- mannaeyingar á hans aldri sem til siikra stór- ræða hugðu. Hann lauk unglingaprófi í Eyjum, síðan við gagnfræðaskóia í Keykjavík og þar næst lauk hann lokaprófi við Kennaraskóla ís- lands ánð 1935, alit við beztu einkunn. Arni lét þó ekki þar við sitja um nám. Menntunar- þorsti hans var óslökkvandi, þrátt fyrir eril- söm kennarastörf og mikil afskipti af félags- og stjórnmálum, auk starfa við útveg föður síns, jók hann jafnt og þétt við fróðleikssjóð sinn. Asókn dauðans gat ekki einu sinni hrundið honum af menntabrautinni, sem hann unni svo mjög. Ungur að árum hóf hann ritstörf í bundnu og óbundnu máh. Ljóð hans eru, og hafa um langt skeið, verið sungin, og sögur hans og ritgerðir lesnar um allar byggðir landsins. Kjörinn var Árni í bæjarstjórn Vestmanna- eyja árið 1942 og var um skeið forseti henn- ar. I stjórninni átti hann sæti þar til hann sýktist af berklaveiki og fluttist til Vífils- staðahælis, og átti þaðan ekki afturkvæmt. Kennari við barnaskóla Vestmannaeyja var Árni frá árinu 1931 til 1947. Frábær kennari og vinsæll jafnt meðal nemenda sem foreldra þeirra. Að Vífilsstöðum var Árni, sjálfkjörinn, sem oddviti sjúklinga. Þótti þar engu máli vel borgið, nema til kæmu ráð hans og leið- beiningar. Árið 1956 var hann kjörinn í sambands- stjórn S.Í.B.S. og átti þar sæti til dauða- dags, við sömu vinsældir og sama sóma og hann jafnan hafði notið við öll sín fyrri störf. Ritstjóri þessa tímarits var hann frá 1958. Ákjósanlegri samstarfsmann gátu sam- bandsstjórnarmenn ekki kosið sér. Dóm- greind hans og hógværð í málflutningi leysti Reykjalundur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.