Húnavaka - 01.05.1968, Blaðsíða 114
112
HÚNAVAKA
Fólk, sem trúir á framtíð sinnar heimabyggðar og hyggst fylkja sér
saman í félagsskap. Það er þessi hópur, sem stofnaði Ungmennafé-
lag Bólstaðarhlíðarhrepps, félagið, sem minnist 30 ára starfsafmælis
síns hér í kvöld.
Þarna var þó ekki algjörlega verið að nema nýtt land. Ungmenna-
félagsskapur hér í sveit mun vera á þriðja tug ára eldri en þetta fé-
lag, en lá niðri um árabil, svo að ekkert ungmennafélag var starf-
andi. En hér var stofnað félag af nýjum mönnum og með öðru nafni.
Á stofnfundinum var félaginu gefið nafnið Ungmennafélag Bólstað-
arhlíðarhrepps, gengið frá samþykkt á lögum þess og kosið í liina
fyrstu félagsstjórn. Var hún þannig skipuð: Formaður, Pétur Péturs-
son, Bollastöðum; ritari, Jón Tryggvason, Finnstungu, og gjaldkeri,
Sigurbjörg Stefánsdóttir, Gili.
Ein helzta starfsemi á vegum ungmennafélaga frá upphafi hefur
verið að fá félagsnrenn sína til að setja fram skoðanir sínar og við-
liorf til ýmissa málefna í ræðu og riti. I því skyni liafa félögin leit-
azt við að halda uppi málfundastarfsemi og félagsblöðum. Hin fyrstu
starfsár U.M.F.B. mun hafa verið leitazt við að halda mánaðarlega
umræðufundi a. m. k. yfir vetrarmánuðina. Var á þeim tíma oft mik-
ið fjör í umræðum og umræðúefni allfjölbreytt.
Við flettum gjörðabókum félagsins og sjáurn að m. a. hafa þessi
málefni verið tekin til umræðu: „Hvaða bækur eigum við að lesa?“
„Hver árstíðin er skemmtilegust?“ „Hvort er skemmtilegra að ferð-
ast með hesti eða bíl?“ „Tízka og búningur kvenna.“ „Hver er
stefna ungmenna nútímans?"
Auðvitað liafa þó félagsmálin hverju sinni sett aðalsvip sinn á
nmræðufnndina t. d. bindindismálin og var um skeið starfandi bind-
indisdeild í félaginu. Hin síðari ár hefur verið daufara yfir umræð-
urn á félagsfundum, en oft verið eitthvað til skemmtunar að þeim
loknum. Um það er ekki að sakast, þó að slík þróun sé ekki æskileg.
Hverjum þjóðfélagsþegni er nauðsynlegt að geta sett fram skoðanir
sínar og fá sem fyrst í því æfingu. En tímarnir breytast og mælsku-
list ekki metin sem áður fyrr.
Félagið gaf út skrifað félagsblað „Dalbúann“, sem lesið var upp
á félagsfundum. Var ferill þess mikið óslitinn 12 fyrstu árin. Síðan
hefur blaðið að miklu leyti legið niðri. Annað slagið hafa þó verið
gerðar tilraunir með að lífga það við og láta þennan þátt starfsem-
innar ekki niður falla.