Morgunblaðið - 04.05.2015, Side 12

Morgunblaðið - 04.05.2015, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. MAÍ 2015 Hlaupakettir og talíur Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli - lyftigeta allt að 9000 kg. Rafdrifnar keðjutalíur - lyftigeta allt að 4000 kg. BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Eftir langan og oft harðan vetur vagga bátarnir vinalega við bryggj- una í Gamvik í Norðaustur-Finn- mörku nyrst í Noregi, þá sjaldan þeir stoppa í landi. Bátarnir bera nöfnin Aldís, Hafdís og Austhavet og eru allir smíðaðir á Íslandi. Fyrirtækið sem gerir bátana út heitir Sædís, en það hafa Vestfirð- ingarnir Haraldur Árni Haraldsson og Albert Eggertsson byggt upp á síðustu árum. Tvö síðustu ár var unnið úr 2.500 tonnum hjá fyrirtæk- inu hvort ár og hefur árangur þeirra í þessum litla bæ vakið mikla athygli. Ferðast á milli Íslands og Noregs Félagarnir skipta dvölinni í Gam- vik á milli sín og eru hluta ársins með fjölskyldum sínum á Íslandi, en hluta þess í Noregi. Ekki ólíkt því sem gerist hjá mörgum íslenskum læknum og hjúkrunarfræðingum, nema hvað skorpurnar eru trúlega lengri hjá þeim Gamvíkur-félögum. Þar eru þeir bæði með útgerð og fiskvinnslu eins og þeir störfuðu við á Patreksfirði og Tálknafirði áður en þeir lögðu land undir fót. Hjá fyrirtækinu starfa 35-40 manns til sjós og lands auk báta í viðskiptum. Haraldur segir að ýmislegt sé á döfinni sem ekki sé tímabært að ræða, en þeir hafa áhuga á upp- byggingu í Gamvik. Vítamínssprauta í draugabæ Í þorpinu búa nú um 150 manns og sannarlega má það muna sinn fífil fegri. Lítill skóli er í Gamvik, en lítið um aðra atvinnustarfsemi fyrir utan fiskvinnsluna Sædísi, sem hefur verið vítamínssprauta fyrir samfélagið. Þorpið er í samnefndu sveitarfélagi, en um 20 mínútur tek- ur að keyra til Mehamn þar sem búa hátt í 700 manns. Þar er stærsta byggðin í sveitarfélaginu og þar er meðal annars heilsugæsla. Alls búa um 1.100 manns í sveitar- félaginu. „Við tókum fiskvinnsluhús á leigu fyrir fjórum árum, en það hafði staðið autt í nokkuð langan tíma og keyptum það síðan í vetur,“ segir Haraldur. „Á margan hátt var þetta orðið að draugabæ og enn hrista sumir Norðmannanna hausinn yfir þessu brölti okkar. Það er þó að breytast, við erum búnir að kaupa vinnsluna, búnir að taka húsið í gegn og erum að byggja við. Vinnsl- an er í rauninni vinnustaðurinn á staðnum því það var nánast ekkert við að vera þegar við komum. Það var í raun búið að afskrifa þetta pláss og menn héldu að þarna yrði aldrei aftur fiskvinnsla.“ Tekur tíma að öðlast traust Á bátunum eru aðallega Íslend- ingar og Pólverjar, en fólk af öðru þjóðerni kemur við sögu í vinnsl- unni í landi. Lítið hefur verið um Norðmenn í störfum hjá fyrirtæk- inu til þessa, þeir sem eftir voru í plássinu höfðu önnur störf. „Fólk hleypur ekkert til þó einhverjir jólasveinar séu farnir að gera eitt- hvað, þeir geta verið horfnir á morgun,“ segir Haraldur. „En þetta er að breytast og traustið að aukast, því fólk sá að við keyptum húsið og erum að byggja við. Eðli- lega vill fólk hafa framtíðina eins örugga og hægt er.“ Starfsemin í Gamvik er byggð upp miðað við að róið sé alla mánuði ársins og fiskvinnsla sé stöðug í landi. Róið er með línu og bátarnir búnir beitingavélum. Mest er af fiski á grunnslóðinni á vertíðartíma í Norðaustur-Finnmörku í apríl og maí og taka Norðmenn þá, venju samkvæmt, stóran hluta heildarafl- ans. Haraldur segir að fiskur sé þarna fyrir utan allan ársins hring, aðeins sé misjafnt hversu langt þurfi að sækja. Bátarnir þrír eru 11-15 metra langir og allir smíðaðir á Íslandi, hjá Seiglu á Akureyri, á Akranesi og nýjasti báturinn er Cleopatra 50 frá Trefjum í Hafnarfirði og er bát- urinn tveggja ára. Gæðin skipta höfuðmáli Áhersla er lögð á góða meðferð á fiskinum og gæðamál eru í háveg- um höfð, oft umfram það sem gerist hjá norskum fyrirtækjum. Miklar kröfur eru því gerðar til þeirra sem landa hjá Sædísi í Gamvik. Fisk- urinn er unninn fyrir markaði í Bretlandi og Ameríku og er keyrð- ur ferskur alla leið til Óslóar, en það tekur um sólarhring. Þaðan er flogið með fiskinn á markaði. Haraldur segir að margt sé rotið í kvótakerfinu á Íslandi og enginn Hafa lyft grettistaki í Gamvik  Tveir Íslendingar hafa byggt upp útgerð og fiskvinnslu í nyrsta sveitarfélagi í Noregi  „Það var í raun búið að afskrifa þetta pláss og menn héldu að þarna yrði aldrei aftur fiskvinnsla“ Cleópatra 50 Allir þrír bátar Sædísar eru smíðaðir á Íslandi. Á myndinni sést Aldís Lind á siglingu skömmu eftir afhendingu fyrir tveimur árum. Ljósmynd/Alf Helge Jensen Fiskurinn flakaður Haraldur Árni Haraldsson (t.v.) og Albert Már Eggertsson í vinnslusal Sædísar AS í Gamvik. Starfsfólk fyrirtækisins kemur úr ýmsum áttum, m.a. frá Íslandi og Póllandi, en fáir til þessa frá Noregi. Heppinn viðskiptavinur, sem keypti sér lottómiða í Hagkaupum á Eiðistorgi, var einn með allar tölurnar réttar og er hann rétt tæpum 22 milljónum ríkari. Enginn var með bónusvinninginn að þessu sinni og verður hann því þrefaldur næsta laugardag. Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jókernum og fær hver 100.000 kr. í vinning. Enginn var með allar tölur réttar í EuroJacpot á föstudaginn og potturinn heldur því áfram að stækka. Heppinn Dani var einn með annan vinning og fær hann rúmlega 361 milljón í sinn hlut. Fjórir voru með 3. vinning og hlýtur hver um sig rétt tæplega 32 milljónir. Miðarnir voru keyptir í Tékklandi, Þýskalandi og 2 í Finnlandi Með allar tölur réttar og 22 milljónum ríkari Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka Suð- vesturlands 2015 tekur undir þær áhyggjur sem fram hafa komið hjá íbúum í Reykjanesbæ undanfarið vegna þeirrar miklu stóriðju- væðingar sem stendur fyrir dyrum í Helguvík, örskammt frá íbúðabyggð og helstu frí- stundasvæðum bæjarins, eins og segir í álykt- un aðalfundar NSVE. Hesthúsahverfið á Mánagrund og beitarland lendir allt innan þynningarsvæðisins þar sem mengun má vera yfir viðmiðunarmörkum og telur NSVE það algjörlega ábyrgðarlaust af bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ ætli þau sér að heimila byggingu tveggja kísilmálmverk- smiðja sem staðsettar eru aðeins 1 km frá Mánagrund og 1,4 km frá íbúðabyggð. „Samkvæmt þessu er lagt til að bæjarbúar verði gerðir að þátttakendum í lýðheilsutilraun stóriðjunnar í Helguvík, sem er vitaskuld algjörlega óásættanlegt. Með þessu væri einfaldlega verið að taka of mikla áhættu þar sem heilsa fólks og dýra væri lögð undir en verksmiðjurnar fengju að njóta vafans. Á það verður ekki fallist,“ segir í ályktuninni. Hafna þátttöku í lýðheilsutilraun stóriðjunnar STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.