Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.6. 2015
Það veit ég ekki. Ég velti mér voða lítið upp
úr þessu. Þessi launabarátta er náttúrlega
alltaf í gangi en ég hef það svo sem fínt.
Marta Rut Pálsdóttir
Mér finnst mikið hafa náðst en samt þarf
meira til, sérstaklega í sambandi við launin.
Og líka að konur verði svolítið meira áber-
andi.
Arndís Ellertsdóttir
Morgunblaðið/Júlíus
Það er svo margt. Það eru fleiri tækifæri á
vinnumarkaðnum fyrir konur, alveg klárlega.
Það vantar hinsvegar meiri hefð meðal
kvenna fyrir því að vera í forystu.
Helena Konráðsdóttir
Kannski ekki mikið undanfarin ár en þegar til
lengri tíma er litið hefur heilmikið áunnist.
Það vantar upp á að jafna launin, úr því konur
eru farnar að mennta sig til jafns við karla.
Bára Sigurjónsdóttir
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
SPURNING VIKUNNAR: HVAÐ HEFUR ÁUNNIST Í JAFNRÉTTISBARÁTTU KYNJANNA UNDANFARIN ÁR?
Sunnudagsblað Morg-
unblaðsins er að þessu sinni
tileinkað 100 á afmæli kosn-
ingaréttar kvenna og alfarið
helgað konum. Meðal
efnis í blaðinu eru viðtöl
við tíu konur á aldr-
inum 10 til 100 ára þar
sem rætt er við þær vítt og
breitt um kynhlutverk og réttindi kvenna fyrr og nú.
Kosningarétturinn 100 ára 38
Í BLAÐINU
Hvernig upplifun var það að vera fjallkonan í Reykjavík
á 17. júní?
Ég upplifði sterkar tilfinningar þennan morgun. Bland af ótta og tilhlökkun.
Þetta er mikil áskorun. Maður fær óneitanlega dálítið mörg fiðrildi í magann.
Varstu uppfull af þjóðarstolti?
Ekki get ég nú sagt það. Ég var aðallega meðvituð um það að halda ró minni.
Ég er sátt og reynslunni ríkari.
Hvernig var að vera fjallkona með mótmælendur
viðstadda?
Ég hefði að sjálfsögðu viljað sleppa við hávær hróp og fram-
íköll svo að ljóðið kæmist betur til skila en ég skil reiðina.
Fólki er nóg boðið og það dugir ekki að sitja heima í stofu og
hafa skoðanir. Við verðum að hafa rödd. Við verðum að beita
okkur því að ástandið er slæmt. Heilbrigðiskerfið okkar er á
hraðri niðurleið, hjúkrunarfræðingar lítils virtir og margt veikt fólk í
tómri óvissu. Er þá bara fátt nefnt. Við eigum að standa saman og mót-
mæla og þessi dagur er að sjálfsögðu vel til þess fallinn.
Hvaða ljóð lastu?
Ljóðið sem flutt var í ár er eftir Þórarin Eldjárn. Ég var hrifin af þessu
ljóði, það er innihaldsríkt og vel ort.
Nú voru Grímuverðlaunin afhent nýlega,
hvernig var stemningin í fólki þar?
Ræða Halldóru Geirharðsdóttur var mjög áhrifarík. Hún notaði tæki-
færið til að koma mikilvægum skilaboðum áleiðis. Ég geri ráð fyrir
að flestir séu búnir að sjá þennan ræðubút á netinu. Ef ekki þá hvet
ég fólk til að horfa. Það er óendanlega þakklátt þegar fólk nýtir gluf-
ur sem gefast til að hafa áhrif. Hreyfa við samfélaginu.
Lýsir þetta ákveðnu andrúmslofti í þjóðfélaginu?
Margt fólk er reitt og sjálfsagt margir líka skelkaðir. Við þurfum að
horfast í augu við ástandið og beita okkur.
Á fjallkonan framtíðina fyrir sér?
Það held ég. Hún á að vera sameiningartákn, vegvísir. Bendir á
það góða og eins það sem betur mætti fara.
Forsíðumyndirnar tóku Árni
Sæberg, Ásdís Ásgeirsdóttir
og Skapti Hallgrímsson
Þær eru ófáar tískugyðjurnar sem
heillað hafa gegnum tíðina. Allt
frá samkvæmisljóninu Biöncu
Jagger sem sló í gegn á áttunda
áratuginum til bloggarans Per-
nille Teisbæk sem er nokkurs
konar táknmynd skandinavískrar
tísku. Sunnudagsblaðið rýndi í stíl
kvenna sem hafa verið áberandi
fyrir fágaðan fatastíl. Tíska 34
Pönksveitin Kælan Mikla undirbýr nú útkomu sinn-
ar fyrstu breiðskífu með miklu tónleikasumri. Kælan
sameinar mynd, ljóð, gjörninga og tónlist undir einum
hatti sem hefur bæði ögrað og heillað þá sem hafa
fengið að kynnast honum. Menning 48
Hópur fólks hefur tekið sig
saman á Blönduósi og
ætlar að hittast einu sinni í
viku fram að Húnavöku,
16.-19. júlí, til þess að hekla
og prjóna. Afraksturinn
verður svo notaður í
prjónagraffi utan um ljósa-
staura víðsvegar um bæinn.
Landið og miðin 10
Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona brá sér í líki fjallkonunnar í
Reykjavík 17. júní. Hún er komin í sumarfrí eftir annasaman vetur í
Borgarleikhúsinu, en í haust stígur hún aftur á svið við hlið Línu Langsokks.
Þá verður hún einnig í sýningunni Mávurinn eftir Tsjekhov í október.
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
St
yr
m
ir
K
ár
i
KATLA MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Dugir ekki að
sitja heima í stofu
Í fókus