Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Blaðsíða 29
21.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Þessi er í dálæti hjá Raggý og þó
mér (Ingu) hafi hingað til ekki
fundist Sangría góð, þá er þessi
að koma sterk inn. Það þarf svo-
lítið að smakka hana til og þeim
mun meira smakk, þeim mun
betri verður hún.
1 flaska rauðvín, þarf ekki
að vera fínt eða dýrt
300 ml appelsínusafi
300 ml sprite
1 appelsína
1 sítróna
1 grænt epli.
100 ml koníak (má sleppa)
Ávextir eru skornir niður og
settir í stóra könnu, öllum vökva
bætt við og hrært vel saman
ásamt klaka.
Bestur í sólinni og með góðu
fólki!
Sangría sumardrykkur
Morgunblaðið/Þórður
Fyrir 8
MEÐ RISARÆKJUM
1 snittubrauð
2 hvítlauksgeirar
2 msk matarolía
ca 20 risarækjur
Smá chili-pipar niðurskor-
inn og fræhreinsaður
baunaspírur alfa alfa
MEÐ REYKTUM LAXI
1 snittubrauð
1 bréf reyktur lax
2 avocado þroskuð
1 poki klettasalat
Snittubrauð skorin í sneiðar,
smurðar með olíu og léttr-
istaðar í ofni þar til stökkar.
Hvítlauksgeiri raspaður ofan á
sneiðarnar.
Risarækjur steiktar í olíu, hvít-
lauk og smá chili-pipar, skellt of-
an á sneiðarnar og baunaspírur
með sem skraut.
Sama aðferð nema reyktur
lax, avocado og klettasalat sett á
hinn helminginn af brauðinu.
Bruschetta með risarækju
og með reyktum laxi
Beikon-
vafðar
döðlur
1 poki döðlur stein-
lausar
1 bréf beikon
1 gráðostur – má líka
nota annars konar ost
svo sem mozzarella eða
philadelphia smurost.
Skerið rauf á döðlurnar,
setjið gráðost inní og lokið
með því að vefja beikoni ut-
anum. Bakið í ofni við
200°C í 10 mín eða þangað
til beikonið er orðið stökkt.
Berið fram með sweet chili
sósu.
1 box litlir tómatar
1 poki litlar mozzarella-kúlur
(eða stór kúla og skera niður)
1 pk ferskt basil
góð ólífuolía
Þræðið hráefnin upp á lítil spjót,
eitt í einu. Penslið spjótin með
góðri olíu, og jafnvel balsamik-ediki
ef til er.
Tómatur
á teini