Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Side 56

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.06.2015, Side 56
SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 2015 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mán. - fös. 11-18:30 Stóllmeðhvítri eða svartri setu og viðarfótum. 24.900kr. Copenhagen-stóll ÚTSALA Nú 86.590 kr. Nú 19.995 SPARAÐU 30% af öllumsængum og koddum 200 cm. Hilla og fataslá fylgja. 123.700 kr. Nú 86.590 kr. Hurðademparar og aðrir aukahlutir seldir sér. Bianca-fataskápurmeð hvítum rennihurðum SPARAÐU 37.110 kr. SPARAÐU 10.000 SPARAÐU 30.000kr. Borðstofuborðmeðhvítri borðplötu ogeikarfótum. 100 x200cm.119.900kr. Nú89.900kr. Mallorca-borðstofuborð Mallorca-borðstofuborð Nú89.900kr. Messing loftljós. 40 cm. 29.995kr. Nú19.995kr. Atom-loftljós SPARAÐU 30% af öllum fataskápum og aukahlutum kr. kr. Þriggja sæta sófi. L 160 cm. 169.900kr. Nú124.900kr. Polo-sófi Nú 124.900 kr. SPARAÐU 45.000 kr. Edda Jónsdóttir, mannréttinda- fræðingur og Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri, skrifuðu saman bókina Frú ráðherra sem fjallar um frásagnir kvenna á ráð- herrastóli. „Edda átti hugmyndina að bókinni og hringdi í mig og spurði hvort ég vildi vera ritstjóri hennar. Mér leist vel á þetta verkefni. Ég vildi ekki vera ritstjóri, mig langaði bara til að vera með og fá að skrifa með henni,“ segir Sigrún og Edda tók vel í það. Í bókinni er rætt við 20 sterkar og flottar konur sem voru ráðherrar á 30 ára tímabili, 1983-2013. „Það var alveg yndislegt að fá að vinna með þessum konum og kynnast þeim. Það kom okkur skemmtilega á óvart hvað þær voru tilbúnar að vera hreinskilnar og segja frá þessum sigrum og baráttu. Það vekur at- hygli hvað þetta er búið að vera mik- il barátta, það voru mörg skref stig- in og þetta er harður heimur fyrir konur,“ segir Sigrún. „Ég fann til- vitnun frá Ólöfu Sigurðardóttur frá Hlöðum þar sem hún segir: „Þið eig- ið gott að eiga hugsjónir.“ Þetta eru allt hugsjónakonur sem trúa á það sem þær berjast fyrir og ég held að það hafi haldið þeim gangandi.“ Edda segir að titill bókarinnar sé sprottinn út frá þeirri staðreynd að þegar karlar ganga inn í dæmigerð kvennastörf er starfstitlinum breytt, samanber að hjúkrunarkona er í dag hjúkrunarfræðingur. „Þeir heita ekki hjúkrunarkona, karlarnir sem ganga í þau störf og þá víkur „kon- an“. Enn er starfstitillinn hins vegar ráðherra, hvort sem um er að ræða karl eða konu á bakvið starfið. Ég lagði nú til að þessu yrði breytt í ráðstjóri, þannig yrði titillinn ekki kyngerður,“ segir Sigrún. Bókina tileinka þær minningu Auðar Auðuns, sem var fyrsta konan til þess að gegna embætti ráðherra árið 1960. gunnthorunn@mbl.is Frá útgáfuboðinu, frá vinstri: Siv Friðleifsdóttir, Sigrún Stefánsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Edda Jónsdóttir, Sólveig Pétursdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Oddný Harðardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Morgunblaðið/Styrmir Kári SKRIFA BÓK UM FRÁSAGNIR KVENNA Á RÁÐHERRASTÓLI „Allt hugsjónakonur“ Hálfrar aldar afmælis kosninga- réttar kvenna á Íslandi var minnst í Morgunblaðinu 19. júní 1965. Var þar meðal annars rætt við Sigríði J. Magnússon, sem um langt árabil var formaður Kvenréttindafélags- ins. Þegar hún var spurð hvort konur hefðu notað sér þessi rétt- indi svaraði Sigríður: „Ef maður lítur á þátttöku kvenna í opinberum málum, er ekki hægt að segja það, þar sem við eigum nú aðeins eina konu á Alþingi og fáar í bæjar- og sveit- arstjórnum. Hins vegar álít ég að margar lagabætur, sem gerðar hafa verið á þessum árum, séu meira og minna að þakka kosn- ingarétti kvenna.“ Á sömu opnu er einnig rætt „snöggvast“ við tvær konur sem voru í fyrsta kvennahópnum sem lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík sama ár og konur hlutu kosningarétt, 1915. Lítill viðbúnaður var vegna áfangans en nýstúdentum var þó boðið í súkkulaði á skrifstofu rekt- ors. „Þegar pabbi kom að okkur tveimur um kvöldið, sagði hann: – Hvað eruð þið hér einar? Og svo sótti hann sérry og skálaði við okk- ur,“ sagði annar viðmælandi blaðs- ins, Þórunn Kvaran, dóttir Hann- esar Hafstein. GAMLA FRÉTTIN Kosið í hálfa öld Frú Þórunn Kvaran og frú Áslaug Benediktsson fagna hálfrar aldar stúd- entsafmæli sínu sumarið 1965. Þær voru í fyrsta kvennahópnum í MR. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona Björk Guðmundsdóttir söngkona Sigrún Hrólfsdóttir myndlistarkona

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.