Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 4
Rúmur milljarður króna af skuldum
Árvakurs við Íslandsbanka verður af-
skrifaður við kaup eignarhaldsfélags-
ins Þórsmerkur á Morgunblaðinu,
samkvæmt heimildum DV. Ekki náð-
ist að fá eins mikið af nýju hlutafé inn
í félagið og reiknað var með þegar
gengið var frá kaupum Þórsmerkur á
Árvakri.
Árvakur skuldar nú um fimm millj-
arða króna. Félagið skuldar Íslands-
banka um fjóra milljarða en Lands-
bankanum einn.
Í lok nóvember skuldaði Árvakur
um fjóran og hálfan miljarð og gaf Nýi
Glitnir það út að ef forsvarsmönnum
Árvakurs tækist að koma með einn
milljarð af nýju hlutafé inn í félagið
myndi bankinn afskrifa einn milljarð
króna af skuldum félagsins. Á með-
an forsvarsmenn Árvakurs leituðu að
nýjum fjárfestum til að koma inn í fé-
lagið var það rekið á 500 milljón króna
lánsfé frá bankanum. Á móti því kem-
ur að stærstur hluti lánanna er í er-
lendri mynt og hefur því lækkað með
styrkingu krónunnar undanfarið. For-
svarsmönnum Árvakurs tókst ekki að
endurfjármagna Árvakur og því var fé-
lagið tekið til sölumeðferðar hjá Nýja
Glitni í lok janúar.
Vegna þess að skuldir Árvakurs
hafa aukist á þeim mánuðum sem
það hefur tekið að finna nýja hluthafa
til að koma að félaginu má reikna með
að skuldaafskriftirnar verði meiri en
gert var ráð fyrir í nóvember auk þess
sem fjárfestarnir munu leggja lægri
upphæð en milljarð króna inn í félag-
ið, samkvæmt heimildum DV.
Engar mannabreytingar
Óskar Magnússon, lögmaður og eig-
andi Þórsmerkur ehf. sem keypt hefur
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins,
segir aðspurður að hann hafi ekki far-
ið fram á neinar skuldaafskrftir frá Ís-
landsbanka. Hann segir að Þórsmörk
hafi tekið yfir skuldir Árvakurs og að
Íslandsbanki þurfi að ákveða hversu
mikið af skuldum fyrirtækisins verði
afskrifað.
Óskar segir að fyrirtækið hyggi ekki
á mannabreytingar á Morgunblaðinu.
„Við höfum engin áform um manna-
breytingar á Morgunblaðinu,“ segir
Óskar. Aðspurður hvort Davíð Odds-
son muni taka við
ritstjórastólnum
segir Óskar.
„Hann
yrði örugglega mjög góður ritstjóri.“
Samkvæmt heimildum DV er Ólaf-
ur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðs-
ins, ánægður með nýju hluthafana
í Árvakri og að óvissunni um fram-
tíð félagsins hafi nú verið eytt. Vel fer
á með Ólafi og Óskari Magnússyni,
samkvæmt heimildum DV, og mun
Ólafur ekki hafa áhyggjur af því að
hann missi ritstjórastarfið þó að nýir
eigendur hafi eignast Árvakur.
Náinn kjarna
Sjálfstæðisflokksins
Einn af heimildarmönnum DV segir
að þó að ekki sé mikið vitað um flokks-
pólitíska stöðu allra nýju hluthafanna
í Morgunblaðinu hafi sumir þeirra
verið tengdir við Sjálfstæðisflokkinn
í gegnum tíðina. „Gísli Baldur Garð-
arsson er til að mynda mjög náinn
kjarna Sjálfstæðisflokksins,“ segir einn
af heimildarmönnum DV.
Gísli var meðal annars skipaður
formaður landskjörstjórnar í forsæt-
isráðherratíð af Geir H. Haarde í for-
sætisráðherratíð hans en sagði af sér
í byrjun febrúar þegar rík-
isstjórn Jóhönnu
Sigurðardótt-
ur tók við
völd-
um.
Gísli
Baldur
er jafn-
framt
eigandi og
stjórnar-
for-
maður Olís. Hann hefur í áraraðir
verið lögmaður Þorsteins Más Bald-
vinssonar og Samherja, en Þorsteinn
er forstjóri Samherja og einn af nýju
hluthöfunum í Árvakri.
Eins var Þorgeir Baldursson, einn
af nýju hluthöfunum, formaður fjár-
málaráðs Sjálfstæðisflokksins á sín-
um tíma líkt og kemur fram í bókinni
Davíð Oddsson í myndum og máli.
Í bókinni kemur fram að fjármála-
ráð flokksins hafi gegnt mikilvægu
hlutverki í sögu Sjálfstæðisflokks-
ins. Þorgeir sat auk þess í bankaráði
Landsbankans, ásamt meðal annars
Kjartani Gunnarssyni, eftir einkavæð-
ingu bankans árið 2002.
Að lokum má geta þess að bæði
Gísli Baldur og Gunnar Dungal, einn
nýju hluthafanna, sátu í stjórn Heim-
dallar á sínum tíma.
Gunnlaugur Sævar og
Kjartan bak við tjöldin
Samkvæmt heimildum DV standa
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson
lögmaður og Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins, einnig á bak við kaup
Þórsmerkur á Árvakri.
Gunnlaugur Sævar hefur lengi ver-
ið einn helsti ráðgjafi og fjárhalds-
maður Guðbjargar Matthías-
dóttur sem er einn af
nýju hluthöfunum í
Árvakri. Guðbjörg
er ekkja Sigurðar
Einarssonar, stór-
útgerðarmanns í
Vestmannaeyj-
um. Gunnlaug-
ur, sem var einn
af stofnendum
Frjálshyggjufé-
lagsins á sín-
um tíma,
varð
til að mynda stjórnarformaður í
Tryggingamiðstöðinni eftir að Guð-
björg varð hluthafi í félaginu. Guð-
björg var þá varaformaður trygginga-
félagsins.
Gunnlaugur var ávallt nefndur
sem einn af fjárfestunum sem stæði
með Óskari og Guðbjörgu um kaup-
in á Árvakri. Samkvæmt heimildum
DV var ákveðið að nafn Gunnlaugs
Sævars yrði tekið út úr fjárfestahópn-
um vegna þess að ekki þótti við hæfi
að nafn hans væri þar, meðal annars
sökum beinna tengsla hans við Dav-
íð Oddsson, fráfarandi seðlabanka-
stjóra og forsætisráðherra. „Það vek-
ur athygli að nafn Gunnlaugs Sævars
er ekki á listanum yfir nýju hluthafana
þó að vitað sé að hann hafi verið með
í kaupunum frá upphafi,“ segir einn
heimildarmaður blaðsins.
Annar heimildarmaður blaðsins
segir að Gunnlaugur Sævar hafi ávallt
verið í innsta hring Sjálfstæðisflokks-
ins með Kjartani Gunnarssyni, Jóni
Steinari Gunnlaugssyni og Hannesi
Hólmsteini Gissurarsyni og að hann
hafi fengið hin ýmsu störf í gegnum
tíðina vegna tengsla sinna við Davíð
Oddsson.
Óvissa meðal starfs-
manna Moggans
Nokkur óvissa ríkir meðal starfs-
manna Morgunblaðsins um framtíð
blaðsins eftir kaup Þórsmerkur á út-
gáfufélaginu. Starfsmennirnir óttast
töluvert að gerðar verði miklar breyt-
ingar á ritstjórn og ritstjórnarstefnu
blaðsins. Þeir segja að aldrei muni
ganga að kúga ritstjórn blaðsins og að
það muni aðeins skila sér í minnkandi
trausti til Morgunblaðsins og fækkun
áskrifenda.
Starfsmennirnir eru þó ánægðir
með að nýir hluthafar séu nú komnir
að Árvakri því það eyði óvissunni sem
ríkt hefur um framtíð félagsins á liðn-
um mánuðum auk þess sem senni-
lega verði auðveldara fyrir þá að
fá útborgað á réttum tíma, en
í desember fékk hluti starfs-
mannanna ekki launin sín
fyrr en um miðjan mán-
uðinn.
Föstudagur 27. Febrúar 20094 Fréttir
Sandkorn
n Hagfræðingurinn vaski Guð-
mundur Ólafsson lék á als oddi
í Iðnó um síðustu helgi þar sem
sjötugsafmæli Jóns Baldvins
Hannibalssonar var fagn-
að með
heilmiklu
málþingi.
Guð-
mundur
fagnaði
þar áform-
um Jóns
Baldvins
um að
snúa aftur í stjórnmálin og sagði
mikið ánægjuefni að fá til leiks
sjötugan ungling ekki síst í ljósi
þess að Framsóknarflokkurinn
hefði kosið að tefla fram þrítugu
gamalmenni til formennsku í
flokknum og átti þar við hinn
ábúðarmikla Sigmund Davíð
Gunnlaugsson.
n Valgerður Sverrisdóttir, sem
nú er á síðustu metrunum sem
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, sendi tveimur fyrrverandi
þingflokksfélögum sínum,
þeim Bjarna Harðarsyni og
Kristni H. Gunnarssyni, eitrað-
ar sneið-
ar á bloggi
sínu í gær.
Hún sagði
þá eiga það
sameigin-
legt að hafa
verið „tek-
ið opnum
örmum
þegar þeir stigu inn fyrir þrösk-
uldinn í þingflokki framsókn-
armanna“. Þeirra eigin gjörðir
hafi síðan komið þeim í þá
stöðu „að þeim var ekki lengur
sætt í þingflokknum og reyndar
ekki heldur á Alþingi í tilfelli
Bjarna Harðarsonar“.
n Björn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra og þing-
maður Sjálfstæðisflokksins,
vandar
verð-
launa-
blaða-
manninum
Sigurjóni
M. Egils-
syni ekki
kveðjurn-
ar á bloggi
sínu og sakar Sigurjón um róg-
burð. Björn segir Sigurjón hafa
verið óþreytandi í að „afflytja“
störf hans sem dóms- og kirkju-
málaráðherra og halda því
áfram þótt hann sé farinn úr því
embætti. Á vefsíðu sinni segir
Sigurjón að Björn hefði gripið
til þess ráðs að veikja efnahags-
brotadeildina með niðurskurði.
Hugsanlegir afbrotamenn geti
því verið rólegir. Og þá segir
hann nýráðinn sérstakan sak-
sóknara enn hlusta á eigið berg-
mál í tómum kontórnum.
www.takk. is
Kíktu á heimasíðuna okkar
Rúmur milljarður króna af skuldum Árvakurs við Íslandsbanka verður afskrifaður
við kaup Þórsmerkur á útgáfufélaginu, samkvæmt heimildum DV. Óskar Magnússon
segir að Þórsmörk hyggi ekki á mannabreytingar á Morgunblaðinu. Hann segir að-
spurður að Davíð Oddsson yrði örugglega mjög góður ritstjóri. Starfsfólk á Morg-
unblaðinu óttast að róttækar breytingar verði gerðar á ritstjórn og ritstjórnarstefnu
blaðsins.
AFSKRIFA MEIRA
EN EINN MILLJARÐ
„Hann yrði örugglega
mjög góður ritstjóri.“
Nýir hluthafar í Árvakri
n Gísli Baldur Garðarsson, lögmaður og stjórnarformaður í Olís
n Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja
n Gunnar B. Dungal, var aðaleigandi Pennans
n Óskar Magnússon lögmaður
n Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í grindavík
n Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar sem á Odda
n Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri samherja
Nýir eigendur Morgunblaðsins starfsmenn
á Morgunblaðinu hafa áhyggjur af því að nýir
eigendur blaðsins hyggist leggja í róttækar
breytingar á ritstjórn og ritstjórnarstefnu blaðs-
ins. Myndin er tekin á ritstjórn Morgunblaðsins.
Hyggja ekki á mannabreytingar Óskar
Magnússon, eigandi eignarhaldsfélagsins
Þórsmerkur, segir að fyrirtækið hyggi ekki á
mannabreytingar á Morgunblaðinu.
Ráðgjafi Guðbjargar gunnlaugur
sævar gunnlaugsson er helsti ráðgjafi
guðbjargar Matthíasdóttur og var
í innsta hring sjálfstæðisflokksins á
dögum davíðs. Hann kemur að kaup-
um Þórsmerkur á Árvakri, samkvæmt
heimildum dV.
Með í kaupunum Kjartan
gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri sjálf-
stæðisflokksins, er einnig
tengdur við kaupin á Árvakri
samkvæmt heimildum dV.
INGI F. VIlHjálMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is