Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Page 10
Föstudagur 27. Febrúar 200910 Helgarblað
Gríðarleg eftirspurn er eftir vændi á vefnum einkamal.is. Blaðamaður DV bjó til auglýsingu á síðunni
sem vændiskona og eftir einn sólarhring voru 110 einstaklingar búnir að bjóða í þjónustu hennar. Einn
áhugasamur bað vændiskonuna um sérstakt krepputilboð á blíðu sinni. Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir konur sem hafa verið í vændi vera fullar af skömm og sektarkennd.
Vændiskona beðin
um krepputilboð
Blaðamaður DV auglýsti sig sem
vændiskonu á einkamal.is í vik-
unni. Blaðamaðurinn lýsti sér sem
hárri, ljóshærðri stúlku sem væri í
toppformi, alltaf í ræktinni og til í
hvað sem er. Í lok auglýsingarinn-
ar lét blaðamaður dollaramerki en
samkvæmt heimildum DV er vændi
auglýst á síðum sem þessum með
því að hafa dollaramerki eða önn-
ur merki erlendra gjaldmiðla í lýs-
ingunni. Viðbrögðin létu ekki á sér
standa. Eftir einn sólarhring á vefn-
um hafði auglýsingin verið skoðuð
rúmlega ellefu hundruð sinnum.
110 einstaklingar höfðu samband á
þessum sólarhring og vildu kaupa
blíðu vændiskonunnar.
Prúttaði niður verð
Langflestir sem svöruðu auglýs-
ingu blaðamanns á einkamal.
is voru karlmenn en einnig voru
nokkur pör og örfáar stúlkur sem
voru reiðbúnar að borga fyrir þjón-
ustuna. Verðtilboðin voru allt frá
tíu þúsund krónum og upp í 150
þúsund. Tilbúna vændiskonan
vildi ekki taka minna en fimm-
tán þúsund fyrir samfarir en einn
áhugasamur ákvað þá að prútta í
ljósi efnahagsástandsins í landinu:
„já skal borga 10 þús fyrir það, hard
times her nuna eins og þú veist - jú
verður að vera allur pakkinn, það
er kreppa come on ;).“
Augljóst var af svörunum að
margir þeirra áhugasömu höfðu
keypt sér þjónustu vændiskvenna
áður og skildu hvað dollaramerkin
þýddu:
„Hæ er kk sem hefur áhuga að
heira frá þér...ég sé að þú hefur sett
merki við fyrir neðan texta...ég er til
ekkert mál...látu heira frá þér.“
„Er með íbúð, hef í huga blauta
kossa, sleikja og putta, fá tott, 69,
ríða, ca 1 klst í rúminu, allt blítt og
gott fyrir bæði, ertu sátt við 20Þ?“
„Hvað segir þú um einn og hálf-
an tíma fyrir tuttugu?“
„Það fer auðvitað eftir hvað er í
boði, hvað lengi, hvað má gera og
hvernig þú lítur út :) við getum sagt
að ég er ekki nískur :).“
„Ég er KK $$$ fyrir XXX ???“
Sjálfsfróun í beinni
Blaðamaður fékk skilaboð á öll-
um tímum sólarhringsins þar sem
áhugasamir vildu hitta hann eins
og skot og voru tilbúnir með reiðu-
fé á sér. Sumir gáfu upp símanúmer
og heimilisfang en öll samskipti til-
búnu vændiskonunnar voru nafn-
laus.
Einn áhugasamur spjallaði við
blaðamann í gegnum einkaspjall á
vefnum og byrjaði spjallið með að
spyrja hvort hún vildi sjá einn nítj-
án sentímetra, með vísun í getn-
aðarlim sinn. Þegar stutt var lið-
ið á samtalið kveikti viðmælandi
vændiskonunnar á vefmyndavél
og sýndi henni getnaðarlim sinn
í stutta stund. Undir lok samtals-
ins kveikti viðmælandinn aftur á
vefmyndavélinni en í þetta skipt-
ið stundaði hann sjálfsfróun með
annarri hendi á meðan hann pikk-
aði inn skilaboð til vændiskonunn-
ar með hinni.
„Ertu til í að pynta mig?“
Mismunandi var hvers konar kyn-
ferðislegri losun einstaklingarnir
leituðu að:
„Hvernig líst þér á að fara í ljósa-
tíma með mér og hittast í sturtunni
á eftir? g’ti það ekki verið spenn-
andi?“
„Vilt þú setjast á andlit mitt í
gallabuxum.“
„Okey gæti ég komið í nudd sem
endar kannski bara með góðu totti
og hvað myndi það kosta???“
„En bara i bilnum minum
nuna...get hitt þig einhverrstaðar
uti og þu tottar mig i bilnum.“
„Semsagt anal í boði og fullnæg-
ing í munn og andlit í lagi?“
„Hefuru konur sem langar að
horfa á “
„Ert þú kannski til í stolna stund
eða stundir með giftum manni eins
og mér ?“
„Ertu til í að pynta mig?“
„Ertu til í eitthvað gratt? $$“
Gríðarleg eftirspurn
eftir vændi
Í skilmálum einkamal.is segir að
stranglega bannað sé að bjóða
vöru eða þjónustu sem íslensk lög-
gjöf bannar, til dæmis vændi, ólög-
leg vímuefni og ólöglegt klámefni.
Vefstjóri einkamal.is segir að aug-
lýsingum vændiskvenna hafi fækk-
að eftir háværar umræður í fjöl-
miðlum um vændi. Hann segist þó
taka eftir gríðarlegri eftirspurn eftir
vændi.
„Við tökum eftir að það vantar
ekki eftirspurn eftir vændi en svona
auglýsingar eru ekki leyfilegar eins
og stendur í skilmálum okkar,“ seg-
ir vefstjórinn en tveir til þrír starfs-
menn vinna við það að taka út slík-
ar auglýsingar.
„Við förum yfir í kringum þrjá-
tíu auglýsingar á dag. Við fáum
líka tilkynningar frá notendum
um auglýsingar sem gefa vændi til
kynna og þá eru þær teknar út um
leið. Það er alltaf eitthvað sem við
finnum ekki en við náum að halda
þessu að mestu hreinu. Svona aug-
lýsingar eru mikill þyrnir í augum
okkar fyrir útlit vefjarins og not-
endur hans. Það er leiðinlegt að
hafa endalausar vændisauglýsing-
ar á vefnum því þetta er samfélag
fyrir allt sem tengist samskiptum
kynjanna.“
Eftir samtal blaðamanns við
vefstjóra síðunnar var aðgangi að
síðu tilbúnu vændiskonunnar lok-
að. Auglýsingin var þá búin að vera
inni á vefnum í þrjá daga.
Vændiskonur fullar af skömm
Viðbrögð við auglýsingu tilbúnu
vændiskonunnar koma Guðrúnu
Jónsdóttur, talskonu Stígamóta,
ekki á óvart.
„Út frá þeim sjónarhóli sem ég
stend á finnst mér þetta mjög dap-
urt en þetta kemur mér ekki á óvart.
Við erum að vinna með konum í
vændi og vitum hvaða afleiðing-
ar það hefur á líðan þeirra. Konur,
sem hafa komið til okkar og verið í
vændi, hafa verið fullar af skömm
og sektarkennd. Þær eru skelfingu
lostnar við þá tilhugsun að ein-
hver viti af iðju þeirra. Engin sem
hefur leitað til okkar hefur fund-
ið ánægju eða vellíðan í vændinu
eins og goðsagnir um hinar ham-
ingjusömu vændiskonur lýsa. Sú
goðsögn er forsenda þess að karl-
ar kaupi sér vændi. Þeir þurfa að fá
firringu og það verður auðveldara
ef því er alltaf haldið á lofti að þetta
séu konur sem vaða í peningum
og lifi í stöðugri kynferðislegri full-
nægingu. Vændi hefur ekkert með
þetta að gera þó að það séu dæmi
um annað. Þau dæmi hafa ekki
komið upp á borð hjá okkur né hjá
systursamtökum okkar í löndun-
um í kringum okkur,“ segir Guðrún
en sterk tengsl eru á milli kynferð-
isofbeldis og vændis.
„Konur sem leiðast út í vændi
eiga það sameiginlegt að hafa
leiðst út í eitthvað sem þær hafa
misst tökin á. Langflestar koma
hingað vegna annars kynferðis-
ofbeldis sem þær eru að vinna
úr og sjá ekki tenginguna
milli þess og vændis. Þau
tengsl eru gífurlega
sterk. Vímuefnaeysla
og aðrir þættir spila
líka inn í.“
Guðrún getur
ekki svarað því
hvort vændi
hafi aukist
þar sem það
hefur ávallt
verið vel fal-
ið.
„Við
vitum
ekkert
hvort
vændi
hefur aukist því það er enginn sem
hefur haft yfirsýn yfir það. Það hef-
ur alltaf verið falið og verður að vera
falið svo þeir sem kaupi geri það í
skjóli. Vændi mun alltaf mara í kafi.
Það er nógu sýnilegt til að kaup-
endur fatti það en nógu falið til að
þeir sem kaupa vændi geri það án
þess að aðrir viti um. Viðskipta-
leynd er forsenda fyrir blómstrandi
vændi.“
lilja Katrín GunnarSdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
„já skal borga 10 þús
fyrir það, hard times
her nuna eins og þú
veist - jú verður að
vera allur pakkinn,
það er kreppa come
on ;).“
Full af skömm og sekt-
arkennd goðsögnin um
hamingjusömu vændiskonuna
á ekki við á Íslandi að sögn
talskonu stígamóta.
VErðSKrá SEm blaðamaður Fann á nEtinu:
Munngælur 10.000 – allt að 20 mínútur.
slökun og munngælur 15.000 – allt að 30 mínútur.
samfarir 20.000 – allt að 40 mínútur.
slökun, munngælur og samfarir 30.000 – allt að 60 mínútur.
inni í þrjá daga auglýsingin
frá tilbúnu vændiskonunni var
tekin út eftir að blaðamaður hafði
samband við vefstjóra einkamal.
is. Þá hafði auglýsingin verið inni á
vefnum í þrjá daga.
Vændi veitir ekki vellíðan
stígamót hafa aldrei tekið á móti
konu sem hefur öðlast ánægju og
vellíðan með því að stunda vændi
að sögn guðrúnar Jónsdóttur.