Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Blaðsíða 16
Föstudagur 27. Febrúar 200916 Helgarblað
Hópur sjálfstæðismanna sem
kenndur hefur verið við tímarit-
ið Eimreiðina náði forystu í Sjálf-
stæðisflokknum undir lok níunda
áratugs síðustu síðustu aldar við
valdatöku Þorsteins Pálssonar og
síðar Davíðs Oddssonar. Hópurinn
hefur haldið völdum í Sjálfstæðis-
flokknum æ síðan og verið valda-
mikill á Íslandi í gegnum ríkis-
stjórnir Davíðs Oddssonar og Geirs
H. Haarde.
Atburðir síðustu ára og mán-
aða hér á landi benda hins vegar
til þess að valdatíma þessa áhrifa-
mikla hóps sé senn á enda inn-
an Sjálfstæðisflokksins og um leið
í landinu. Með brotthvarfi Davíðs
Oddssonar úr Seðlabankanum,
hvarfi Geirs H. Haarde sem for-
sætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins og einnig lokunum
á valdatíð Kjartans Gunnarssonar
sem framkvæmdastjóra Sjálfstæð-
isflokksins
má segja
að þrír
helstu
máttarstólparnir úr Eimreiðar-
hópnum hafi misst bein völd sín á
Íslandi.
Nú kann að vera að með frá-
hvarfi meðlima Eimreiðarhópsins
úr valdastöðunum innan Sjálfstæð-
isflokksins verði flokkurinn aftur að
þeim hófsamari flokki sem hann var
áður en hópurinn komst til valda
innan hans en flokkurinn var meðal
annars gagnrýndur fyrir það á sín-
um að hafa lokað á mildari viðhorf
innan Sjálfstæðisflokksins og sveigt
stefnu flokksins í átt til aukinnar
hægristefnu. Kannski má segja að
hugmyndafræði Eimreiðarhópsins
hafi beðið skipbrot í efnhagshrun-
inu í haust og að Sjálfstæðisflokk-
urinn þurfi að finna sér nýjan
farveg, en það er skoðun Jóns
Magnússonar sem telur að
flokkurinn eigi að verða eins
og hann var fyrir valdatöku
Eimreiðarhópsins.
Hverjir voru í
Eimreiðarhópnum?
Hópinn skipuðu meðal ann-
ars Hannes Hólmsteinn Gissur-
arson, prófessor í stjórn-
málafræði,
Davíð
Oddsson, fyrrverandi forsætisráð-
herra, Þorsteinn Pálsson, ritstjóri
Fréttablaðsins og fyrrverandi for-
sætisráðherra, Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, Baldur
Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, og Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttardómari.
Einnig skipuðu hópinn Brynjólfur
Bjarnason, sem var gerður að for-
stjóra Símans á meðan hann var í
ríkiseigu, Kjartan Gunnarsson fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins og Magnús Gunn-
arsson, sem lét af störfum sem
formaður bankaráðs Kaupþings
fyrir í mánuðinum. Þór Witeh-
ead, prófessor í sagnfræði og Birg-
ir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi
menntamálaráðherra tilheyrðu
einnig hópnum.
Hópurinn hittist vikulega á skrif-
stofu Magnússonar Gunnarsson-
ar sem varð forstjóri Hafskips árið
1973 og síðar vikulega um margra
ára skeið í svokölluðu turnherbergi
á Hótel Borg, segir Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, prófessor í
stjórnmálafræði og Eimreiðarmað-
ur, í grein í tímaritinu Vísbendingu
frá árinu 2006.
Hugmyndafræði
Eimreiðarhópsins
Hannes Hólmsteinn segir í samtali
við DV að kjarni hugmyndafræði
hópsins hafi verið dreifing valdsins
til einstaklinganna, neytenda jafnt
og framleiðenda, af því að þar hafi
þekkingin legið, sérþekking hvers
einstaklings. Hannes segir jafn-
framt að hófleg íhaldssemi hafi fylgt
hópnum. „Þetta var ekki bókstaf-
strú, heldur vitund og vissa um það,
að allt of mikið vald hefði safnast
saman hjá misvitrum stjórnmála-
mönnum, sem vissu ekki, hvernig
þeir ættu að fara með það, svo að
best væri að taka það af þeim og
dreifa því til fólksins,“ segir Hann-
es og bætir því við Eimreiðarmenn
hafi verið hægri menn í þeim skiln-
ingi að þeir hafi trúað á lága skatta
og traustar varnir.
Áhrif Eimreiðarhópsins
Um áhrif Eimreiðarhóps-
ins á opinbera umræðu á
Íslandi segir Hannes.
„Eimreiðarhópur-
inn var snar þátt-
ur í því, að hug-
myndalegt
forræði á Ís-
landi fór
frá vinstri mönnum til hægri manna
á áttunda áratugnum. Þetta gerðist
aðallega vegna þess, að í hópnum
voru markvissir menn, sem höfðu
skýrar hugmyndir um, hvað þeir
vildu gera,“ segir Hannes.
Guðmundur Hálfdánarson,
prófessor í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands, segir að Eimreiðarhópurinn
hafi verið jaðarhópur á áttunda ára-
tugnum sem hafi haft lítil áhrif og að
mörgum í Sjálfstæðisflokknum hafi
staðið ógn af hugmyndum hópsins.
„Sumir Sjálfstæðismenn skömmuð-
ust sín fyrir Hannes Hólmstein en
hann var alger lykilmaður í því að
halda þessum hópi gangandi,“ segir
Guðmundur.
Hann segir að í hópnum hafi þó
ekki bara verið frjálshyggjumenn
því þar hafi einnig verið gamaldags
íhaldsmenn. „Davíð var svo lím-
ið sem hélt hópnum saman. Hann
náði að tengja þessa gamaldags
sjálfstæðisflokksstefnu og nýfrjáls-
hyggjuna sem smám saman renn-
ur saman í einhverjum undarleg-
um graut í Davíð. Davíð er þetta
fenómen í þessu öllu saman því
nýfrjálshyggjan hefur aldrei ver-
ið stór hluti af hans málflutn-
ingi,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segist telja að
Eimreiðarhópurinn hafi þó á
endanum ekki náð völdum í
flokknum út af eigin verðleik-
um heldur vegna þess að þeir
hafi verið réttir menn, með rétt-
ar hugmyndir á réttum stað því
á níunda áratugnum hafi pólit-
ísk hugmyndafræði í hinum vest-
ræna heimi farið að færast
í auknum mæli
til hægri með
tilkomu
Ronalds
Reagans
í Banda-
ríkjun-
um og
Mar
grétar Thatcher í Englandi og að
Eimreiðarhópurinn hafi aðhyllst
sambærilegar hugmyndir. „Þeir eru
til staðar þegar öll heimsumræðan
um stjórnmál breytist og þá kom
tækifæri þeirra til að grípa völdin,“
segir Guðmundur.
Þorsteinn stoltur af
Eimreiðarhópnum
Í viðtali við Stefni, tímarit um þjóð-
mál sem Samband ungra sjálfstæð-
ismanna gefur út, árið 2006 sagði
Þorsteinn Pálsson að hann væri
einna stoltastur af þáttöku sinni í
Eimreiðarhópnum af því sem hann
gerði á ferli sínum. „Ég held að það
hafi verið skemmtilegast að vera
hluti af hreyfingu ungra manna
sem vildu nýja málefna- og hug-
mynda- fræði-
IngI F. VIlHjÁlmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
LEIÐARLOK EIMREIÐARHÓPSINS
„Eimreiðarhópurinn
var snar þáttur í því,
að hugmyndalegt
forræði á Íslandi fór
frá vinstri mönnum til
hægri manna á átt-
unda áratugnum.“
Valdatíð Eimreiðarhópsins, sem ráðið hef-
ur lögum og lofum í Sjálfstæðisflokknum
og landinu síðastliðin tuttugu ár, er lokið
með fráhvarfi Davíðs oddssonar, geirs
H. Haarde og Kjartans gunnarssonar
úr valdastöðum. Hannes Hólmsteinn
gissurarson segir að Eimreiðarhóp-
urinn hafi átt þátt í því að hugmynda-
fræðilegt forræði á Íslandi hafi farið frá
vinstrimönnum yfir til hægri manna á
áttunda áratugnum. jón magnússon yf-
irgaf Sjálfstæðisflokkinn eftir valdatöku
Eimreiðarmanna en er nú genginn aftur
í flokkinn. Jón bindur vonir við að flokk-
urinn verði aftur eins og hann var fyrir
frjálshyggjuvæðinguna.
Eimreiðarklíkan allsráðandi Pressan birti viðtal við Jón Magnússon, þáverandi og núverandi þingmann sjálfstæðisflokks-
ins, árið 1989 þar sem hann sagði að eimreiðarklíkan væri orðin allsráðandi innan flokksins.
Pófessorinn og hugmyndafræðingurinn Hannes Hólm-
steinn gissurarson segir að eimreiðarhópurinn hafi átt snaran
þátt í því að hugmyndafræðilegt forræði hafi farið frá vinstri
mönnum yfir til hægri manna á áttunda áratug síðustu aldar.
Frá frjálshyggju til stjórnlyndis Jónas
Kristjánsson ritstjóri taldi að eimreiðarmenn hefðu
með tímanum vikið frá frjálshyggjuhugmyndum
sínum og yfir til stjórnlyndis.