Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Síða 24
Föstudagur 27. Febrúar 200924 Helgarblað
Eitís-hittarinn Can’t Walk Away gerði hann að stjörnu fyrir 24 árum. Lagið hefur lifað góðu lífi síðan þá og nú nýlega tók
það á sig nýja mynd er remix af laginu
var spilað í dansþættinum Party Zone
á Rás 2.
Herbert Guðmundsson hefur ver-
ið meira í fjölmiðlum vegna málaferla
en tónlistarferilsins. En Herbert hefur
staðið í málaferlum við nágranna sína
vegna greiðslu á þakviðgerðum sem
staðið hafa yfir í rúm fimm ár. Málið
fór fyrir dóm á síðasta ári og Herbert
og eiginkona hans, Svala Jóhannes-
dóttir, töpuðu dómsmálinu sem nú
hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Tekist á um þakið
„Þetta er mikil sorg og hefur þetta
mál legið yfir okkur eins og mara,“
viðurkennir Herbert sem tók allt
húsið í gegn á sínum tíma og þar á
meðal þakið. „Við flytjum inn 1992
og þá stendur í kaupsamningi okk-
ar að það þurfi að klára að ganga frá
þakinu. Hver byggði fyrir sig í þess-
ari raðhúsalengju á sínum tíma. Ég
og einn nágranni minn erum með
steypt þök á meðan hinir eru með
timburþök,“ segir Herbert æstur.
Ekki fer á milli mála að málaferlin
hafa tekið sinn toll af fjölskyldunni
við Prestbakkann í Breiðholtinu.
„Við sáum strax ástandið á hin-
um húsþökunum þegar við fluttum
inn. Svo líða sextán ár og nágrannar
mínir stofna húsfélag. Fyrst átti hver
og einn að sjá um sitt þak sjálfur en
svo virðist verða einhver breyting
þar á því þau stofna húsfélag.“
Ekki leið á löngu uns Herbert
fékk greiðsluseðil í gegnum lúg-
una upp á fimmtíu þúsund krónur
á mánuði. „Við mættum á alla hús-
fundi og mótmæltum en allt kom
fyrir ekki. Greiðsluseðlanir heldu
áfram að streyma inn,“ útskýrir
Herbert og bætir við: „Síðan stefn-
ir húsfélagið okkur út af rúmum 700
þúsund krónum. Skussarnir eru
að ráðast á okkur fyrir að hafa gert
við þakið okkar.“ Hebert réð til sín
lögmann og dómskvaddan mats-
mannn sem kvað á um að húsþakið
á heimili Herberts sé í fínu standi.
„Þá hækkar húsfélagið greiðsl-
urnar úr fimmtíu þúsundum í
hálfa milljón á mánuði,“ segir
hann furðu lostinn. Þannig hélt
það áfram í rúmt hálft ár þangað
til greiðslubyrðin var lækkuð um
150 þúsund krónur eða niður í 350
þúsund krónur á mánuði.
Úrskurðarnefnd fjöleignar-
húsalaganna gaf út þann útskurð
að húsfélagið væri í fullum rétti.
„Þetta er andlegt og fjárhagslegt
ofbeldi í meirihlutavaldi. Hver
getur borgað hálfa milljón á mán-
uði ofan á allt annað? Af hverju
var ekki tekið lán eins og gert er í
blokkum fyrst raðhúsið okkar er
blokk í skilningi laganna sem dreift
er á næstu árin í viðráðanlegum
greiðslum?“ spyr Herbert.
„Eignarrétturinn er friðhelgur,“
segir hann og bætir við: „Þetta er
eina raðhúsalengjan hérna í Bökk-
unum þar sem rekið er húsfélag.
Ég var búinn að koma mér upp
fallegu heimili og út af því að aðr-
ir hafa trassað viðgerðir á sínum
heimilum á ég að líða fyrir það.“
Herbert segir málið, sem von-
andi verður tekið upp í Hæstarétti
Ekki er til sá Íslendingur sem
ekki þekkir lagið Can’t Walk
Away sem Herbert Guðmunds-
son gerði frægt fyrir 24 árum. Síð-
an þá hefur hann komið víða við sem
tónlistarmaður og bóksali, eiginmaður
og faðir. Fyrir tæpum tveimur árum stóð
hann á krossgötum í lífinu. Hann varð
að gera drastískar breytingar því sukkið
og egóið stjórnuðu lífi hans. Hann segist
lifa góðu lífi í dag þrátt fyrir harða baráttu
við nágranna sína vegna greiðslu á þak-
viðgerðum og skilnaðar en
eiginkona hans til 21 árs
fór frá honum á haust-
mánuðum síðasta árs.
EIGINKONAN LABBAÐI BARA ÚT