Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Page 30
föstudagur 27. febrúar 200930 menningarverðlaun DV
NefNdiN
Þórdís gísladóttir
íslenskufræðingur, formaður
gauti Kristmannsson
dósent
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir
bókmenntafræðingurBókmenntir
NefNdiN
illugi Jökulsson, formaður
ragnheiður gyða Jónsdóttir
stúdent og ritstjóri
viðar Hreinsson
magister í bókmenntafræði og
framkvæmdastjóri Reykjavíkur-
akademíunnar
Fræði
Afbragðsgóð ljóðabók sem rænir lesendum og
neyðir þá til að skoða fegurðina með nýjum augum
og flysja allar klisjur utan af hefðbundnum hug-
myndum um hana. Um leið þurfum við að skoða
okkur gagnrýnum augum í mörgum þeirra spéspegla sem Kristín heldur uppi fyrir lesendur
sína – spegla sem sýna þeim fegurð þeirra sjálfra í nýju ljósi hverju sinni.
Óhugnanleg hrollvekja um mannfyrirlitningu og
misbeitingu valds gegn konum eða hverjum þeim
sem er í þeirri aðstöðu að vera undir hæl þeirra sem
hafa takmarkalaust vald yfir öðrum í krafti fjár-
magns og þekkingar; samtímasaga sem ýtir við lesendum og vekur þá til umhugsunar. Stíll
og frásagnartækni njóta sín til fulls í óvenjulegri skáldsögu eftir einn af áhugaverðustu höf-
undum Íslendinga nú um stundir.
Sjáðu fegurð þína
eftir Kristínu Ómarsdóttur
Konur
eftir Steinar Braga
Þessi litla bók sem samt er „allt í senn ævisaga, ferða-
saga, hugmyndasaga, trúarrit, heimspekirit, ádeila,
upphrópun, ákall og uppgjöf“ birtist hér í afbragðs-
þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar. Formið nýtur sín vel, bæði prósi og bundið mál, í þessu
sérstæða verki sem þýðandinn setur í samhengi í athyglisverðum eftirmála um bókmennta-
verk sem skipti sköpum í bókmenntasögu Evrópu.
Árstíð í helvíti
eftir arthur rimbaud í þýðingu
Sölva Björns Sigurðssonar
Rán er margbrotin og fögur skáldsaga um sorg,
missi og sannleikann sem sérhver manneskja þarf
að horfast í augu við þegar líða fer á ævina. Álfrún
fléttar af listfengi saman ólíkum tímaskeiðum og í
töfrandi lýsingum verður Barcelona-borg lesendum jafnvel ívið nálægari en Ísland. Rán er
einnig margþætt átakasaga þar sem pólitísk átök, listin og örlög persóna kallast á. Aðal-
söguhetjan er mannleg og um margt mótsagnakennd; djúp og eftirminnileg persóna sem
öðlast verðugan sess í hjörtum lesenda.
rán
eftir Álfrúnu gunnlaugsdóttur
Hjörleifur Sveinbjörnsson hefur með þýðingu sinni á sýnisbók kínverskrar frásagnarlistar
gefið löndum sínum stóra gjöf, sem við höfum fram að þessu ekki haft aðgang að á íslensku.
Sögurnar eru sumar sprenghlægilegar og í annan tíma hræðilega sorglegar, en stundum hvort
tveggja í senn. Ekki spillir afbragðsþekking Hjörleifs á efninu, sem hann í inngangi og formál-
um miðlar af örlæti. Apakóngur á Silkiveginum er glæsileg bók að utan jafnt sem innan.
í þýðingu Hjörleifs Sveinbjörnssonar
apakóngur á Silkiveginum
Í þessari bók eru rakin þau vísindi sem liggja að baki hinu mikilvæga efni sem bókin fjall-
ar um. Því er sérstaklega lýst hvað telst vera öruggt í fræðum þessum og hvað er enn háð
óvissu. Leitast er við að skýra hverjar afleiðingar loftslagsbreytinga gætu orðið og hvaða við-
brögð þarf til að sporna gegn þeim.
Halldór Björnsson
Þetta er ævisaga Gríms Jónssonar sem var einn æðsti valdamaður landsins á ofanverðri
18. öld. Hann var mótsagnakenndur maður, dyggur konungsmaður og hafði fyrirlitningu á
sjálfstæðistilburðum landa sinna en leitaðist við að efla öll framfaramál. Bókin er sérlega
fróðleg og um leið afar glæsilega skrifuð.
Kristmundur Bjarnason
– fyrir bókina amtmaðurinn á
einbúasetrinu; Forlagið 2008
Fjölmargar greinar Þorvaldar í dagblöðum skulu hér sérstaklega nefndar en þar hefur hon-
um auðnast að gera flókin viðfangsefni skiljanleg leikmönnum. Þá er nú ljóst að ef stjórn-
völd hefðu farið að ráðum Þorvaldar undanfarin ár hefði það getað breytt miklu í því efna-
hagshruni sem Ísland þarf nú að þola.
Þorvaldur gylfason
– prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, fyrir skrif
um hagfræði og efnahagsmál á síðustu áratugum
Guðmundur fjallar um hugmyndir manna um eðli lífsins og uppruna
þess allt frá steinöld og fram á okkar daga. Ítarlega er greint frá nýjustu
kenningum um uppruna lífsins. Þrátt fyrir að hafa að geyma mikinn
fróðleik er bókin einstaklega læsileg og aðgengileg öllum almenningi.
– fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands, fyrir
bókina leitin að uppruna lífs: líf á jörð, líf í al-
heimi; Bjartur 2008
Þórður var uppi á 17. öld og rit hans var á sinn hátt brautryðjandaverk í ættfræði Íslendinga.
Guðrún Ása hefur unnið þrekvirki með því að búa verkið til prentunar og skrifar sjálf margt
í kringum það. Þetta er margra ára eljuverk unnið fjarri öllu dægurþrasi og varpar skýru
ljósi á mikilvægan þátt í menningarsögu þjóðarinnar.
– sérfræðingur á Stofnun Árna magnússonar í íslenskum fræð-
um, fyrir ritstjórn og útgáfu bókarinnar Ættartölusafnrit séra
Þórðar í Hítardal i-ii; St.Á.m. 2008
guðrún Ása grímsdóttir
guðmundur eggertsson
– sérfræðingur á veðurstofu Íslands,
fyrir bókina gróðurhúsaáhrif og
loftslagsbreytingar; Hið íslenska
bókmenntafélag 2008