Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Side 34
föstudagur 27. febrúar 200934 menningarverðlaun DV
NefNdiN
Jón viðar Jónsson,
forstöðumaður Leikminjasafns
Íslands og gagnrýnandi DV (formaður)
Benóný Ægisson, leikskáld
Signý Pálsdóttir,
skrifstofustjóri menningarmála hjá
Reykjavíkurborg
leiklist
Leiktexti Sigurðar Pálssonar veitir leikstjóra óvenju mikið svigrúm til listrænnar úrvinnslu
sem hér er nýtt á hugmyndaríkan og smekklegan hátt. Fjórir af fremstu leikurum Þjóðleik-
hússins feta sig lipurlega eftir óræðum mörkum húmors og ískyggileika í anda absúrdism-
ans. Það er sjaldgæft að unnið sé með rýmið, sem er ýmist galopið eða harðlæst, af slíkri
yfirvegun í íslensku leikhúsi. Þjóðleikhúsið.
leikstjórn á utan gátta eftir Sigurð Pálsson
Kristín Jóhannesdóttir
Sextíu og fjögur ár eru senn liðin frá því að
Gunnar Eyjólfsson steig í fyrsta skipti á leik-
svið. Hann komst brátt í raðir fremstu leik-
ara okkar og hefur verið þar æ síðan. Ólíkt
flestum starfsbræðrum sínum sem minnka
við sig eða setjast í helgan stein þegar árin
færast yfir, hefur Gunnar sýnt og sannað að
alltaf er hægt að vera ungur í listinni. Síð-
asta leikafrek hans er Jónatan, strandkapt-
einninn í Hart í bak Jökuls Jakobssonar sem
hann dregur upp átakanlega og áhrifamikla
mynd af. Þjóðleikhúsið.
Jónatan í Hart í bak
gunnar eyjólfsson
Brynhildur hefur ákveðna skoðun á tilurð Sonatorreks, frægasta ljóðs Egils Skallagríms-
sonar, sem hún tengir við kynni hans af ambáttinni Þorgerði Brák, en frá henni er sagt í
nokkrum línum í Egils sögu. Hún lýsir þeirri skoðun í lifandi samspili við áhorfendur sem
hún stýrir sjálf á hverri sýningu af fullkomnu öryggi. Einstaklega vel heppnuð tilraun til að
varpa nýju ljósi á gamalt söguefni og skálda í eyðurnar. Landnámssetrið í Borgarnesi.
leikur og handrit að Brák
Brynhildur guðjónsdóttir
Dubbeldusch er frumraun Björns Hlyns sem leikritaskálds. Þetta er sorgleg kómedía um
þá tvöfeldni sem getur orðið í lífi fólks ef ekki er gætt að heiðarleika í samskiptum og sam-
böndum. Þó að sagan komi ekki á óvart tekst að halda athygli áhorfenda frá upphafi til enda
og eiga vel skrifuð og víða hnyttilega orðuð samtöl sinn þátt í því. Frammistaða leikhópsins
undir stjórn höfundar er pottþétt. Leikfélag Akureyrar.
leikstjórn og handrit að Dubbeldusch
Björn Hlynur Haraldsson
Íslenskar leikgerðir hafa oftar en ekki verið lítið annað en uppskriftir að samtölum skáld-
sagnanna. Steinar í djúpinu er undantekning frá því. Þetta er djörf og að mörgu leyti vel heppn-
uð tilraun til að klæða í leikrænan búning skáldheim Steinars Sigurjónssonar, þar sem rudda-
skapur og ljóðræna, miskunnarlaust háð og mannleg hlýja vega salt. Sterkum myndum er
brugðið upp af lífi þorpsins annars vegar og hins vegar einsemd skáldsins sem þráir að komast
burt frá þessum uppruna sínum, en veit þó að það verður bundið honum alla tíð. Lab Loki.
handrit og leikstjórn á Steinum í djúpinu
rúnar guðbrandsson