Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2009, Page 38
föstudagur 27. febrúar 200938 Helgarblað þurrkur í allri slímhúð, húðinni og augum voru einnig aukaverkanir sem Hafdís fann mikið fyrir og ekki má gleyma hármissinum af öllum líkamanum og gífurlegum melting- arvandamálum. „Ég upplifði daga þar sem ég skreið með veggjum til að komast á klósettið, svo miklar voru kvalirnar. Svo átti ég auðvitað betri daga líka.“ Hafdís var þó aldrei ein í þessari baráttu sinni því góð kona eins og hún er yfirleitt umvafin góðu fólki. Vinir og vandamenn hennar voru til dæmis duglegir að fara með henni í lyfjagjafirnar sem gerðu þær mun auðveldari. „Dóttir mín, mað- urinn minn og vinkonur komu með mér til skiptis í lyfjagjafirnar og fann ég mikinn styrk í því. Einnig reyndum við litla fjölskyldan að gleyma okkur í því að stunda uppbyggingu í sjálfu niðurbrotinu. Við keyptum skápa og endurinnréttuðum margt í íbúðinni, reyndum þó að hafa þetta ekki of erf- itt. Ég fékk mikla útrás við að losa mig við gamla hluti úr geymslunni og eldhússkápum heimilisins, gefa það eða henda. Ég held að þetta hafi verið mín leið til að losna við krabbameinið úr huganum svo að ég gæti tekist á við framtíðina með björtum huga og laus við meinið.“ Hafdís segir enn eitt hafa haft góð áhrif á batann. „Ég hef dansað mig í gegnum erfiðleikana, dans er mjög heilandi og góður fyrir líkama og sál. Ég hef stundað dans frá barnsaldri með smá hléum reyndar en hef alltaf dansað heima og ég mæli með þess- ari útrás. Í uppbyggingunni sem ég er í núna eftir þessi krabbameinsátök ákváðum við maðurinn minn að fara í dansskóla og dönsum nú saman í gegnum lífið.“ Tek lífinu ekki sem gefnu Meðferðin hafði þó fleiri jákvæð áhrif í för með sér en tiltekt en það virðist einkenna Hafdísi að eiga einstaklega auðvelt með að sjá ljósu punktana í lífinu þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. „Fjölskyldan er miklu dug- legri að tjá ást sína en áður og við föðmumst oftar en áður, við höfum lært að taka ekki lífinu sem gefnu. Þetta áfall þjappaði einnig stórfjöl- skyldunni mikið saman. Ég hef feng- ið gífurlegan stuðning frá móður minni, tengdamóður, yndislegum systkinum, föður mínum, vinum og fyrrverandi tengdamóður minni og síðast en ekki síst manninum mín- um og dóttur sem hafa staðið við bakið á mér eins og klettar.“ Hafdís rifjar upp eina dýrmæta lífsreglu sem móðir hennar kenndi henni snemma. „Mamma sagði alltaf við mig, það er ekki hvað það er sem fyr- ir mann kemur heldur hvernig mað- ur tekur því.“ Það sem Hafdísi finnst mikil- vægast í lífinu eftir að hafa upplif- að svona áfall er að vera kærleiks- rík við aðra og reyna að sýna sínar bestu hliðar þrátt fyrir að lífið geti verið hart og leiki suma grátt, eins og hana sjálfa. „Við megum ekki verða köld tilfinningalega heldur verðum við að halda í náungakær- leikann og umhyggjuna. Við eigum að segja okkar nánustu miklu oft- ar hversu mikið við elskum þau og faðmast oftar. Það hjálpar svo mik- ið í samskiptum hvort við annað og þá sérstaklega að kenna börnum og unglingum þetta því að þau eru framtíðin. Við verðum einfaldlega sterkari ef við stöndum saman. Mér finnst erfiðasta reynslan hafa gefið mér aukinn skilning og auðmýkt gagnvart öðru fólki og líf- inu í heild sinni. Ég hefði ekki viljað missa af þessu, sérstaklega með það í huga að hafa staðið nálægt dauðan- um, fengið lífshættulegan sjúkdóm og fengið annað tækifæri til að njóta lífsins. Fyrir það er ég þakklát.“ Erfitt að missa hárið Hafdís segir nauðynlegt að halda í húmorinn og jákvæðnina þegar tek- ist er á við svona erfiðleika. „Það er auðvelt að verða sorgmæddur þegar maður stendur fyrir framan spegil- inn hárlaus og með eitt brjóst.“ Hún viðurkennir að henni hafi þótt að mörgu leyti erfiðara að missa hárið en brjósið. „Hárið er eitthvað sem allir sjá.“ Hafdís dvaldi ekki lengi við í vorkunnseminni og dreif sig til henn- ar Kollu í hárkollubúðinni á Skóla- vörðustíg. „Kolla er betri en nokkur annar sálfræðingur, hún er svo vön að hjálpa konum í minni stöðu og gerir það virkilega vel.“ Hafdís keypti sér gott úrval hárkollna og klúta og segist hafa gaman af því að skreyta sig á mismunandi hátt. Einnig fór hún á förðunarnámskeið fyrir konur með krabbamein og lærði að farða sig upp á nýtt með tiliti til hárleysis- ins. „Ég hef reynt að gera allt sem ég get til að gera það besta úr aðstæð- um.“ Hafdís minnist líka á góða konu í Eirberg, hjálpartækjabúðinni á Stór- höfða 25. „Hún Fjóla sem þar starf- ar er alltaf tilbúin að hitta konur og leiðbeina þeim við að velja sér gervi- brjóst og haldara og Tryggingastofn- un sér um að gefa styrk til kvenna í þessari aðstöðu.“ Hafdís grínast með það að það komi nú stundum fyrir að hún gleymi að skella gervibrjóstinu á sig eða muni stundum ekki hvar hún lagði það frá sér. Þrátt fyrir léttleik- ann segist Hafdís ákveðin í því að fara í aðgerð síðar og láta byggja upp varanlegt brjóst. Á að skanna konur fyrr Hafdís var þrjátíu og níu ára þegar hún greindist með brjóstakrabba- mein og var æxlið orðið svo stórt að líklega hefur það verið í mörg ár að myndast. Konur á Íslandi eru boð- aðar í sína fyrstu krabbameinsskoð- un við fertugsaldurinn og telur Haf- dís það allt of seint. „Að mínu mati þarf að skoða konur miklu fyrr, það er alltaf að verða algengara að ung- ar konur greinist með brjóstakrabba- mein. Ég hef spurst fyrir um málið og hef fengið þau svör að það sé svo dýrt að byrja eftirlitið fyrr. Það hlýt- ur að vera miklu ódýrara að mynda konur fyrr heldur en kostnaður við krabbameinsmeðferðirnar. Þessu vil ég beita mér fyrir þegar ég hef safn- að kröftum. Þangað til vil ég hvetja allar kon- ur til að stunda reglulega sjálfskoð- un brjósta eða minnst einu sinni í mánuði. Það fást leiðbeiningabæk- lingar hjá leitarstöðinni, Krabba- meinsfélaginu og á deildum spítala. Mér finnst að það ætti að senda bæk- linga á hvert heimili og mun ég hafa samband við Krabbameinsfélagið og biðja um það, það hefur ekki verið lögð nógu mikil áhersla á þetta. Enn frekar vil ég nefna það að allar kon- ur ættu að fara í brjóstamyndatöku annað hvert ár þegar kemur boð frá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins, því flestir hnútar í brjóstum eru góð- kynja og þá er hægt að grípa til að- gerða ef þeir greinast snemma.“ Skrifar bók Hafdís segir að nú sé verið að vinna í því erlendis að finna upp krabba- meinslyf sem hafa bein áhrif á krabbameinsfrumurnar einar og sér. „Það er mjög nauðsynlegt að það verði framþróun á því sviði því það er mjög erfitt fyrir krabbameins- sjúklinga að lyfin herji á aðrar frum- ur líkamans, sem hefur bæði áhrif á andlega og líkamlega líðan. Það er auðheyrt að Hafdís lætur sig þessi mál varða og dreymir um að hjálpa öðrum og hafa áhrif. „Nú ætla ég að einbeita mér að því að ná full- um bata og safna kröftum, stunda sjúkraþjálfun og það sem þarf til að ná fyrri styrk og getu. Að því loknu vil ég starfa með krabbameinssjúk- um, jafnvel börnum. Ég hefði ekki treyst mér til þess áður en í dag held ég að ég sé einmitt rétta manneskj- an til að hjálpa krabbameinssjúkum vegna þess að ég hef dýpri skilning á krabbameini og krabbameinsmeð- ferðinni eftir reynslu mína. Hafdís er einnig byrjuð að skrifa um reynslu sína og stefnir að því að gefa út bók. „Ég er að skrifa um veik- indi mín og upplifun mína af þeim í bleiku tölvuna minni,“ segir hún og brosir. „Það hefur reynst mér vel að skrifa og gefið mér mikla útrás sem mun vonandi nýtast öðrum þegar ég gef bókina mína út.“ Þrátt fyrir að vera laus við mein- ið í dag segir Hafdís ekki tímabært að fagna. „Ég opna ekki kampavíns- flöskuna fyrr en eftir fimm ár. Mað- ur getur aldrei verið alveg viss. Mað- ur má ekki hugsa að maður sé alveg hólpinn, en ég er hæfilega bjartsýn og nýt lífsins með bros á vör,“ segir þessi einstaka baráttukona að lok- um. kolbrun@dv.is Í faðmi fjölskyldunnar Hér er Hafdís ásamt eiginmanni sínum Óskari Ásgeirssyni og dóttur sinni Valdísi Ingunni Valdimarsdóttur. Þau hafa staðið eins og klettar við bakið á Hafdísi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.